Læknablaðið - 01.09.2022, Side 20
396 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
framkvæmdar á Landspítala. Aðgerðirnar felast aðallega í hluta-
brottnámi á lifur en í vissum tilvikum eru gerðar lifrarígræðslur.4
Lifrarígræðslur eru ekki framkvæmdar á Íslandi og sjúklingar
sem þurfa slíka aðgerð eru sendir til Svíþjóðar.5 Hlutabrottnám á
æxli í lifur er kjörmeðferð við lifrarfrumukrabbameini, þegar por-
tal háþrýstingur er ekki til staðar, sem og við gallvega- og gall-
blöðrukrabbameini.6 Einnig er hlutabrottnám framkvæmt vegna
meinvarpa í lifur.2 Við hlutabrottnám er æxlið ásamt aðlægum
heilbrigðum lifrarvef fjarlægt svo fríar skurðbrúnir náist, en mis-
munandi kröfur eru um fjarlægð frá skurðbrún eftir því hvort um
er að ræða frumæxli, gallblöðrukrabbamein eða meinvarp.7,8
Hlutabrottnámi á lifur má skipta í líffærafræðilegt (anatomical res-
ection) og ekki líffærafræðilegt (non-anatomical resection). Það er
betri valkostur að fjarlægja heila geira fyrir lifrarfrumu- og gall-
vegakrabbamein með tilliti til lifunar9 en ólíffærafræðilegar að-
gerðir eru ákjósanlegri á meinvörpum.10 Annar meðferðar-
möguleiki er hitameðferð, til dæmis radio frequency ablation (RFA)
sem er staðbundin meðferð þar sem sérstakri nál er komið fyrir í
æxlinu og það hitað í 50-100°C. Þá aðferð má nota á eitt eða tvö stök
lifraræxli ef þau eru minni en 4 cm í þvermál.11 Samráðsfundir eru
vettvangur lækna með mismunandi sérhæfingu í ákveðnum sjúk-
dómum til að ræða einstaka sjúklinga og gefa ráðleggingar varð-
andi meðferð. Mikilvægt er að allir sem greinast með krabbamein
séu ræddir á slíkum fundum svo allir einstaklingar fái jafnt mat og
bestu meðferð. Sýnt hefur verið fram á að horfur sjúklinga sem eru
teknir fyrir á slíkum fundum eru betri en þeirra sem ekki eru
ræddir.12,13 Á Landspítala eru slíkir fundir haldnir vikulega og þar
ræddir nýgreindir sjúklingar sem og sjúklingar sem fengið hafa
meðferð, krabbameinslyfjameðferð og/eða skurðaðgerð, og sam-
eiginleg ákvörðun tekin um framhald meðferðar.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig greiningu,
meðferð og horfum sjúklinga með krabbamein eða meinvörp í lif-
ur, gallblöðru og gallgöngum innan lifrar var háttað á tímabilinu
2013-2017 með samanburði við sambærilegar upplýsingar frá Sví-
þjóð, með sérstakri áherslu á skurðmeðferð.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn þar sem farið var yfir sjúklinga
sem greindust með krabbamein í lifur, gallgöngum innan lifrar,
gallblöðru eða meinvarp í lifur og gengust undir skurðaðgerð á
Landspítala frá 1. janúar 2013 til og með 31. desember 2017. Sjúk-
lingar með gallblöðrukrabbamein voru hafðir með þar sem skurð-
meðferðin felst í hlutabrottnámi á lifur ásamt því að gallblaðra er
fjarlægð.
Listi yfir sjúklinga sem greindust með krabbamein í lifur, gall-
göngum, gallblöðru eða meinvarp í lifur var fenginn hjá Krabba-
meinsskrá Íslands. Upplýsingar um skurðaðgerð á lifur voru
fengnar úr skráningarkerfi Landspítala. Klínískar upplýsingar um
greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinganna fengust úr
sjúkraskrár kerfi Landspítala, aðgerðalýsingum og svæfinga-
skýrslum ásamt niðurstöðum myndrannsókna, vefjameinafræði
og blóðprufum. Breyturnar voru færðar inn í þar til gerð gæða-
skráningareyðublöð í Heilsugátt Landspítala sem voru útbúin í
tengslum við rannsóknina. Blöðin eru þýðingar á sambærilegum
blöðum úr sænsku gæðaskránni.14 Fylgikvillar í og eftir aðgerð
voru skráðir og flokkaðir samkvæmt Clavien-Dindo-flokkun.15
Samanburður var gerður við upplýsingar um sjúklinga í Sví-
þjóð sem undirgengust sambærilegar aðgerðir, við sömu sjúkdóm-
um, með samanburði við útgefnar skýrslur frá sænsku krabba-
meinsskránni sem eru aðgengilegar á netinu.14
Úr skráningareyðublöðunum voru ópersónugreinanlegar upp-
lýsingar dregnar fram á Microsoft Excel-skjali og forritið R notað
til tölfræðiúrvinnslu.16 Kí-kvaðrat-próf eða Fisher-exact-próf var
framkvæmt í R til að meta marktækni og voru niðurstöður taldar
tölfræðilega marktækar ef p-gildi var undir 0,05.
Mynd 1. Fjöldi sjúklinga sem greindust með krabbamein eða meinvörp í lifur á Íslandi á árunum 2013-2017, flæðiritið sýnir
hversu margir fóru í aðgerð.
*CRC meinvörp: meinvörp frá ristils- og endaþarmskrabbameinum.
**Önnur krabbamein í lifur: Æðasarkmein (angiosarcoma) n=1, óskilgreint sarkmein n=2, blönduð mynd af HCC og iCCA n=2, ósér-
hæft lifrarkrabbamein n=1.