Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Side 20

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Side 20
„Gefðu honum svolítið meira eftir“, kallaði eiginmaður minn, meðan hann var að reyna að brölta upp úr leðjunni, „annars slítur hann hjá þér!“ Eg trúði þessu mætavel og hugsaði nú um það eitt, að missa ekki stöngina. Toppurinn svignaði ægilega, en rétti svo úr sér, þeg- ar laxinn sneri frá hinum bakkanum. „Hjólaðu strax inn slakann á línunni!" heyrðist kallað niðri undir bakkanum. Eg stakk stangarendanum undir beltið mitt og vatt inn á hjólið eins og óð manneskja. Og viti menn, þegar laxinn tók næstu roku, tókst mér að halda hon- um miklu nær mínum bakka en áður. Mér fór að aukast sjálftraust og hljóp kapp í kinn af átökunum við þennan risa. Nú var eiginmaðurinn loksins kominn upp á bakkann til mín. „Þú hefur staðið þig ágætlega", sagði hann, „og nú skal ég taka við.“ En ég fylgdist vel með lín- unni og var viðbúin að vinda inn slaka strax, ef á þyrfti að halda! „Nei, elskan“, svaraði ég. „Lofaðu mér að halda áfram.“ Mig hafði alltaf langað til að veiða verulega fjörmikinn lax, en þótt ég reyndi stundum, hafði mér aldrei heppnast að setja í neinn, þrátt fyrir hávísindalega tilsögn eiginmanns míns. „En þetta er gullfallegur fiskur", maldaði hann í móinn. „Þú mátt ekki missa hann.“ En ég hafði tekið ákvörðun. Það var svo heillandi að horfa á, hvernig línan klauf vatnið niður að laxinum eins og hárbeittur örvaroddur. Eg þurfti ekkert annað að gera en halda við laxinn og landa honum svo upp á eigin spítur. Eiginmaður minn gafst upp og fór að losa um háfinn. Með sjálfri mér óskaði ég þess, að von hans brygðist ekki, en laxinn gerði ekkert hlé á baráttunni og neyddi mig til að einbeita mér að átök- unum við sig. Hann rauk nú niður ána langan sprett, en í þetta sinn studdi ég fingrinum dálítið á lijólið meðan línan rann út og þyngdi þannig á honum. Eg varð altekin af hrifningu yfir þrótti þessa undurfagra fisks, en þegar hann sneri við næst, dró ég hann langleiðina til mín aftur. „Nú er hann farinn að þreytast“. sagði maðurinn minn og færði sig niður að ánni. Eg fann gegnum granna, titrandi línuna, að kraftar fangans voru að fjara út, og ég fór að vinda hægt inn á hjólið — já, svo undnrhægt. Eg fann raunveru- lega fara um mig sælustraum veiði- mannsins, þegar fiskurinn var að slá með sporðinum í vatnsskorpunni uppi undir landinu og sólin glampaði á silfurfögr- um búknum. Maðurinn minn beygði sig, til þess að vera viðbúinn að renna háfnum undir laxinn. Við steinþögðum bæði meðan ég var að þoka laxinum í átt til mannsins. Skyndilega náði hann til hans og að andartaki liðnu lá silfurgljáandi 20 punda lax þarna í háfnum á bakkanum. Eg lét stöngina detta úr höndum mér, hljóp til mannsins míns og hrópaði: „Þetta gat ég, þetta gat ég!“ Eg leit á hendur mínar. Þær voru rauðar og þrútn- ar, en mér var sama um það. Eg hafði veitt — eða a. m. k.landað mínum fyrsta laxi. En skyndilega var allur æsingurinn úr mér og ég settist. Eg sá að maðurinn minn fór að leita í veiðitöskunni. Að !0 Veiðimaðurins

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.