Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 15

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 15
GUÐMUNDUR DANÍELSSON: Lokadogur. NÚ eru mörg ár síðan, ein sjö ár, það var 9. júlí 1956, sem ég lenti í kasti við fiskinn mikla. Og ég hef ekki getað gleymt þessu atviki, öðru nær, það er öllu heldur eins og ég muni það betur og betur, og allar mínar veiðiferðir síðan hef ég farið í þeirri von að ég hitti aftur þennan fisk og fengi í annað sinn að reyna mig við hann. Annars hef ég skrif- að um þetta sögu sem þið kannizt víst við, og það er ekki tilgangur minn að fara að endursegja hana. Því að hitt er frásagn- arverðara, að þessi undarlega draumkynj- aða ósk, sem ég hef ekki getað leyst mig frá eða vaxið upp úr og virðist eiga skylt við það að sitja í álögum, nú rættist hún skyndilega í gær á lokadaginn — og þó aðeins til liálfs. Við erum tveir saman og erum komnir að Ánni klukkan níu. Haustrigningarn- ar eru byrjaðar, o, en hvað suðaustan slag- viðrið ríkir einvalt og í algleymingi þenn- an dag, með söngli, dyn og súg. Fellin í vestri og norðri, þau eru öll úr sögunni, þurrkuð út, en mýrin í suðri flóir í vatni. Straumlaust og þunglynt og án farvegs seytlar regnvatnið um sölnaðan bithaga septemberdagsins, þar sem bændur og veiðimenn höfðu fáum dögum fyrr ekið jeppum sínum og traktorum þurrum hjólum, undir bláum himni og sól. Jú, enn einu sinni er ég staddur við Ána, þetta mikla fljót, sem í bláhvítum flaumi flytur alla strauma fram, berg- vötn og jökulbráð, og lætur fleiri strengi kliða en nokkur músíkant. Hér er nú vík milli tveggja holta sem teygja klettarana út í fljótið. Við efra holtið dynur vatnið fram á háum flúðum milli rauðra víðihólma og svartra dranga á víxl, en þar sem neðra holtið þrengir að, þar verður aðeins þungur straumur, afar þungur langur strengur, með sígandi aðdraganda, þar sem lygna víkurinnar endar og þungstreymið tekur við. Lífið er stutt, en Áin er löng, mér end- ist kannski ekki lífið til að kanna alla þessa veiðistaði, þetta er í þriðja skiptið sem ég kem hingað. Við stönzum á sandeyrinni fyrir botni víkurinnar, skrúfum hjólin á stengurn- ar, þræðum h'nurnar, beitum. Eg er með sænska níu feta kaststöng, hálfsjálfvirkt Mitchel spinnhjól, keypt í Grænlandi fyrir tveimur árum, og nýja átján punda girnislínu. Öngullinn er minnsta tegund laxöngla, svo að silungur allt niður í eitt pund lætur sig ekki muna um að glevpa hann. Þetta er að mínum dómi fullgildur búnaður, ég hef iðulega veitt vænan fisk, allt upp í sextán punda lax, með þessum tækjum, og sannreynt þol þeirra, það hvarflar ekki að mér að þau bregðist mér, ekki meðan nokkurri lipurð er beitt, jafnvel þó fisktirinn mikli væri annars vegar. Veiðimacurinn b
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.