Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Page 43
Frá aðalfundi L.I.S
AÐALFUNDUR Landssambands ísl.
stangveiðimanna var haldinn að Hótel
Borg í Reykjavík sunnudaginn 23. októ-
ber s.l. I sambandinu eru nú 16 félög
víðsvegar á landinu.
Þorgils Ingvarsson, formaður sam-
bandsins, flutti skýrslu stjórnarinnar. Á
síðasta aðalfundi var stjórninni falið að
atliuga möguleika á því, að sambands-
félögin gætu orðið aðilar að klak- og
eldisstöðinni við Elliðaár, ásamt ríkinu.
En Rafveita Reykjavíkur rekur stöðina
ein, enn sem komið er, og samkvæmt
upplýsingum veiðimálastjóra eru litlar
líkur til að ríkið vilji gerast aðili að
stöðinni á framangreindum grundvelli,
a. m. k. fyrst um sinn. Stjórn sambands-
ins ritaði því veiðimálasjóra bréf fyrir
nokkru, þar sem stungið var upp á að
ríkissjóður legði frarn kr. 100 þús., gegn
jafnháu framlagi annars staðar frá, til
eflingar klak- og eldisstöð Rafveit-
unnar. Veiðimálastjóri tók þessu mjög
\ el og lagði til við ríkisstjórnina að upp-
hæð þessi yrði tekin inn á fjárlög, en
úr því varð þó ekki að þessu sinni. Mun
liann þá haia lagt málið fyrir fjárveit-
inganefnd Alþingis, og ennfremur var
samþykkt á fundinum tillaga þar sem
stjórn sambandsins var falið „að koma
á framfæri áskorun til fjárveitinganefnd-
ar Alþingis, sem nú situr að störfum,
að veita fé á næsta fjárhagsári til styrkt-
ar klak- og eldisstöðinni við Elliðaárnar“,
eftir tillögum veiðimálastjóra.
Formaðurinn ræddi einnig um frum-
varp það til laga um lax- og silungsveiði,
er nú hefur verið lagt fram á Alþing
í annað sinn. Bjóst hann tæplega við að
stangveiðimenn væru almennt ánægðir
með það, enda þótt margt væri þar til
bóta frá því sem nú er. Lágu fyrir fund-
inum tillögur um breytingar á frumvarp-
inu ásamt greinargerð.
Síðar á fundinum var samþykkt tillaga
frá fulltrúum Stangaveiðifélags Reykja-
víkur um kosningu 5 manna nefndar
„til þess að kynna sér frumvarp til laga
um lax- og silungsveiði .... og semja
tillögur um breytingar, sem síðan terði
sendar Alþingi til atlmgunar. Nefnd
þessi var síðan kosin á fundinum. Síðar
kom í ljós að sumir þeirra, sem í hana
voru kjörnir, gátu ekki starfað þar sök-
um annríkis, en hinir kynntu sér frum-
varpið og sömdu breytingatillögur, á-
samt greinargerð, sem nú munu hafa
\erið sendar Alþingi.
Sæmundur Stefánsson ræddi einnig
klakmálið og sagði, að jafnan þegar það
bæri á góma kæmi Stangaveiðifélag
Reykjavíkur við sögu. Taldi hann það
eðlilegt, þar sem S.V.F.R. hefði haft for-
göngu um að reyna að ná viðunandi lausn
á málinu, eins og ráðgert var, í samstarfi
við ríki og Reykjavíkurbæ, með byggingu
klak- og eldisstöðvar við Elliðaárnar, sem
væri svo stór, að hún nægði fyrir allt
landið. Kvað hann sambandsfélögin hafa
sætt sig við þessa hugmynd um lausn
Veiðimaourinn
41