Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Blaðsíða 34
Þjóðfélagslegt gildi
stangarveiðinnar.
OFT hefur verið á það bent hér í
ritinu, að félagslegt gildi stangveiðinn-
ar fari sívaxandi í íslenzku þjóðlífi. Þeim
fjölgar með hverju ári, sem vilja verja
sumarleyfi sínu og tómstundum til þess
að stunda þessa hollu og skemmtilegu
íþrótt. Þessi hópur er nú þegar orðinn
svo stór, að hann á kröfu á því, að hið
opinbera leggi honum lið á hliðstæðan
liátt og gert er í öðrum menningarlönd-
um. í þessu sambandi þykir rétt að birta
hér unnnæli veiðimálastjóra í greinargerð
hans með frumvarpinu urn lax- og sil-
ungsveiði, sem nti býður afgreiðslu á Al-
þingi. Hann segir svo á bls. 24:
„Gildi lax- og silungsveiði fyrir þjóð-
ina má meta með ýmsu móti. Þar sem
veiðin er til nruna orðin tómstundaiðja,
hefur hún einnig fengið félagslegt gildi
Með aukinni borgarmenningu og stytt-
um vinnutíma lrefur komið franr nýtt
vandamál hér á landi á síðustu árum,
það, hversu þegnarnir skuli verja tónr-
stundum sínunr á gagnlegan hátt. Hið
opinbera lætur þetta vandamál nreira
og meira til sín taka nreð síauknum fjár-
framlögum, t. d. til félagsheinrila, íþrótta-
starfsemi og annarrar félagsstarfsemi og
námskeiðahalds. Erlendis liefur aðstaða
til stangarveiði verið efld af opinberum
aðilum í því skyni að leysa unrrætt vanda-
nrál. A síðustu árum lrefur stangveiðin
lrér á landi einnritt beinzt í þessa átt,
þar sem æ fleiri nota tómstundir sínar
á sumrin til veiða á stöng sér til hress-
in<>ar og hvíldar frá da<>le<>um störfum.
Verður því að viðurkenna þjóðfélagslegt
gildi stangarveiði."
Seiðatorfa við ósa
Eyjaíjarðarár.
ÞRJÚ undanfarin ár hafa stangr eiði-
nrenn á Akureyri látið nokkurt nragn
af laxaseiðunr í Eyjafjarðará. Arið 1953
tók stangveiðifélagið ána á leigu til
10 ára 02. hóf tilraunir nreð klak.
í haust sá maður nokkur, senr var að
stangveiðunr við ósa Eyjafjarðarár, all-
stóra seiðatorfu þar. Hann náði einu
seiðinu, og var það sent veiðinrálaskrif-
stofunni í Reykjavík. Reyndist það vera
laxseiði, og nrá því telja víst, að torfa
þessi lrafi verið á leið til sjávar eftir
dvölina í ánni. Er því ástæða til að ætla
að klakið lrafi dafnað vel, en nú er eftir
að vita, hvernig heimturnar verða á full-
orðna laxinunr, senr ætti að konra upp
í ána aftur eftir 2—3 ár.
Veiðimaðurinn óskar Akureyringum
til hanringju nreð þennan árangur og
að áframhaldið verði eins gott og byrj-
unin virðist benda til.
32
VeIÐIMADURIN'N