Bændablaðið - 15.12.2022, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Orðatiltækið „vertu besta útkoman af sjálfum þér“ fer ógurlega í taugarnar á ljóninu enda telur það sig ekki þurfa að vera betri en
það er nú þegar. Að minnsta kosti passar það vel upp á að líta svo út í augum annarra. En sjálfsgagnrýni og óvissa getur nagað gat
á sálina. Á nýju ári þarf ljónið að venja sig á jákvæða sjálfsgagnrýni og leyfa sjálfum sér að blómstra til jafns við þá ímynd sem
það telur ákjósanlega út á við. Hroki og reiði í garð annarra er eitthvað sem ljónið hefur rekið sig örlítið á síðastliðna mánuði en gæti nú tekið skref
í átt til umbóta á því sviði. Kraftur nýja ársins ýtir undir sjálfstraust, hógværð og elju og ætti að auðvelda ljóninu að taka persónulegum framförum,
með hógværðina bak við eyrað. Vinsældir ljónsins verða miklar á atvinnumarkaðinum og það mjög eftirsótt. Ljónið er þó almennt afar vinsælt og
vel liðið enda skemmtikraftur af náttúrunnar hendi. Þó má ekki gleyma því að það vinnur ætíð störf sín af miklum dug og aldrei minna en 100%.
Að sama skapi má það búast við aukinni fjárhagslegri velgengni. Ástarmálin eru aldrei langt undan því ljónið á marga aðdáendur í mörgum hópum
mannlífsins. Eitthvað vefjast þó fyrir ljóninu allir þess aðdáendur því innst inni veltir ljónið því stundum fyrir sér hvort það sé í raun aðdáunar vert.
Er verið að dást að ljóninu sem hristir makkann með glæsibrag, eða felst aðdáunin í þess innra manni? Með þetta í huga gefst ljóninu tækifæri til þess
að vera einlægur og opinskár við þá sem vekja áhuga hans, í stað þess að setja á svið leikrit. Því þegar leikritinu lýkur falla tjöldin.
Ljón
Mikill kraftur og uppgangur er í merki meyjunnar árið 2023. Sjálfstraustið og getan til þess að stíga út fyrir þægindarammann
er nær óbilandi og seigla meyjunnar til þess að standa fyrir því sem hún trúir á tvöfaldast á nýju ári. Mikið verður um að meyjan
fari dýpra inn í sjálfið, leiti að því sem gerir hana að henni og taki sér tíma til þess að anda djúpt umkringd trjám eða náttúru.
Frumöflin gera meyjunni gott, s.s. eldur, vatn eða jörð og því æskilegt að heimsækja sundlaugar, fara í gönguferðir í náttúrunni eða sitja við arineld.
Sköpunarkraftur meyjunnar mun blómstra, hvort sem viðkemur lagfæringum heima við, skrifum á skáldsögu, leikriti eða með málningarpensil í
hönd. Hreyfing er meyjunni nauðsynleg en henni þykir afar notalegt að liggja í leti. Gott væri að koma sér upp þeim vana að hreyfa sig a.m.k. þrisvar
í viku, svo sem klukkustund í senn. Á árinu 2023 gerir meyjan upp ýmsa hluti og tekur í kjölfarið ákvarðanir um nýjar stefnur í sínu lífi. Meyjan er
oft heldur vanaföst, en þarf nú að spyrja sjálfa sig hvort hún vilji halda gömlum siðum eða með auknum krafti nýs árs að breyta til og hætta jafnvel
alveg vissum hlutum. Vinabönd styrkjast annaðhvort eða slitna og í lok árs 2023 á meyjan sterkan og góðan hóp vina í stað fjölmargra kunningja.
Ástin bankar upp á hjá ólofuðum meyjum, þó á varfærinn og feimnislegan máta sem styrkist er líður á árið. Þeir sem lofaðir eru mega vera vissir um
að sambandið sé á hárréttum stað og svífi um lygnan sjó reyndar alveg til ársins 2025. Þá koma upp lítils háttar verkefni sem þarf að tækla.
Meyja
Vogin fer ekki varhluta af töfrum aukins sjálfstrausts frekar en meyjan og að sama skapi styrkist hún í sínu er kemur að öryggi varðandi
líf hennar. Ástarmálin eru áberandi og nóg að gera í þeim efnum. Frjósemi vogarinnar er vel þekkt og því barneignir í kortunum fyrir
marga. Þeir sem stunda veiðar geta búist við góðum afla næstkomandi sumar og í raun má segja að vogin verði krýndur aflakóngur
stjörnumerkjanna, en að honum dragast ástvinir, auður, auk þess sem hann mun taka margar affarasælar ákvarðanir. Nokkrir erfiðleikar í einka- eða
fjölskyldulífinu hafa steðjað að yfir árið 2022, sem flytjast yfir á komandi ár, en með auknu sjálfstrausti ætti vogin að geta gert sér auðveldara fyrir í
þeim efnum. Taka meðvituð og staðföst skref í rétta átt að lausn vandamála án þess að hafa áhyggjur af mögulegum afleiðingum. Það er alltaf hægt
að ímynda sér allt hið versta og vogin er ekki saklaus í þeim efnum. Ótti ætti ekki að stjórna ákvarðanatöku, heldur þarf vogin að bera höfuðið hátt
og framkvæma það sem hún telur réttast. Voginni þykir þægilegast að hafa mikla yfirsýn og heldur því ótrauð til streitu. Slíkt getur þó valdið óþarfa
álagi og gott að leyfa öðrum að halda um stjórnartaumana af og til. Fullkomnunarárátta er einnig álagsvaldur og þyrfti að slaka á í þeim efnum.
Rólegar gönguferðir þar sem horft er út á hafið, djúpöndun og lestur góðra bóka er eitthvað sem vogin ætti að tileinka sér – og láta af allri stífni og
stjórnunaráráttu. Gott væri að gráta svolítið til að losa um sálarlífið og ekki úr vegi að hlæja þeim mun meira.
Vog
Árið sem gengur nú í garð byrjar ekki með jafn miklum lúðrablæstri eins og sporðdrekinn kysi helst – en að ári
loknu getur hann stjórnað lúðrasveit. Áætlanir og plön sporðdrekans í byrjun ársins 2023 ganga sem sagt ekki eftir
að fullu, eða ekki eins og hann hafði séð fyrir sér. Hann þarf því að leggjast undir feld og byrja upp á nýtt. Best er
að hafa hógværð að leiðarljósi og líta á málin frá fleiri hliðum en einni. Í haust sér hann svo afrakstur þrautseigju sinnar og þaðan er leiðin bara upp
á við. Mikið er um ferðalög í kortum sporðdrekans þar sem hann kynnist fleiri en einni manneskju sem mun hafa áhrif á líf hans. Sumir staldra stutt
við en aðrir lengur – en þó þarf hann að taka vel eftir því sem við hann er sagt, sama hver er. Atvinnumálin sigla jafnan sjó, eru hvorki til frekari auðs
né ama. Þó býðst sporðdrekanum áhugaverð staða í öðrum geira en hann er jafnan vanur. Sporðdrekinn þarf að muna að taka tíma til þess að kúpla
sig út af og til því annríkt verður hjá honum á fleiri sviðum en einu. Lofaðir sporðdrekar kynnast mætri hlið á maka sínum, á meðan þeir ólofuðu
enda árið dansandi uppi á borðum, einir með sjálfum sér. Eitthvað þurfa sporðdrekar að vera duglegri við að tjá sig og vera óhræddir við að segja sína
skoðun. Það býr meira í þeim en þeir vilja halda og nýtt ár ætti að veita þeim aukið traust á sjálfa sig. Svo gerir æfingin meistarann og því upplagt
að tjá sig sem allra mest.
Sporðdreki
Aukin ábyrgð litaði árið 2022 og bogmaðurinn hefur staðið sig vel í að halda þeim boltum á lofti. Fjármálin hafa
verið í forgrunni og verða áfram á jákvæðan hátt á nýju ári. Mikið af verkefnum koma á hendur bogmannsins og
með aðstoð vina og vandamanna getur hann sinnt þeim til jafns við fjölskyldulífið. Í byrjun næsta sumars verður
nokkuð um að bogmaðurinn festi ráð sitt á einn eða annan hátt, en hann hefur nú þegar velt slíkum hugmyndum fyrir sér árið með 2023. Nokkuð
er um ferðalög erlendis í kortum bogmannsins, bæði styttri og lengri ferðir, oft tengdar atvinnu. Ferðalög innanlands einskorðast við fjölskylduna
og mun bogmaðurinn hafa gaman af að koma maka sínum á óvart með rómantískum ferðum á borð við helgi hér og þar. Hvað varðar persónulegan
þankagang bogmannsins hefur hann nú skýrari línur á hvernig manneskja hann vill vera og tekur heilmörg skref á komandi ári í þá átt. Bogmaðurinn
er nokkuð þrjóskur og því er það svo að það sem hann ætlar sér, verður. Velgengni fer honum vel og hann er örlátur á að leyfa öðrum að njóta hennar
með sér. Hvort heldur með hrósi eða velgjörðum. Örlítið púsluspil verður varðandi tíma fjölskyldu annars vegar og svo einkalífs hins vegar og þarf
bogmaðurinn að vega og meta vel og vandlega hvað best er að gera hverju sinni. Við uppgjör í lok árs má bogmaðurinn enn vera stoltur af sínu en
þarf að halda áfram að æfa sig að vera besta útgáfan af sér. Eins og við flest.
Bogmaður
Eitthvað hefur verið um breytingar nú í lok árs og hefur steingeitin þurft að stíga nokkur ný skref óvissu. Lífið hefur þó
gengið sinn vanagang, enda steingeitin örugg í vananum. Með það sagt, árið 2023 (samkvæmt stöðu stjarna steingeita) er
tilvalið að leggja land undir fót og ekki einungis innanlands. Utanlandsferðir eru í kortunum og jafnvel dvöl um tíma í heitara
loftslagi sem gerir steingeitum gott. Veikindi hafa verið nokkur og gott er að breyta því um dvalarstað um tíma. Útivist er líka eitthvað sem steingeitin
mun sækja í og tengja með því sjálfa sig frumefnunum enda allra meina bót. Sambönd vina og kunningja styrkjast svo um munar og steingeitin finnur
að hún á fleiri að en hún heldur. Hugsun hennar og sýn á lífið hefur snert hjörtu margra og verður ekki lát á því á nýju ári. Steingeitin er frumkvöðull
í hugsun og veltir því gjarnan upp spurningum sem vekja aðra til umhugsunar. Gleði og glaumur eykst á árinu og steingeitin lyftir sér upp oftar en
áður. Hún gefur sér tíma til að muna eftir öllu því sem gleður hana og gott væri að gera lista yfir slíkt. Sem síðasta merki stjörnuspekinnar hefur hún
þurft að vera með yfirsýn yfir líf margra, en nú er um að gera að sleppa tökunum og njóta frekar lífsins til fullnustu. Steingeitin þarf ekki að hafa
áhyggjur af peningum enda tvöfaldast allt sem kemur í vasa hennar á nýju ári. Rétt er að geta þess að lofaðar steingeitur geta orðið fyrir tvöfeldni eða
svikum í samböndum sínum en þær ólofuðu kynnast maka úr allt öðru umhverfi en þær helst myndu halda.
Steingeit
Stjörnufræðingar víða um heim, bæði hjá NASA og eins og lesa má á vefsíðu Stjörnufræðivefsins, vilja meina
að í raun séu stjörnumerkin þrettán. Kemur það til vegna stöðu möndluls jarðar, eða pólveltunnar sem tekur um
26.000 ár og því eru stjörnumerkin sem sjá má á himni ekki lengur á sama stað og fyrir þúsundum ára. Upphaflega
höfðu Babýlóníumenn stjörnumerkin þrettán talsins og var naðurvaldi, stjörnumerki á miðbaug himins eitt þeirra. Myndgerð Naðurvalda er maður
haldandi á höggormi, samanber grísku goðsögnina, guðinn og lækninn Asklepíos. Er naðurvaldi ríkjandi frá 30. nóvember til 17. desember,
þekktur fyrir eigingirni og öfundsýki, en einnig.er hamn litríkur og skemmtilegur persónuleiki auk þess að vera afar vel gáfum gæddur.
Ef honum væri úthlutað varanlegt sæti meðal merkjanna myndu sæti hinna skarast sem svo svarar; Vatnsberi 16. febrúar til 12. mars, Fiskar 12.
mars til 18. apríl, Hrútur 18. apríl til 14. maí, Naut 14. maí til 21. júní Tvíburi 21. júní til 20. júlí, Krabbi 20. júlí til 10. ágúst, Ljón 10. ágúst
til 16. september, Meyja 16. september til 31. október, Vog 31. október til 23. nóvember, Sporðdreki 23. nóvember til 29. nóvember, Naðurvaldi
29. nóvember til 18. desember, Bogmaður 18. desember til 19. janúar, Steingeit 19. janúar til 16. febrúar. Eins og kemur hér glögglega fram eru
tímatöl stjörnumerkjanna þrettán ekki jöfn að lengd, líkt og þau tólf sem nú ríkja – en í þeim virðist sólin ríkja um mánuð í senn.
Naðurvaldi