Læknablaðið - 01.09.2022, Síða 29
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 405
Y F I R L I T S G R E I N
fagaðila í 5-8 klukkustundir eftir gjöf lyfsins. Rannsakendur við
Johns Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum hafa tekið mikilvæg
skref í rannsóknum á þessari meðferð á síðustu árum og var þar
stofnuð sérstök rannsóknareining árið 2019 til að sinna þessum
rannsóknum. Svipuð skref hafa verið stigin í Kings College við
South -London and Maudsley NHS Trust á síðustu árum.21,22 Ný-
birt grein frá rannsóknarhópnum við Johns Hopkins-háskólann,
þar sem 27 einstaklingum með langvinnt þunglyndi var fylgt
eftir, sýndi enn marktæk áhrif meðferðar þegar 12 mánuðir voru
liðnir, en 75% voru þá með að minnsta kosti helmings minnkun
einkenna og 58% voru í fullum bata.23 Psilocybin-meðferð ásamt
samhliða stuðningi fagaðila í meðferð þunglyndis telst þó enn á
rannsóknarstigi en ljóst er að talsverðar væntingar eru gerðar til
hennar út frá þeim gögnum sem þegar liggja fyrir og verða rakin
í þessari yfirlitsgrein.
Saga psilocybin-notkunar
Psilocybin er hugbreytandi efni sem finna má í svokölluðum of-
skynjunarsveppum. Til eru heimildir um notkun ofskynjunar-
sveppa í helgisiðum í Mexíkó fyrir um 3000 árum og þeir hafa
víða verið notaðir sem skynbreytandi og hugvíkkandi vímu-
efni.24,25 Áhugi á ofskynjunarsveppum jókst mjög um miðja síðustu
öld og voru þeir formlega kynntir til sögunnar í vestrænum ríkj-
um sem möguleg meðferð við geðröskunum af Robert Wasson árið
1957. Roger Heim var síðan sá sem einangraði psilocybin úr svepp-
um árið 1958 og hóf framleiðslu þess sjálfur ári síðar.26 Í kjölfarið
voru gerðar ýmsar rannsóknir á áhrifum psilocybins á geðraskan-
ir.27 Á sama tíma jókst notkun ofskynjunarsveppa sem vímugjafa
þar til ákveðið var að sporna gegn því með því að flokka þá sem
fíkniefni, „Schedule I drug“, árið 1970 í Bandaríkjunum.28 Í kjölfar-
ið var fjöldi rannsókna á áhrifum psilocybins á menn stöðvaður
og áhugi á því dvínaði. Í lok síðustu aldar vaknaði aftur áhugi á
að rannsaka það betur í tengslum við meðferð geðraskana á borð
við þunglyndi, kvíða, áráttu- og þráhyggjuröskun og áfengis- og
nikótínfíkn.29-31
Efnafræði og lyfjaform
Psilocybin hefur efnaformúluna (O-phosphoryl-4-hydroxy -N,N-
dimethyltryptamine) og flokkast undir tryptamín-ofskynjunar efni.
Það er brotið niður í psilocin (4-hydroxy-N,N-dimethyltryptamine)
sem er virka efnið og er það einnig að finna í ofskynjunarsveppum.
Efnabygging þessara efna líkist amínósýrunni tryptófan og eru
þau bæði skyld serótóníni.32,33 Psilocybin og psilocin á hreinu formi
eru hvítt duft við stofuhita en psilocybin má leysa upp í vatni. Bæði
efnin eru óstöðug í birtu og mesti stöðugleikinn fæst við lágt hita-
stig og í rökkri.34 Við töku psilocybins dreifist psilocin um allan
líkamann, meðal annars til heilans, og skilst út að fullu innan 24
klukkustunda, mest fyrstu 8 tímana. Áhrif þess koma fram um 30
mínútum eftir inntöku og vara yfirleitt skemur en 6 klukkustundir
en tímalengdin er þó háð skammti.25 Styrkur þess mælist hæstur
í nýberki (neocortex), dreka (hippocampus), utanstrýtuhreyfikerfi
(extrapyramidal motor system) og dreif (reticular formation).35
Verkunarmáti
Líkt og með ýmis lyf sem verka á miðtaugakerfið er ekki að fullu
vitað hver verkunarháttur psilocybins er. Vitað er að psilocybin
binst 5-HT2A viðtökum sem eru víðs vegar í heilanum og eru
ofskynjunaráhrifin talin stafa af virkjun þessara viðtaka.36
Psilocybin er einnig talið auka óbeint dópamínvirkni með auknu
framboði serótóníns þar sem mikil tengsl eru milli serótónín- og
dópamínkerfa.37 Haloperidol er dópamín-hemill og dregur úr
virkni psilocybins, sem styður við þá tilgátu.38 Margar rannsóknir
hafa einnig skoðað áhrif psilocybins á persónuleikaþætti á borð
við kvíðahneigð (neuroticism) og samviskusemi (concientiousness)
þar sem taka efnisins virðist draga úr neikvæðni og auka á hjálp-
semi og sækni í félagslíf.39 Psilocybin eykur síðan virkjun möndl-
ungs (amygdala) við örvun jákvæðra tilfinninga40 en dregur úr
virkjun við örvun neikvæðra tilfinninga og þegar tilfinningagildi
áreita er hlutlaust.41 Þannig virðist það auka á jákvæðar upplifanir
einstaklinga.38 Allt gæti þetta átt þátt í virkni psilocybins í meðferð
þunglyndis.
Mynd 1. Psilocybin er einangrað úr tilteknum ættkvíslum sveppa. Hér má sjá eina
slíka tegund sveppa. Mynd/Wikipedia.
Mynd 2. Efnafræðileg gerð psilocybins. Mynd/pixabay.