Bændablaðið - 15.12.2022, Page 19

Bændablaðið - 15.12.2022, Page 19
Már Guðnason Hrein íslensk fæðubót frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup, Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira Betri lífsgæði með Active JOINTS Már Guðnason húsasmiður hefur starfað við álagsvinnu í gegnum árin. Nú þegar hann er kominn á eftirlaun hafa komið fram ýmis eftirköst erfiðisins. Már hefur fundið út að Active JOINTS frá Eylíf reynist vel til að bæta lífsgæðin. Már segist hafa verið sérstaklega slæmur í hálsliðum. „Ég er lærður húsasmiður en er eiginlega alt muligt- maður,“ segir hann. „Get eiginlega aldrei verið aðgerðalaus og er alltaf að dunda mér við eitthvað, hvort sem það eru endurbætur hér heima, að hjálpa vinum og vandamönnum eða vinna í garðinum“ segir Már, sem býr í Fljótshlíðinni ásamt konu sinni, Önnu Óskarsdóttur. „Við búum á þessum fagra stað,“ segir hann. „Ég var alltaf í átaksvinnu, aðallega í virkjunum. Það hefur komið niður á líkamanum en ég hef verið sérstaklega slæmur í hálsinum. Ég vann lengi í járna- bindingum og oft með mikil þyngsli í höndunum. Það reynir á skrokkinn og kemur fram þegar maður eldist,“ segir hann. „Ég var með mikla verki í hálsinum og átti erfitt með svefn. Ég hafði leitað til heimilislækna í ein- hver ár, en það eina sem ég fékk út úr því var að taka verkjalyf. Ég fór í nudd með litlum árangri, verkirnir versnuðu bara ef eitthvað var. Ég var síðan sendur í myndatöku og þá kom fram mikið slit í hálsliðum en því miður á svo vondum stað að ekkert er hægt að gera. Eina ráðið voru verkja- og gigtartöflur það sem eftir er, sem mér hugnaðist ekkert sérstaklega vel,“ útskýrir Már. Get loksins sofið „Ég sá auglýsingu frá Eylíf um Active JOINTS og hugsaði með mér að það væri nú allt í lagi að prófa þetta. Það var í mars 2020. Eftir fjórar vikur var ég farinn að finna fyrir að eitthvað var að breytast og eftir fjóra mánuði var ég orðinn töluvert betri. Ári seinna var ég hættur að finna fyrir verkjunum í hálsinum. Fyrir mér er þetta kraftaverk og lyginni líkast. Ég fékk nýtt líf. Engar verkjatöflur og mér gekk vel að sofna á kvöldin. Í rauninni er ég laus við verkina,“ segir Már, sem tekur þrjú hylki á dag og ætlar sannarlega að taka Active JOINTS frá Eylíf áfram. Már var svo óheppinn að fótbrjóta sig fyrir sex vikum og er viss um að Active JOINTS hefur hjálpað beinunum að gróa. Læknirinn er ánægður með hversu vel hefur gengið hjá honum. „Ég var svo óheppinn á leið í Krónuna á Hvolsvelli að detta. Það var rok úti og ég var með tvo nælonpoka sem fuku frá mér. Í flýtinum að ná þeim hrasaði ég með þeim afleiðingum að ég mölbraut á mér fótinn. Ég brotnaði svo illa að læknirinn sagði að í raun áður en aðgerðin fór fram hefði fóturinn verið ónýtur. Aðgerðin hefði hins vegar gengið vel og ég er farinn að stíga í fótinn,“ segir hann og bætir við: „Enda læknirinn, Benedikt Árni Jónsson, algjör snillingur, besti skurðlæknir á landinu að öðrum ólöstuðum,“ segir hann. Active JOINTS styrkir beinin Már segir að hann hafi spurst fyrir hjá Eylíf hvort það hentaði að taka Acive JOINTS á meðan beinin væru að gróa. „Mér var sagt að það væri mjög gott þar sem Active JOINTS styrkir beinin. Ég hélt því áfram að taka hylkin og er viss um að það hefur hjálpað þeim að gróa,“ segir hann. „Ég er bara virkilega ánægður með virknina í Active JOINTS og hef mikla trú á þessu fæðubótarefni enda eru innihaldsefnin kalkrík sem er nauðsynlegt fyrir viðhald beina. Einnig er C- og D3-vítamín í Active JOINTS frá Eylíf. Ég get ekki annað en mælt með vörunni,“ segir Már og bætir við að eiginkonan taki Smoother SKIN & HAIR og sé sömuleiðis mjög ánægð með þá vöru. „Ég hef verið að benda vinum og kunningjum á Active JOINTS og veit að margir eru farnir að taka hylkin daglega enda gott fyrir liðina og beinin. Ég er ekki nægilega duglegur að fara í göngutúra þótt ég sé alltaf að hreyfa mig í alls konar stússi. Ég hef gaman af ýmiss konar viðhaldsvinnu og hef ágætis vinnu- aðstöðu í bílskúrnum.“ Syngja í kórum Már hefur mörg áhugamál og bæði hjónin syngja í kórum. Hann syngur með Öðlingum, sem sungu í vikunni í Áskirkju. „Ég gat ekki verið með félögum mínum, þar sem ég má ekki standa lengi í fótinn,“ segir hann. „Mest erum við að syngja við jarðarfarir, þá átta til tíu/tólf manns. Hins vegar erum við átján á tónleikum. Það er virkilega gefandi og skemmtilegt að vera í kór,“ segir hann, en eiginkonan syngur með kirkjukór Fljótshlíðar. Hjónin hafa verið dugleg að ferðast um Evrópu, gjarnan með Bændaferðum, en hafa bara einu sinni farið til Kanarí. „Mér finnst mjög gaman að fara í rútuferðir, sérstaklega um fjöllin á Ítalíu, aka til Slóveníu og einnig Austurríkis. Við eigum tvo syni og barnabörn í Svíþjóð og förum líka reglulega þangað,“ segir Már, en hjónin eiga einnig eina dóttur sem býr í nágrenni við þau. „Lífið er skemmtilegt og það er bara yndislegt að vera til,“ segir hann. Vörulínan frá Eylíf Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á Grenivík undir GMP gæðastaðli. Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru: • Kalkþörungar frá Bíldudal • Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ • GeoSilica frá Hellisheiði • Kollagen frá Sauðárkróki • Kítósan frá Siglufirði • Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði Hrein íslensk óerfðabreytt hráefni Íslensk framleiðsla Heilsan er dýrmætust Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. www.eylif.is Gefðu góða heilsu í gjöf Hrein íslensk hráefni frá Eylíf Í desember fylgir ókeypis gjafapoki með öllum Heilsugjöfum frá Eylíf. Fastur 24% afsláttur af öllum Heilsugjöfum á www.eylif.is, aðeins fáanlegt á vefsíðu Eylífar, sendum frítt með Dropp.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.