Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Qupperneq 25

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Qupperneq 25
og sagan greinir frá. Þeir, sem vilja kynna sér það betur, geta llett upp á 60. kafla Grettissögu. Englendingurinn virðist hafa skilið þessa skynjun sína á þann hátt, sem lýst var hér að framan. — Hann spurði, hvort einhverntíma hefði verið barizt þarna. Hann hélt ekki að liann liefði orðið var við drauga, í venjulegum skilningi, enda er harla ótrúlegt að Grettir sé að berjast við þá Þórarin á Ökrum og Þórð í Hítar- nesi enn þann dag í dag. En ég er ekki eins næmur og Englend- ingurinn við Hítará. Eg finn ekki að hér hafi orðið mannvíg, enda óvíst að svo hafi verið, en ég veit að laxavíg mörg hafa átt sér stað. Eg sé samt ekkert, og er raunar feginn, því að síðan laxinn hætti að stökkva, er þögnin og kvrrðin svo alger, að það mundi vera óþægileg truflun, að sjá allt í einu nrann vera að þreyta lax, með öllum þeim tilburðum og bægslagangi, senr því eru stundum samfara. — Það er enn logn á hylnum. Eg þarf enn að bíða eftir því, að skugg- inn komi á hann. Nú hugsar eflaust einhver, sem les: — Af hverju hangirðu alltaf þarna á sama stað, maður? Hvers vegna reynirðu ekki einhvers staðar þar sem von er um að fá lax? Það hljóta að vera einhverjir aðrir staðir, þar sem meiri líkur eru fyrir veiði en þarna. — Já, það er eflaust rétt — en hér líður mér vel og hér ætla ég að vera til kvölds. Það er stutt síðan ég settist, þótt þeim, sem lesa þessar hugleiðingar, kunni að þykja það langt. En það er bezt að fara að athuga flug- urnar. Hvað á ég, að bjóða honum, þeg- ar þar að kemur? Þegar sólin er farin af hylnum breytast viðhorfin. Þá tekur hann ef til vill einhverja af flugunum, sem hann leit ekki við meðan bjart var — af því að þá vildi hann ekkert. Við skulum, sjá hvað setur. Ekkert liggur á. Það eru enn tæpir tveir tímar, þangað til ég á að hætta. Eg get verið rólegur. Hann er steinhættur að stökkva, engin hreyfing í hylnum. Það gæti verið góðs viti. Eg fer að líta í fluguboxin mín, sem liggja þarna opin við hliðina á mér. Hér er fluga, sem oft hefur reynzt mér vel í þessum hyl. Morguninn góða fékk ég alla laxana rnína á hana, og oft hef ég rekið upp í lax hérna á ýmsar stærðir af henni endranær. Hvaða stærð eigum við að segja? — Nr. 3, tvíkrækju, svarar ein- hver innri rödd, en skynsemin þverneit- ar að hlýða. í svona litlu vatni er nr. 3 alltof stór fluga — og auk þess tvíkrækja. Og skynsemin hélt áfram: — Þú hefur oft veitt vel á Blue Doctor nr. 3, enn í allt öðru vatni og við gersamlega ólík skil- yrði. Hugsaðu þinn gang! Aftur svaraði hin röddin: — Hlust- aðu ekki á þetta, sem þið kallið skynsemi í laxveiði. Það er ekki til. Nú — það er þó hart, svaraði ég, með sjálfum mér. Hverju á þá að hlýða? — „Mér“, svaraði röddin. — Hver ert þú? spurði ég, þótt ég kannaðist raunar við hana, því að hún hafði stundum talað svona til mín áður. En ég vildi í lengstu lög halda mig við skynsemina sem leiðarljós. — Gerðu eins og ég segi þér. Þú átt um tvennt að velja: að hlýða mér eða koma heim í kvöld með öngulinn á Vf.iðimaðurinn 15

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.