Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Side 37

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Side 37
Frelsun mín frá stangveiði. FRÁSAGNIR veiðimanna um fyrstu veiði- ferðina eru venjulega nokkuð hástemdar lýsing- ar á þeim ævintýraheimi, sem þeir hafa þá kynnst, stundum að viðbættu þakklæti til þeirra manna, sem opnuðu þeim ríki „hinnar göfugu íþróttar". Það er því tilbreyting að lesa einu sinni frá- sögn manns, sem fékk þá reynslu af fyrstu veiðiferðinni, að hann ákvað að snerta aldrei veiðistöng framar. Greinin er þýdd og endur- sögð úr enska ritinu ,,The Fishing Gasette S: Sea Angler. Höfundurinn er einhver C. S. Clarke. Ritstj. „ÞÚ ert auðvitað stangaveiðimaður. Ég þarf ekki að spyrja að því?“ „Nei, slíku deyfðardútli hef ég ekki áhuga fyrir“. „Nú, það er auðheyrt að þú hefur ekki reynt það“. „Nei, en ég hef horft á aðra reyna það“. Hve oft verðum við ekki heyrnarvottar að orðaskiptum eitthvað á þe'ssa leið! Jú, ég var í hópi þeirra, sem héldu að þessi þrótt — þótt Guð megi vita, hvers vegna það er kallað íþrótt —væri deyfðardútl. En tímarnir breyttust og ég með þeim. Tildrög þess voru sem hér segir: Ég var þá í Dartmoor, hafði dottið í hug að leita úr skarkala borgarinnar, og hvíla mig í sveitasælunni. Ég lá aftur á bak á lyngmóa, starði upp í heiðan him- ininn og horfði á engjalævirkja, sem flaug í átt frá mér og fyllti loftið með sínum hryglukennda söng. Hann var allt- af að minnka, unz hann var orðinn eins og örlítill depill, en þá stanzaði hann skyndilega, kom hrapandi til jarðar, eins og hann hefði geispað golunni, en breiddi svo úr vængjunum nokkra metra frá jörðu og stakk sér léttilega niður í lyng- ið. En „landtaka“ mín heppnaðist ekki svona vel! Ég féll til jarðar með „dynk“ vegna þess að ég heyrði allt í einu bölv- að á ósvikinni ensku, en slíkt fannst mér vera helgispjöll á þessum stað. Fullkomin einbeiting. Ég settist upp og sá, að nokkra metra frá mér stóð maðurinn, sem svo illilega hafði truflað dagdrauma mína með þessu ruddalega orðbragði. Hann hafði ekki séð mig, og mér virt- ist ólíklegt að hann yrði mín var, eftir einbeitingarsvipnum á andliti hans að dæma. Þetta var veðurbarið andlit með furðulega mikið yfirskegg, og undir dröfnóttum veiðihattinum, sem slútti langt niður á ennið, sást í kafloðnar augabrýr og u'ndir þeim lítil, þrútin augu, sem eingöngu var beint að við- fangsefninu. Það var áreiðanlega veiðistöng, sem maðurinn sveiflaði svona fram og aftur með þessum alvörusvip! En hvers vegna sóaði hann svona miklum kröftum í þetta? Jæja, hann var kannski snilling- 27 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.