Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Page 36
vona yfirvöldin að geta á næstu mánuð-
um bætt að minnsta kosti 100 slökkvi-
bílum við þá 450, sem fyrir hendi eru,
en tala sú er geigvænlega lág í borg, sem
telur um 10 milljónir íbúa. Sérstök
nefnd í Tokyo, sem fjallar um jarð-
skjálftahættu, hefur varað við því, að um
21.000 hús í höfuðborginni yrðu ægilegu
eldhafi að bráð, ef um sterkan jarð-
skjálftakipp yrði að ræða.
JAPANIR ERU TAUGAÓSTYRKIR.
Það er til skiljanleg skýring á allri
þessari ókyrrð, þótt ekki sé leitað til
hleypidóma alþýðunnar né náttúrufræði-
legra athugana. Fólk kann að álíta það
uggvænlegan fyrirboða, að enginn mikill
jarðskjálftakippur hefur verið skráður í
Japan síðan Hokkaido-kippurinn kom
árið 1952, en tveimur árum þar á undan
kom mikli jarðskjálftinn í Fukni og fjór-
um árum á undan mikli jarðskjálftinn í
Nankai. Auðsýnilega er fólk í „Landi
jarðskjálftanna“ ekki vant svo löngum
hléum og verður taugaóstyrkt, þegar þau
verða nokkuð löng.
Japanskir jarðskjálftafræðingar hafa
sannarlega aðstöðu til þess að vita meira
um jarðskjálfta en flestir hinra heppnari
starfsbræðra þeirra erlendis. Þeir láta í
Ijós þá von, að þeir muni líklega um
árið 1970 vera farnir að geta sagt fyrir
um meiri háttar yfirvofandi jarðskjálfta
með tveggja til þriggja daga fyrirvara.
Dr. T. Hagiwara við Tokyoháskóla,
einn af fjölfróðustu jarðskjálftafræðing-
um heimsins, vonar, að slíkt verði mögu-
legt með því, að komið verði upp mæl-
ingastöðum um land allt, og eiga þær að
mæla breytingar á jarðskorpunni. Sam-
kvæmt áliti dr. Hagiwara verða þessar
breytingar allt að 10-—12 mílur undir
yfirborði jarðar, en þær eru undanfari
jarðskjálfta og eftir þeim er hægt að segja
fyrir um væntanlegar jarðhræringar á
yfirborðinu.
Rannsóknir prófessors Hagiwara eru
grundvallaðar á þeirri kenningu, sem
almenn er meðal japanskra vísinda-
manna, að jarðskjálftar orsakist af fyrir-
brigði, sem hingað til hefur ekki fylli-
lega skilizt, þ. e. að um sé að ræða
steinmyndanir, sem ýmist þenjist út eða
dragist saman djúpt í jarðskorpunni.
Margir bandarískir jarðskjálftafræð-
ingar draga þessa skoðun í efa, en þeir
álíta, að jarðskjálftahræringar rnuni
fremur vera afleiðingar af sprungum,
sem myndast, og valda riðlun á steinlög-
um í jarðskorpunni, og sé erfitt að sjá
slíkar breytingar fyrir.
(Tímaritið Úrval).
Fékk lax á skaki.
FRÁ því var skýrt í einhverju dag-
blaðinu í Reykjavík, nú í sumar, að
maður í Bolungarvík, Valdimar Björns-
son að nafni, hefði fengið 10 punda lax
á handfæri. Það mun vera mjög sjald-
gæft, að lax veiðist á handfæri, þó hefur
það komið fyrir áður hér við land, sbr.
frásögn í 50. hefti Veiðimannsins um 8 p.
lax, er veiddist á handfæri vestur undir
Jökli árið 1959. Væri fróðlegt að fá fréttir
um það, ef einhver af lesendum ritsins
vissi til að það hefði komið fyrir oftar.
26
Veiðimadurinn