Læknablaðið - 01.09.2022, Qupperneq 36
412 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þyrftum 30 fleiri nýja
lækna á ári
Um 30 fleiri þyrftu að bætast í hóp útskrifaðra lækna hér á landi á ári ef halda
ætti í við fólksfjölgun, samkvæmt tölum Læknafélags Íslands. Skoða þarf að
fleiri komi að klínískri kennslu lækna
F R É T T I R
„Ég hef ekki aðeins áhyggjur af þessari
stöðu, ég óttast hana. Við glímum þegar
við mikla manneklu og horfurnar eru
dökkar,“ segir Steinunn Þórðardóttir, for-
maður Læknafélagsins.
Læknafélagið telur að eftir þrjú ár, árið
2025, vanti tæplega 90 lækna hér á landi
miðað við hlutfallslega meiri eftirspurn
eldra fólks eftir heilbrigðisþjónustu.
Nærri 130 lækna vanti árið 2030 og yfir
250 árið 2040, verði ekki gripið inn í. „Um
30 útskrifast erlendis ár hvert og gerum
við ráð fyrir þeim í þessu mati,“ segir
Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur
Læknafélagsins.
Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala,
sagði í fréttum RÚV, þann 17. ágúst, að
mannekla spítalans hafi aldrei verið meiri
en þetta sumar. Starfsfólk vanti á öllum
vígvöllum. Ef ekki verði brugðist við sem
fyrst fari spítalinn í þrot. „Við þurfum að
mennta fleiri með einhverjum hætti og
tryggja að fólk haldist í starfi,“ sagði hann
við RÚV.
Steinunn tekur undir orð Runólfs.
„Hann talar tæpitungulaust og við
verðum að hlusta og bregðast við.“ Hún
telur mikilvægt að spítalarnir utan höf-
uðborgarsvæðisins fái aukin tækifæri til
að sinna klínískri kennslu læknanema.
„En þessir spítalar eru sveltir eins og
Landspítali. Til að þeir geti tekið við
læknanemum þarf að styrkja þá.“
Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri
Sjúkrahússins á Akureyri segir í viðtali
við Vísi að sjúkrahúsið geti tekið á móti
fleiri læknanemum í grunnnámi gegn
ákveðnum breytingum.
Steinunn segir einnig mikilvægt, ætli
íslensk yfirvöld áfram að stóla á að fólk
fari utan í læknanám, að þau greiði götu
þess. „Þau sem fara utan sitja ekki við
sama borð og þau sem læra heima. Ef við
þurfum að treysta á erlenda læknaskóla,
þurfum við að finna kerfi sem jafnar
stöðu þeirra sem læra þar.“
Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður
Læknafélags Reykjavíkur, segir í viðtali í
þessu blaði vera sóknarfæri í að sjálfstætt
starfandi læknar kenni læknanemum.
Þórarinn Guðjónsson, forseti læknadeild-
ar, fagnar nýjum hugmyndum og segir
vert að ræða. „Ég veit að bæði læknadeild
og spítalanum er umhugað um að taka
á vandanum. Nú horfum við til þess að
stórefla hermikennslu,“ segir hann og
segist hafa átt fund með Runólfi um þá
leið. Þórarinn segir ekkert gerast nema
nýjar hugmyndir séu settar á borðið og
ræddar.
„Klíníska kennslan hefur verið flösku-
hálsinn fyrir fjölgun nema í læknisfræði.
Auðveldara er að fjölga í grunngreinun-
um enda fer stór hluti þess náms fram í
fyrirlestrum og í verklegum æfingum. Ég
fagna því svona hugmyndum og nauðsyn-
legt er að ræða þær innan deildarinnar,“
segir hann.
Samkvæmt nýjustu tölum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar, OECD, dregur
Ísland meðaltal ríkjanna niður þegar kem-
ur að útskrift lækna. Meðaltalið árið 2019
er 13,2 á hverja 100.000 íbúa en hér á landi
útskrifuðust 11,4, áþekkt því sem er í Nor-
egi. Til samanburðar útskrifuðust árlega
nærri 25 írskir læknar og 23 danskir, en í
þessum löndum er staðan best.
1.607
1.749
1.859
2.037
1.700
1.877
2.072
2.288
1200
1400
1600
1800
2000
2200
2020 2025 2030 2035 2040
Mannaflaspá starfandi lækna á Íslandi 2020-2040
Framboð lækna
Eftirspurn m.v. hlutfallslega
meiri eftirspurn eldra fólks
Hér má sjá mannaflaspá starfandi lækna á Íslandi 2020-2040. Graf/Læknafélagið
„Ég veit að bæði læknadeild og
spítalanum er umhugað um að
taka á vandanum,“ segir forseti
læknadeildar.
Steinunn Þórðardóttir,
formaður LÍ.
Þórarinn Guðjónsson,
forseti læknadeildar.