Bændablaðið - 15.12.2022, Síða 22

Bændablaðið - 15.12.2022, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022 Orkumál: Íslendingar verða rukkaðir á nýju ári fyrir syndaaflausnir af eigin raforku – Orkupakkaleikurinn um upprunaábyrgðirnar vegna raforku er farinn að vinda upp á sig FRÉTTASKÝRING Þrátt fyrir tilraunina sem Orkuveita Reykjavíkur gerði og greint var frá 2015 til að fá garðyrkjubændur til að greiða sérstakt gjald fyrir hreina raforku sem framleidd væri með vatnsafli og jarðhita, þá hafa orkufyrirtækin ekki lagt í aðra slíka tilraun hér á landi fyrr en nú. Hins vegar hafa upprunavottorð verið látin fylgja innlendum orkukaupum endurgjaldslaust frá 2016. Virðist vera markmiðið að hækka orkuverð Landsvirkjun hefur nú tilkynnt sölufyrirtækjum á heildsölumarkaði raforku að frá og með árinu 2023 muni upprunaábyrgðir raforku ekki fylgja endurgjaldslaust með þeirri orku sem fyrirtækin kaupa. Afsláttur verður veittur fyrir kaupum upprunaábyrgða á næsta ári og munu fyrirtækin hafa val um framseljanlegar ábyrgðir á markaðsverði eða óframseljanlegar á föstu verði. Afslátturinn er tímabundinn og ljóst að þessi gjaldtaka fyrir „syndaaflausnir“ vegna raforkunotkunar muni leiða til hækkunar á raforkuverði sem virðist greinilega vera markmiðið. Sagt í takti við orkutilskipanir frá ESB Með því að láta upprunaábyrgðirnar ekki lengur fylgja raforkukaupum sölufyrirtækja, sem þær hafa gert frá árinu 2016, er að sögn Landsvirkjunar verið að færa fyrirkomulag sölu til samræmis við kerfið á meginlandi Evrópu. Þetta er enn einn milliliðurinn í verðmyndun raforku og samþætt­ ingu orkumarkaðar Evrópu sem framkvæmd hefur verið með reglugerðainnleiðingum, einkum í formi orkupakka. Kemur verst við landsbyggðarfólk Heimildamaður blaðamanns segir að gjaldtaka vegna upprunaábyrgða muni koma verst við þau svæði á landsbyggðinni sem byggja alla sína orkunotkun eingöngu á raforku. Kynding húsnæðis geti vegið þar þungt sem ekki er til staðar á höfuðborgarsvæðinu og öðrum stöðum sem búa við jarðhitakyndingu. Þá getur þetta líka komið mjög illa við garðyrkjustöðvar, sem eru stórnotendur á raforku, og kúabú. Skitið á tröppurnar og gerandinn sendir rukkun Sveinn A. Sæland, sem rak garð­ yrkjustöðina Espiflöt með fjölskyldu 2015, sagði þá um tilraun Orkuveitu Reykjavíkur til gjaldtöku vegna hreinleikavottorða: „Okkur var boðið að kaupa okkur frá þessari vitleysu fyrir sem nemur 5,1 eyri á kílówattstund (kWst). Þannig gætum við keypt kjarnorku og jarðefnaeldsneytið út af reikningum hjá okkur og fengið rafrænt „lógó“ inn á heimasíðuna sem segir að við séum að kaupa hreina orku. Ég var bara ekki tilbúinn að taka þátt í svona skrípaleik. (…) Einn góður maður setti fram þá samlíkingu að þetta væri eins og einhver kæmi og skiti á tröppurnar hjá manni, bankaði svo á útidyrnar og byði húsráðanda að borga viðkomandi fyrir að þrífa upp skítinn eftir sig.“ Í áformum Landsvirkjunar nú á að ganga mun lengra og gert er ráð fyrir meira en tvöfalt hærra gjaldi á kílóvattstund en Sveinn nefndi 2015. Þó er veifað þeirri gulrót að gefinn verði afsláttur á hreinorkuvottorðunum til að byrja með. Syndaaflausnir fyrir orku sem þegar hefur verið keypt Á árinu 2023 ætlar LV að bjóða afsláttarkjör. Um 77% afsláttur verður boðinn á verði upprunaábyrgða miðað við markaðsverð þeirra fyrir þeirri orku „sem þegar hefur verið keypt“ og er með afhendingu á árinu 2023. Tilboð Landsvirkjunar til Orkubús Vestfjarða hljóðar t.d. upp á að kaupa upprunaábyrgðir á 300 kr. á megawattstund (MWst) sem jafngildir 0,30 kr. á kílówattstund með allri keyptri raforku fyrir árið 2023 sem Orkubú Vestfjarða hefur fest kaup á fyrir 15. desember 2022. Eftir þennan tíma þarf að greiða fullt „markaðsverð“ sem var í byrjun desember á 1.320 (kr/MWst) = 1,32 kr/kWh. Þetta er ríflega tvöfalt hærra en það 0,51 kr. gjald sem Orkuveita Reykjavíkur ætlaði að rukka garðyrkjubændur um árið 2015. Mun kosta Vestfirðinga um 160 milljónir króna á ári Samkvæmt skýrslu starfshóps um orkumál á Vestfjörðum og skýrslu verkfræðistofunnar Eflu, fer raforkuþörf jafnt og þétt vaxandi á Vestfjörðum. Hún hefur verið um 245 gígawattstundir (GWst) á ári og búist við að hún fari á 476 GWst eftir um 13 ár, eða fyrir árið 2035. Vestfirðingar geta ekki framleitt í dag nema um helming af orkuþörf sinni og þurfa því að kaupa frá Landsvirkjun eða öðrum um 120 GWst á ári eða 120.000 MWst. Eftir árið 2023 mun Landsvirkjun væntanlega samkvæmt markaðsverði í dag, rukka vegna syndaaflausna fyrir þetta orkumagn um 158.400.000 krónur auk rukkunar fyrir orkuna sjálfa. Útilokað er talið að Orkubú Vestfjarða taki á sig aukinn kostnað upp á nær 160 milljónir á ári og því augljóst að því verður velt yfir á almenna orkukaupendur á svæðinu. Sama mun trúlega gilda um alla aðra raforkusala á landinu með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu. Stingur þetta óneitanlega í stúf við áform yfirvalda um orkuskipti í landinu og hvatningu til fólks um kaup á rafbílum. Salan hefur vakið furðu Það hefur vakið undrun landsmanna að allt frá 2011 hafa íslensk orkufyrirtæki selt hreinleika­ eða upprunavottorð á raforku til fyrirtækja Evrópu. Í skjóli þessara vottorða hafa erlend fyrirtæki skreytt sig og segjast nota hreina orku sem samt er framleidd að meirihluta með kolum, olíu, gasi og kjarnorku. Erlend fyrirtæki hafa því notað íslensku upprunavottorðin til að blekkja sína neytendur. Í staðinn hafa Íslendingar þurft að taka á sig á pappírunum losun á gróðurhúsalofttegundum og geislavirkum úrgangi vegna framleiðslu raforku í Evrópu. Þannig sagði Orkustofnun (OS) að á síðasta ári hafi íslensk raforka verið að 24% hluta framleidd með kjarnorku og 13% með jarðefnaeldsneyti, sem er í raun ósatt. Þá sagði OS að einungis 63% raforkunnar hér á landi hafi verið framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum. Verst voru áhrifin af sölu syndaaflausna árið 2018 þegar Orkustofnun sagði að einungis 11% raforku á Íslandi væri framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum. Annað, eða 89%, var sagt framleitt með jarðefnaeldsneyti og kjarnorku. Öll raforka sem framleidd er á Íslandi er notuð innanlands. Meðaltal áranna 2011 til 2021 sýndi endurnýjanlega orkuhlutann aðeins vera 39%. Þegar búið er að selja syndaaflausnir fyrir meira en 60% af orkunni úr landi, er þá líka hægt að selja Íslendingum syndaaflausnir vegna sömu orku? Hörður Kristjánsson hk.reinalds@gmail.com Í júní 2015 greindi Sveinn A. Sæland, fyrrverandi formaður Sambands garðyrkjubænda, frá tilraun Orkuveitu Reykjavíkur til að neyða garðyrkjubændur til að greiða sérstakt gjald fyrir að nota hreina íslenska raforku. Nú hefur Landsvirkjun stigið skrefið til fulls og verður ekki lengur í boði að segjast nota hreina endurnýjanlega orku nema að borga sérstaklega fyrir það. Frá árinu 2011 hefur Landsvirkjun selt upprunaábyrgðir eða „syndaaflausnir“ úr landi í stórum stíl. Með þeim hafa erlend fyrirtæki sagst framleiða sínar vörur með hreinu íslensku rafmagni, en ekki raforku sem framleidd er að stærstum hluta með kolum, olíu, gasi og kjarnorku. Orkustofnun hefur hins vegar þurft að yfirfæra samsetningu erlendu orkuframleiðslunnar í íslenska orkuframleiðslubókhaldið. Myndir / HKr. Landsvirkjun hefur nú tilkynnt sölufyrirtækjum á heildsölumarkaði raforku að frá og með árinu 2023 muni upprunaábyrgðir raforku ekki fylgja endurgjaldslaust með þeirri orku sem fyrirtækin kaupa.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.