Bændablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Nú, í síðasta tölublaði Bændablaðsins á þessu ári, þegar aðeins 8 dagar eru
til jóla, er þess virði að líta til þess hvaða kjöt fólk kýs einna helst að borða
yfir hátíðarnar og í aðdraganda þeirra. Ef ímynd jólanna stenst ættu tölur yfir
sölu og innflutning að sýna að kjötát aukist yfir hátíðarnar og að aðallega
myndi aukningin skiptast á lambakjöt og svínakjöt þar sem þetta er tíminn
þar sem fólk seðjar hungrið með hamborgarhrygg, purusteik og hangikjöti.
En ef rýnt er í tölurnar þá sést að í desember undanfarinna þriggja ára
selst minna af kjöti en í meðalmánuði. Meðalneysla desembermánaðar er
2.305 tonn en meðaltal ársins er 2.564,2 tonn. Þetta er 10% samdráttur frá
meðaltali kjötneyslu á landinu.
Einnig er áhugavert að sjá að ekki er hægt að treysta á að sala svínakjöts
eða kindakjöts aukist í desember. Hér er stuðst við sölu áranna 2020 og 2021
og sést þá að árið 2020 var kindakjötssala í desember rétt undir meðaltali en
árið 2021 var hún rétt yfir meðaltali. Öfugt er farið með svínakjötið. Þar er
salan rétt yfir meðaltali árið 2020 en undir því 2021. Þegar horft er yfir töflur
sem sýna frávik frá meðal mánaðarsölu sést að fyrir utan lambakjöts- og
hrossakjötssölu rétt eftir sláturtíð á haustin, og samdrátt í mánuðunum fram
að því, er lítið hægt að reiða sig á árstíðabundna söluaukningu í einstaka
kjötflokkum, þó fyrir utan það að í desember áranna tveggja í þessu úrtaki
dró úr sölu bæði alifugla- og nautakjöts.
Hver er jólaréttur Íslendinga?
Mánuðir áranna 2019-2022
Markaðir
151,1 kr
Evra
143 kr
USD
176,2 kr
Pund
319,9 kr
95 okt bensín
326,9 kr
Díesel
20,5 USD
Mjólk (USD/100 pund)
7,23 USD
Korn (USD/sekkur)
26,3 EUR
Kartöflur (EUR/100 kg)
1308 AUD
Ull (AUD/100 kg)
2,02 USD
Ostur (USD/pund)
5600 EUR
Smjör (EUR/tonn)