Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Side 46
A'i'tverandi stjórn S.V.F.R. Myndin var tekin við Norðurá vorið 1954, þegar stjórnin fór uþþeftir
til þess að „oþna.“ ána. Laxinn var tregur og nógur timi til að taka nvyndir. Talið frá vinstri:
Viggó Jónsson, Scemundur Stefánsson, Víglundur MöUer, Gunnbjörn Björnsson, Olafur Þorsteinsson.
Ljósm.: Viggó Jónsson — sjálftakari.
til að byggja þró í sanibandi við klak-
stöðina, sem síðan mætti reiknast sem
framlag félagsins, ef til félagsstofnunar
kæmi um reksturinn með bæ og ríki.
Stjórnin taldi þó heppilegra að reyna
að fá ríkissjóð með strax og vann að
því eftir beztu getu að það mætti tak-
ast. En þegar fullséð var að það yrði
ekki að sinni, ltélt stjórnin enn áfram
samningatilraunum \ið veiðimálastjóra
og rafmagnsstjóra um einhverja aðra
lausn málsins. M. a. var reynt að fá rík-
issjóð til að leggja fram kr. 100.000.00
á rnóti sömu upphæð frá S.V.F.R. til
klakstöðvarinnar við Elliðaár.
Þá kom það einnig í ljós, þegar rætt
var um að fjölga þrónum, að vafasamt
var að nægilegt vatnsmagn yrði fyrir
hendi. Taldi stjórnin því óráðlegt að
fara að byggja nýja þró fyrir S.V.F.R.
senr ef til vill yrði ekki hægt að fá vatn
í þegar hún væri fullgerð.
Stjórn S.V.R.F. hefur enn sem fyrr
mikinn áhuga fyrir klakmálinu og mun
framvegis, eins og hingað til, vinna að
íarsælli lausn þess.
44
Veioimaðlrinn