Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Qupperneq 48
Minnkandi laxveiði
í Alaska.
ÞJÓÐTRÚIN um ótæmandi auðæfi
hafsins var mjög útbreidd í Ameríku
um aldamótin síðustu. En nú er svo
kornið, að ýmsir eru farnir að bila í
þeirri trú. Astæðan er ekki hvað sízt
sú, hve laxinum hefur fækkað við Alaska
ár frá ári upp á síðkastið. Arið 1953
var veiðin 2.800.000 kassar af niðursoðn-
um laxi, en í hverjum kassa eru 48
pundsdósir. Arið áður var veiðin
3.500.000 kassar, en árið 1936 t. d.
8.500.000 kassar. Verðmæti þessara af-
urða árið 1953 nam um 700 millj. kr.,
og er það ekki helmingur Jæss, sem afl-
aðist stundum áður. Árið 1954 var lax-
veiðin ekki stunduð nema til hálfs við
það sem áður var. Eitt bezta veiðisvæð-
ið, Prins Williams-sundið, var friðað til
tveggja ára. I Bristolflóanum hefur einn-
ig verið hert svo á veiðireglunum, að út-
gerðin þar mun dragast mjög saman.
Ástæðurnar fyrir fækkun laxins í sund-
um og ám Alaska hafa ekki enn verið
rannsakaðar til hlítar, en flest bendir til
að gegndarlaus ofveiði sé aðalorsökin.
British Columbia (í Kanada) og Was-
hingtonfylkið í Bandaríkjuniun, sem eru
landfræðilegt framhald af Alaska, hafa
sett strangari reglur um laxveiðina. Ár-
angur þeirrar stefnu hefur verið góður.
Árið 1953 var samanlögð veiði í þessum
fylkjum nálega eins mikil og í Alaska.
en áður fyrr var hún aðeins lítið brot
af Alaskaveiðinni.
Þýtt i'ir norsku.
Fyrirgefið, herra minn. Það eru einhver skritin livik-
indi að skriða d hattinum yðar. Ég er hrcrdd um
að þau séu eitruð.
Hvað varð um þá stóru?
í ferðabók Eggerts Ólafssonar og
Bjarna Pálssonar, sem rituð er á árun-
um 1752—57, er nokkuð rætt um lax-
veiðar. Þar er t. d. minnst á Reykja-
dalsá, sem fellur í Hvítá í Borgarfirði,
og þess getið, að þar sé nokkur lax-
veiði. Segja þeir félagar, að í þessari á
og nokkrum öðrum hinna vatnsmeiri þar
um slóðir, veiðist 30—40 punda laxar,
þótt þeir síðartöldu séu sjaldgæfir.
Hver skyldi hafa upprætt þennan
stofn? Hann er horfinn núna, eins og
allir vita. Ekki eru það stangveiðimenn,
því laxar af þessari stærð, sem fengizt
hafa á stöng, eru teljandi, þótt farið
sé alla leið aftur til þess tíma, er farið
var að veiða á stöng í þessum ám.
46
VeIÐIMADURINI'í