Bændablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Áreiðanlegir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir dráttarvéla. Veldu þaulreynda
vöru frá gæðaframleiðanda.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Betra start
með Exide rafgeymum
Erum að taka niður
pantanir fyrir sumarið
Nýttu þér forkaupsafsláttinn
ef pantað er fyrir áramót
Zodiac Bombard Sunrider 5.5 og 6.5 á leiðinni sem er fullbúinn fjöldskyldu
bátur á frábæru verði eða frá kr. 2.950.000 m/vsk.
Zodiac PRO 5.5 er mest seldi RIB báturinn á Íslandi í ár. Einstök gæði og
áreiðanleiki. Grunnverð kr. 3.150.000 m/vsk.
Zodiac OPEN 4.8 er vinsælasti vatna og innfjarðarbáturinn í Evrópu í dag.
Verð kr 2.750.000v m/vsk.
Linder álbátarnir sem eru búnir að vera nær uppseldir í Evrópu síðastliðin
sumur koma eftir áramót í stærðum 400460.
Heyrðu í okkur og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
Sportbátar.is er umboðsaðili Zodiac og Linder á íslandi.
Upplýsingar á sportbatar@sportbatar.is og 760-5000
Útboð
Veiðifélag Víðidalsár í Húnaþingi óskar hér með eftir tilboði í lax- og
silungsveiði á vatnasvæði félagsins þ.e. Víðidalsá, Fitjaá og Hóp, frá og með
árinu 2024, samkvæmt útboðsskilmálum og fyrirliggjandi upplýsingum.
Útboðsgögn eru hjá Birni Magnússyni, Hólabaki, 541 Blönduósi,
formanni stjórnar Veiðifélags Víðidalsár, sími 895 - 4473 / 452- 4473,
netfang bjorn@holabak.is
Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000 kr. skilagjaldi.
Frestur til að skila tilboði rennur út laugardaginn 14. janúar 2023 kl: 13.00
Tilboðin verða opnuð þann sama dag kl: 14.00 í veiðihúsinu Tjarnarbrekku
í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Veiðifélag Víðidalsár 6. desember 2022.
F.h. stjórnar félagsins,
Björn Magnússon, formaður
Víðidalsá, Fitjaá og Hóp í Húnaþingi
Engin tilboð bárust um
innflutning á plöntum í tveimur
tollskrárnúmerum. Þrjú tilboð
bárust í innflutning á plöntum í
öðrum tollflokkum.
Engin tilboð bárust um
innflutning á blómstrandi plöntum
með knúppum eða blómum, þó
ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum
(0602.9081-9083 og 0602.9088).
Útboðið hljóðaði upp á innflutning
á 2.200 stykkjum. Sömu sögu er
að segja um tilboð um innflutning
á pottaplöntum til og með einum
metri á hæð, þó ekki kaktusar
og þykkblöðungar og plöntur
af ættkvíslinni Bromilea og
plönturnar Erica Gracilis og Calluna
í tollskrárnúmeri (0602.9093).
Útboðið hljóðaði upp á innflutning
á 3.000 stykkjum.
Tvö þúsund rósir
Þrjú tilboð bárust um innflutning
á rósum úr tollskrárnúmeri
(0603.1100), samtals 5.000
stykkjum, á meðalverðinu 61 króna
stykkið. Hæsta boð var 62 krónur
stykkið en lægsta boð var 59 krónur
stykkið. Tilboðum var tekið frá einu
fyrirtæki, Grænum markaði ehf.,
um innflutning á 2.000 stykkjum á
jafnvægisverðinu 62 krónur stykkið.
Níu þúsund tryggðarblóm
Einnig bárust þrjú tilboð um
innflutning á tryggðablómum úr
tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals
16.000 stykkjum, á meðalverðinu
53 krónur stykkið. Hæsta boð var
60 krónur stykkið en lægsta boð
var 42 krónur stykkið. Tilboðum,
um innflutning á 9.000 stykkjum á
jafnvægisverðinu 60 krónur stykkið,
var tekið frá tveimur fyrirtækjum,
Garðheimum – Gróðurvörur ehf.,
2.000 stykki og Samasem ehf., 7000
stykki.
166.250 afskorin blóm
Þrjú tilboð bárust um innflutning
á afskornum blómum og
blómknöppum sem notað er í vendi
úr tollskrárnúmerum (0603.1903,
0603.1906-1908, 0603.1911-1918
og 0603.1999), samtals 226.250
stykkjum. á meðalverðinu 37
krónur stykkið. Hæsta boð var
60 krónur stykkið en lægsta boð
var 5 krónur stykkið. Tilboði var
tekið frá þremur fyrirtækjum um
innflutning á 166.250 stykkjum á
jafnvægisverðinu 5 krónur stykkið.
Um er að ræða Garðheima –
Gróðurvörur ehf., 10. 000 stykki,
Grænn markaður, 50.000 stykki og
Samasem, 106.250 stykki. /VH
Tollkvótar vegna
innflutnings á blómum