Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Page 33

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Page 33
sleppt í ána aftur sem hoplaxi, ef þeir hefðu veiðst t. d. í febrúar eða marz. Svo magrir voru þeir. Eg verð alltaf jafnhissa þegar ég sé hann skjóta upp kollinum í veiðiritum með meira eða minna reglulegu millibili, þennan eldgamla „brandara": „Nærist laxinn á fersku vatni?“ Og svör- in við þessu taka út yfir allan þjófa- bálk! Seint á árinu 1959 las ég tvö þau vitlausustu svör, sem ég nokkurntíma hef séð. Annað þeirra var þannig, að það væri sannað, að laxinn æti að staðaldri sjólús í ánni! Þegar við athugum að sjó- lúsin kemst aðeins upp í ána með því að sjúga sig fasta á laxinn sjálfan og að þessi sníkjudýr lifa aðeins fáeina daga eftir að gestgjafi þeirra er genginn úr sjó — hvaðan á hann þá að fá reglulegar máltíðir af þessari fæðu? í hinu svarinu var því haldið fram, að jafnvel meðan laxinn væri í sjó, gleypti hann aldrei fasta fæðu, heldur sýgi hann aðeins safann úr ætinu og spýtti því svo út úr sér! Sagðist sá, sem ritaði, hafa séð fiska gera þetta. Samkvæmt minni skoðun er munnur fisksins þannig skapaður, að hann getur með engu móti sogið safann úr ein- hverju, sem hann hefur gripið og spýtt svo afoianoiinum út úr sér. Það er a. m. k. staðreynd, að alls konar tegundir af æti finnast í löxum, sem veiðast í sjó. Sjálfur veit ég tvö dæmi þess, að í maga laxa, sem veiddust rétt ofan við sjávarmörk, fundust hálfmeltar leyfar af fiski, sem virtist hafa verið síld. Calderwood nefnir fjögur dæmi þess, að fiskar hafi fundizt í maga stangveiddra laxa. Tveir þeirra höfðu gleypt sinn urriðann hvor, í þeim þriðja var bleikja og þeim fjórða hvorki meira né minna en fimm tveggja ára seiði. Ennfremur má geta þess, að margar heimildir eru til um það, að laxar hafi sézt taka til matar síns í stórum gerjum af vorflugu. Artliur Wood segist eitt sinn hafa séð yfir hundrað laxa láta eins og stóra, gráðuga urriða í flugnageri af tegundinni March Brown. Og hann veiddi 33 á eftirlíkingu þessarar flugu. Allt mælir þetta gegn þeirri fullyrð- ingu dr. J. W. Jones, á fyrstu síðunni í liinni nýju bók hans, The Salmon, að lax nærist aldrei í fersku vatni. Aldrei eða alltaf eru bæði jafnhættuleg orð þeg- ar við erum að skrifa eða tala um laxinn. Sagði ekki Chaytor hinn ódauðlegi: „Eitt er öldungis víst um laxinn — þú getur aldrei vitað, hvað hann rnuni gera né hvenær hann gerir það.“ Sú hugmynd, að laxinn geti ekki melt fæðu eftir að hann er kominn aftur í ferskt vatn, á rætur sínar að rekja alla leið til ársins 1898, en þá varð rannsókn- armanni einum skyssa á í athugunum sínum. Hann hélt að vissar breytingar, sem hann tók eftir á innveggjum garna í dauðum laxi, væri það, sem hann kallaði Veiðimenn! Orin ganga rétt í veiðiferðinni, ef þið látið okkur gera við þau. Sigurður Sivertsen úrsmlBavinnustofa. Vesturgötu 16. Simi 18711. Veiðimaburinn 23

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.