Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Qupperneq 30
ast, svo að furðu sætir. Eg efast um að
annað fólk hafi jafn mikið næmi í fingur-
gómunum og ég eða jafnfullkomna
heyrn. Hið minnsta hljóð, sem annað
venjulegt fólk heyrir ekki, vekur hjá
mér ákveðna kennd. Það vekur mig til
umhugsunar um, hvaða hljóð þetta er,
hvaðan það komi og hvernig á því
standi. Með tíð og tíma hefur mér orðið
ágengt að ráða orsakasambönd mismun-
andi hljóða og setja þau í samband við
orsök og afleiðing, uppruna og eðli. Á
þennan hátt ræð ég með sjálfum mér
ýmsar gátur, sem annars væru mér huld-
ar. Þannig veit ég löngu fvrir hvenær
hvessir hér á bænum. Eg heyri veður-
dyninn, þegar hann leikur um fjalls-
eggjarnar, sem mér er sagt að séu hérna
fyrir sunnan bæinn, og ég heyri kveð-
anda hans færast í aukana, unz sjálft fár-
viðrið skellur á. Eg heyri þegar saum-
nál fellur á gólfið, enda þótt aðrir verði
þess ekki varir. Eg heyri hvar hún dettur
og geng þar að henni vísri, enda þótt
sjáandi fólk leiti hennar og finni ekki.
Eg heyri niðinn í ánni og sog öldunnar,
og þegar ég drýp hendi niður í streym-
andi vatn eða hvika báru, leita ég um
leið orsaka þessara undra. Við það opnast
mér nýr heimur og ég verð þátttakandi
í mikilúðleik tilverunnar, þótt í myrkri
sé.
Næmi mitt er líka næsta óskeikult. Eg
hafði gaman af útreiðum, var talinn
reiðgikkur og hafði hið mesta yndi af
þeysireið. En fólk skildi það ekki, að þeg-
ar ég kom að hliði eða þegar ég reið fram
með klettum, fann ég það og sagði sam-
ferðafólkinu frá því. Eg veit ekki sjálfur,
hvernig á þessu stendur, en líklega mun
endurvarp loftsins eða einhver tegund
bergmáls, sem öðrum er hulið, vera
skýringin á þessu fyrirbæri.“
Þannig lýsti Þórður á Mófellsstöðum
skynjun sinni á umhverfinu Allir sem
þekktu hann og umgengust, mundu
votta að þar er hvert orð satt. Hann
sannaði það líka sjálfur í smíðastofunni.
Lítill vafi er á því, að Þórður hefði get-
að komizt upp á íag með að veiða á
stöng, átta sig á veiðistöðum og um-
hverfi þeirra. Má jafnvel hugsa sér að
hann hefði að sumu leyti orðið skyggn-
ari á eðli árinnar og íbúa hennar en
margir, sem sjáandi eru.
V. M.
Kastkenrisla
S.V.F.B.
KASTÆFINGAR S.V.F.R innanhúss
í vetur verða í KR-húsinu til áramóta
á laugardögum kl. 12—13.30.
Væntanlegir þátttakendur tilkynni
þátttöku sem allra fyrst til einhvers neð-
anskráðra kastnefndarmanna.
Halldór Erlendsson, sími 18382.
Jóhann Þorsteinsson, sími 37486.
Hrafn Einarsson, sími 33159.
Árelíus Hagvaag, sími 23056.
Sigbj. Eiríksson, sími 34205.
Leitast verður við að hafa færa leið-
beinendur til aðstoðar þeim er þess óska.
Frd kennslu- og kastnefnd
S. V. F. R.
20
Veiðimaðurinn