Bændablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
FRÉTTIR
og farsælt komandi ár
Við sendum landsmönnum okkar bestu
óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi
ári með þökkum fyrir áhorfið
á árinu sem er að líða
Samkvæmt breytingum á lögum sem taka gildi um áramótin er landeigendum skylt að gera merkjalýsingu um
fasteign sína og láta draga upp merkin hnitum séu eignamörk ekki glöggt afmörkuð og þinglýst.
Mynd / Myndasafn Bændablaðsins
Breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna:
Skylda að merkjalýsa fasteignir
Samkvæmt breytingum á lögum
um skráningu og mat fasteigna sem
taka gildi um áramót er eigendum
skylt að gera merkjalýsingu um
fasteign sína og láta draga upp
merkin hnitum séu eignamörk
ekki glöggt afmörkuð og þinglýst.
Merkjalýsing skal árituð um
samþykki eigenda aðliggjandi
fasteigna.
Merkjalýsingar sem gerðar
hafa verið í samræmi við eldri lög
og þinglýst fyrir gildistöku laga
þessara halda gildi sínu þar til ný
merkjalýsing hefur verið gerð.
Í þeim tilfellum þar sem merki eru
ekki hnitsett eða glögg frá náttúrunnar
hendi er eigendum skylt að viðhalda
eldri merkjum eða setja ný.
Samþykki sveitarstjórnar
Samkvæmt nýju lögunum er óheimilt
að skipta fasteignum, sameina þær
eða breyta merkjum nema samþykki
sveitarstjórnar komi til. Séu gerðar
ráðstafanir sem breyta eða raska
merkjalýsingu að hluta eða í heild
skulu eigendur að sama skapi
án ástæðulauss dráttar gera nýja
merkjalýsingu.
Þess skal einnig gætt að land
hverrar fasteignar verði sem mest
í samhengi og sem skipulegast.
Gæta skal ákvæða jarðalaga og
skipulagslaga, eftir því sem við á.
Það sem þarf að kom fram
Í merkjalýsingu skulu eftirfarandi
atriði koma fram á skýran og
skilmerkilegan hátt.
1. Um hvaða fasteign er að ræða.
2. Almenn lýsing á fasteign og
hvort skikar séu einn eða fleiri,
samliggjandi eða aðskildir.
3. Merki fasteignar og einstakra
skika, ef við á.
4. Réttindi sem fylgja fasteigninni
og ná til annarra fasteigna sem og
takmarkanir á ráðstöfunarrétti
fasteignarinnar vegna réttinda sem
fylgja öðrum fasteignum.
5. Ef skiki fylgir fleiri en einni
fasteign sem sameignarland þarf að
tilgreina eignarhlutdeild, liggi hún
fyrir.
6. Hnitsettur uppdráttur sem sýnir
merki fasteignar og einstakra skika,
ef við á, ásamt stærð og auðkennum
hverju sinni.
7. Hnitaskrá ásamt upplýsingum
um framkvæmd mælinga eða heimild
til grundvallar hniti.
8. Heimildir til grundvallar
merkjalýsingu.
Leyfi til að gera merkjalýsingar
Þeir einir mega taka að sér gerð
merkjalýsingar sem fengið hafa
til þess sérstakt leyfi ráðherra að
eftirfarandi skilyrðum uppfylltum.
Viðkomandi skal vera lögráð og
hafa búsforræði. Viðkomandi skal
einnig hafa sótt námskeið og staðist
próf sem sýni fram á að hann hafi
staðgóða þekkingu á landmælingum,
lögum þessum, skipulagslögum,
þinglýsingalögum, jarðalögum og
annarri löggjöf er máli skiptir og
sáttamiðlun og kunnáttu í að afla
nauðsynlegra gagna og beita gildandi
útreikningsreglum og aðferðum, allt
samkvæmt nánari fyrirmælum sem
setja skal í reglugerð.
Sameiginleg ábyrgð
Eigendum er skylt þegar fasteignir
þeirra liggja saman, að leggja vinnu
og efni til hnitsetningar merkja, en
sú skylda nær ekki lengra en til að
gera merki glögg.
Merki teljast glögg ef vikmörk
mælinga eru:
a. Í skipulögðu þéttbýli: 10 sentímetra
eða nákvæmari.
b. Í dreifbýli að 300 metra hæð: eins
metra eða nákvæmari.
c. Í óbyggðum í 300 metra hæð eða
ofar: fimm metra eða nákvæmari.
Við mælingar merkja skal
unnið samkvæmt samræmdu
grunnstöðvaneti fyrir landmælingar
og kortagerð. Til staðsetningar
merkja samkvæmt lögum þessum
skulu notaðar viðurkenndar
mælingaaðferðir samkvæmt
leiðbeiningum frá Landmælingum
Íslands.
Stærð fasteigna
Skráð stærð fasteigna skal miðast við
land ofan þess svæðis þar sem áhrifa
sjávarfalla gætir.
Við útreikning á stærð fasteignar
skal miða við heildarstærð miðað við
mörk gagnvart öðrum fasteignum.
Ef fasteign fylgir eignarhlutdeild í
óskiptu landi skal telja óskipta landið
með í heild sinni.
Greini landeigendum á um merki
milli fasteigna og geta þeir, hver um
sig eða í sameiningu, leitað sátta fyrir
milligöngu sýslumanns. Sýslumanni
er heimilt að fela löglærðum fulltrúa
sínum slíka sáttaumleitan.
Ef sættir takast ekki gefur
sýslumaður út vottorð þess efnis.
Heimilt er að gefa út vottorð um
sáttameðferð ef aðilar mæta ekki
á sáttafund eftir að þeim hefur
sannanlega verið send kvaðning
tvívegis. Sama á við ef sýslumaður
telur sýnt að sáttatilraunir beri ekki
árangur.
Sáttameðferð hjá sýslumanni er
skilyrði þess að höfðað verði mál
fyrir dómi um merki fasteigna. Höfða
skal slíkt mál innan níu mánaða frá
útgáfu vottorðs um sáttameðferð.
/VH
Matvælastofnun:
Ráðlagt að gefa ormalyf í munn
Sex hross drápust af völdum
hópsýkingar sem upp kom í
hrossastóði á Suðurlandi í lok
nóvember.
Allt bendir til þess að sýkingin
hafi verið af völdum eiturmyndandi
jarðvegsbakteríu, Clostridium spp.,
sem hefur magnast upp eftir að
hrossin voru sprautuð með ormalyfi,
að því er fram kemur í tilkynningu frá
Matvælastofnun. Alls veiktust þrettán
hross í 30 hesta hópi útigangshrossa
á Suðurlandi. Hrossin voru haldin í
tveimur aðskildum hólfum sem rekin
voru saman og sprautuð með ormalyfi
þann 21. nóvember. Aðeins hrossin
sem dvöldu í öðru hólfinu veiktust
og virðist bakterían því hafa magnast
þar upp. Ekki er
vitað hvernig á því
stendur að umrætt
hólf mengaðist
umfram önnur hólf
eða hvort hætta sé
á slíkri mengun
víðar um land.
Allvíða um
heim er hætt að
notast við orma-
lyfjasprautun eins
og tíðkast hefur hér á landi í áratugi,
einmitt út af hættu á að draga
inn sýkingar sem þessar.
Matvælastofnun telur hættu á
að sambærilegar hópsýkingar geti
komið upp og varar því við að
hross séu sprautuð með ormalyfi
undir húð. Hestamönnum er ráðlagt
að nýta ormalyf sem gefin eru í
munn í samráði við sinn dýralækni,
sem metur þörf á meðhöndlun
hverju sinni. /ghp
Útigangshross um vetur. Mynd / ghp
Matvælaráðuneytið hefur gengið
frá uppgjöri vegna álagsgreiðslna,
sprettgreiðslna, á jarðræktarstyrki
og landgreiðslur. Hefðbundin
jarðræktarstuðningur verður
greiddur út á næstu dögum.
Fram kemur í tilkynningu
frá matvælaráðuneytinu að
heildarupphæð uppgjörsgreiðslu
er um 52.000.000 kr. en alls var
álagsgreiðsla stjórnvalda vegna
jarðræktar og landgreiðslna um
517.000.000 kr. Álagsgreiðslurnar
eru hluti af svokölluðum
sprettgreiðslum stjórnvalda sem
var komið á að fengnum tillögum
spretthóps sem skipaður var í
júní síðastliðinn vegna hækkandi
matvælaverðs. Um 90% af
greiðslum voru greiddar út í
október og byggðust á innsendum
umsóknum.
Nýgert uppgjör byggir hins vegar
á niðurstöðu úttektar ráðuneytisins
ásamt 10% fjárveitingarinnar sem
haldið var eftir fyrir endanlegt
uppgjör. Bændur hafa fengið sendar
tilkynningar og upplýsingar um
uppgjörið í Afurð og í stafrænt
pósthólf á Ísland.is. /VH
Uppgjör vegna
álagsgreiðslna
Hækkunin stendur
Engin breyting hefur orðið
á væntanlegri hækkun á
úrvinnslugjaldi á heyrúlluplasti
í meðförum Alþingis.
Frumvarp til laga um breytingu
á ýmsum lögum vegna fjárlaga
árið 2023 hefur nú gengið gegnum
efnahags- og viðskiptanefnd og
verður væntanlega að lögum eftir
aðra umræðu.
Í frumvarpinu er lagt til að
úrvinnslugjald á heyrúlluplasti
hækki úr 30 kr./kg í 82 kr./kg.
Bændasamtökin lögðust gegn
þessari hækkun enda getur hún
þýtt mörg hundruð þúsund króna
hækkun framleiðslukostnaðar fyrir
bændur. Í nefndaráliti meirihluta
nefndarinnar segir að hækkunin geti
orðið bændum íþyngjandi, en óvíst
sé hvernig verð á heyrúlluplasti muni
þróast næstu mánuði.
„Meirihlutinn bendir á að
rekstrarumhverfi búvöruframleiðslu
er kvikt, í kjölfar heimsfaraldurs
og stríðsátaka. Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar á liðnu ári hafa verið
umtalsverðar vegna þessa.
Enn eru blikur á lofti og mikilvægt
er að fylgjast áfram með þróun mála
og beita markvissum aðgerðum
vegna hagsmuna neytenda, bænda
og íslensks matvælaiðnaðar.
Þá beinir meirihlutinn því
til umhverfis-, orku- og loftslags-
ráðherra að komið verði til móts
við bændur vegna þessara hækkana
og metið með hagsmunaaðilum
hvernig söfnun og endurvinnsla
á heyrúlluplasti geti verið sem
hagkvæmust til framtíðar.
Með því er tryggð betri endur-
heimta og endurvinnsla á hey-
rúlluplasti í anda hugmyndafræði
hringrásarhagkerfisins og kostnaður
bænda af söfnun þess til endurvinnslu
lágmarkaður.“
/ghp
Að óbreyttu mun úrvinnslugjald á heyrúlluplasti hækka úr 30 kr./kg í 82 kr./kg.
Mynd / ghp