Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Side 47
Stjórnin bar frarn eftirfarandi tillögu,
sem var samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum:
„Fundur haldinn í S.V.F.R. mánud.
28. nóv. 1955, í Breiðfirðingabúð, sam-
þykkir að fela stjórn félagsins að reyna
að ná samningi við Rafmagnsveitu
Reykjavíkur um klak og eldi lax- og sil-
ungsseiða, ef hún telur það henta félag-
inu. Skal stjórnin óbundin af fyrri sam-
þykktum félagsins um þetta efni. Þó nær
heimild þessi um fjárframlag ekki nema
til klaksjóðsinneignar félagsins eins og
hún er nú, en má þó bæta við úr félags-
sjóði þannig að heildarupphæðin nemi
kr. 100.000.00.
Flins vegar telur fundurinn að fram-
lög félagsins til klakstarfsemi skuli eigi
fara fram úr inneign klaksjóðs á hverj-
um tíma, nema lagabreyting komi til.“
Byggingu veiðihússins við Norðurá
miðar vel áfram. Húsið er löngu fokhelt
og verið að innrétta það. Fé það sem
safnaðist í happdrættinu í hitteð fyrra
er allt komið í húsið og þarf meira til.
Þess vegna hefur stjórnin ákveðið að efna
til happdrættis að nýju. Verða þar margir
góðir munir, og er sala þegar hafin.
Verð miðanna er 50 kr. og upphæðin
alls 200 þús. kr.
Ennfremur skýrði formaður frá ýms-
um (jðrum framkvæmdum stjórnarinnar,
svo sem ýmsum endurbótum og lagfær-
ingum við árnar og veiðihúsin. Hann
þakkaði nefndum þeim, sem stjórnin
skipaði sér til aðstoðar á starfsárinu, fyr-
ir ágætt starf, svo og öllum sem hefðu
lagt fram vinnu og aðstoð við nýja veiði-
húsið eða á annan hátt unnið að hag
félagsins.
Úr stjórninni áttu að ganga að þessu
sinni, formaður, varaformaður og fjár-
nrálaritari. Voru þeir allir endurkjörnir
með lófataki, þar eð engar uppástungur
komu fram um aðra.
Endurskoðendur voru kjörnir, Árni
Benediktsson og Magnús Vigfússon.
Samþykkt var breytingartillaga frá
stjórninni við 10. gr. félagslaganna. Á
eftir orðunum: „sem félagið leitar eftir
að fá til útleigu“, komi: Þetta gildir þó
ekki nema fyrir liggi fundarsamþykkt
eða bréfleg tillkynning félagsstfórnar til
félagsmanna um fyrirœtlanir félagsiiis,
hvað þetta snertir.
Ennfremur var samþykkt tillaga frá
stjórninni þess efnis, að senda bóndan-
um á Hafþórsstöðum í Norðurárdal kr.
5.000.00 úr félagssjóði, sem samúðarvott
frá félagsins hálfu vegna tjóns þess, sem
hann varð íyrir í brunanum í haust.
Umræður urðu mjög litlar á fundin-
um.
petta hef cg þnið alla mina cevi!
Vexðimaðurinpí
45