Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 32

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 32
með einu orði. Og þegar hinir vísu feð- ur hætta sér ekki út á vettvang röksemd- anna, hver er þá ég, að ég fari að hella yfir menn mínum skoðunum? Nei, það er víst öruggast að halda sig við hið gamla og góða, skozka orðtak „back it both ways“ — m. ö. o. hér er ekkert sannað. Enn sem komið er vitum við t. d. sama og ekkert um næringarsvæði laxins í hafinu. Fjöldi fiska hefur verið merkt- ur í söltu vatni og veiðst svo aftur ann- aðhvort í einhverri á eða í sjó, en þeir síðarnefndu hafa allir veiðst svo nærri landi, að auðsætt má vera, að þeir hafa verið á leið heim í ána. Svæðin þar sem þeir dvöldu, frá einu og upp í fjögur ár, eru ennþá ófundin. Menzis sagði í bókinni The Salmon: „Fullyrða má, að annaðhvort fer hann á einhver hafsvæði þar sem aldrei er veitt, eða hann kann einhver ráð, sem duga honum til þess, að hann veiðist því nær aldrei, þrátt fyrir alla veiðitækni nútím- ans . . . því eins og vér vitum, kemur það örsjaldan fyrir að lax veiðist í teljandi fjarlægð frá ströndinni." Ein athyglisverð hugmynd hefur kom- ið fram, en hún er á þá leið, að laxinn úr ánum í Vestur-Evrópu og Norður- Ameríku eigi sameiginlegt næringar- svæði einhvers staðar í Norður-Atlants- hafi.*) Flestir sérfræðingar eru sammála um að bæði góð og mögur ár komi á birgðasvæðum laxins, eftir því hvort skilyrðin í sjónum séu hagstæð eða öfugt. Og það hefur hvað eftir annað fengist *) Já, jafnvel norður undir ísnum. — Þýð. staðfezt, að áhrifin á stofnana beggja megin hafsins eru mjög svipuð. Önnur spurning, sem við erum enn að glíma við, er sú, hvað ákvarði tímalengd- ina, sem laxinn er í sjó. Hvers vegna eru sumir aðeins rúmt ár, aðrir fjögur og einstöku laxar fimm ár? Tvær kenning- ar um þetta atriði hafa komið fram, en hvorug þeirra stenzt nákvæma gagnrýni. Sú fyrri er kynþroskinn, þ. e. að laxinn dvelji í sjónum þangað til hrygningar- hvötin reki hann af stað upp í ána. En er hægt að færa fyrir því skynsamleg rök, að „the springer", svokallaður. sem stundum gengur upp í ána í nóvember, eða fullu ári áður en hann hrygnir, sé rekinn áfram af kynhvötinni? Jafnvel þeir tugir þúsunda, sem leggja af stað upp í árnar í janúar og febrúar, geta tæplega verið undir tímgunaráhrifum, því að hrogn hrygnurnar eru þá á stærð við lítinn títuprjónshaus, og í hængnum sést ekki vottur af svilum fyrr en að mánuðum liðnum. Hin kenningin er sú, að laxinn sitji við nægtaborð hafsins þangað til hann sé bókstaflega svo „fullnærður", að hann geti ekki melt meira. Vér vitum að hann tekur hraustlega til matar síns þegar úr nógu er að moða. Calderwood getur þess, að 8 síldar hafi fundist í maga eins, sem togari veiddi. En matarbirgðir hafsins virðast vera breytilegar mjög frá ári til árs, og ef til vill eftir svæðum, því að sum árin er talsverður hluti af þeim laxi, sem veiðist, langt frá því að vera feitur, getur jafnvel ekki talist í sæmilegum holdum. Eg hef séð nýgengna laxa, bæði sem hafa verið ár í sjó og meira — veidda á miðju sumri — er menn hefðu 22 Veiðimabuxinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.