Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 34

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 34
slímhúðarlos, og ylli því, að fiskurinn gæti ekki tekið fæðu. Þessi vitleysa var leiðrétt mjög fljótlega eftir að hún kom fram, en leiðréttingin hefur aldrei orðið hess memua: að kveða vitleysuna niður að fullu. Svarið við fyrrgreindri spurningu er ofur einfalt: Laxinn tekur stundum fæðu í fersku vatni, en ekki reglulega eða neitt í líkingu við það sem hann gerir í sjó. Þetta er auðsjáanlega ráð- stöfun náttúrunnar, sem alltaf er að hugsa um viðhald tegundanna, því að þyrfti laxinn alltaf að vera að éta í ánni, mundi allt ungviði, bæði af hans eigin stofni og öðrum tegundum, ganga til þurrðar í þeim ám, sem lax gengur í. En hvers vegna tekur laxinn þá svo fúslega flugur okkar og annað agn, ef hann er ekki svangur? Svarið við því et einnig áreiðanlega svo auðvelt, að það et óþarfi að fara að búa sér til einhverjar þokukenndar fræðisetningar: Hann gríp- ur agnið í reiði, í varnarskyni vegna seið- anna, sem hann á í vændum eða af ein- hverri skyldri ástæðu. Hann er ránfiskur og glatar ekki því eðli að grípa bráðina eða það, sem honum sýrist vera lifandi. Sú staðreynd að nýgenginn lax tekur yfir leitt betur, styrkir þessa skoðun. Hvers vegna myndast þessi ógnarljóti krókur eða hnúður á neðri skolti hæng- anna þegar líður að hrygningunni? Sem vopn er hann vita gagnslaus, því að hann kemur í veg fyrir að fiskurinn geti lokað munninum. Hið sanna er að lax- ar ráðast aldrei hvor á annan við got holurnar, þótt Arthur Hutton fullyrði að hængarnir séu í sífelldum áflogum og bæti því við, „að ekki sé óalgengt að sjá að einn hængur drepi annan." P. D. Malloch varði miklum tíma til þess að athuga laxinn í Tay. Hann seg- ist aldrei hafa séð neitt, sem líktist áflog- um hænga. Og í þau mörgu skipti, sem ég hef horft á lax hrygna, mjög nálægt mér, í ýmsum ám í Devon, hef ég aldrei séð áflog, endaþótt hængur sá, sem fylgdi hrygnunni, bægði keppinautnum frá. Mér er minnisstætt bréf, sem ég las einu sinni. Það var frá manni, sem sagðist loksins hafa uppgötvað til hvers krókur- inn væri á hængnum. Kvað hann laxinn nota krókinn þannig, að hann biti um sporð keppinauta, sem gerðust of nær- göngulir, og drægi þá undan straumi frá hrygnunni. Hann fullyrti að hann hefði sjálfur séð þetta gerast. V. M. þýddi. Bdðir góðir. MAÐUR nokkur átti leið yfir brú og sá veiði- mann þar skammt frá. Hann kallaði til hans og spurði: Ertu að fá hann? — Eg er nú hræddur um það, svaraði veiði- maðurinn. — Eg fékk 40 stærðar silunga hérna i hylnum í gær, og 22 hef ég fengið það sem af er í dag. — Veiztu hver ég er? spurði aðkomumaðurinn. — Nei, það veit ég því miður ekki. Eg man ekki til að við höfum sést áður. — Eg á allt land héma að ánni og þar af leiðandi alla silungana, sem þú hefur veitt i óleyfi. — En veist þú hver ég er? spurði veiðimaðurinn. — Nei, svaraði landeigandinn, en það þarf ég nauðsynlega að fá að vita. — Það er velkomið, svaraði veiðimaðurinn. — Eg er lýgnasti maður á landinu. 24 Veidimaourinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.