Læknablaðið - 01.09.2022, Síða 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 417
„Starfið snertir líka stjórnsýsluna
mikið og ég varð að læra hratt,“ segir
Guðrún, sem er rúmlega hálfnuð með
diplómanám í opinberri stjórnsýslu við
Háskóla Íslands. „Það er gagnlegt fyrir
sóttvarnalækni.“
Guðrún er rétt yfir fimmtugt, yngst
fjögurra systkina. Á þrjá eldri bræður sem
allir bjuggu í Bandaríkjunum í barnæsku,
og einn enn, en ekki hún. Hún var ekki
fædd þá. „Ég náði samt 20 árum þar ytra.“
Foreldrar hennar voru Kolbrún Þórhalls-
dóttir og Erling Aspelund.
„Ég sá ekki fyrir að kveðja foreldra
mína svona fljótt eftir að við kom-
um heim, en aldur þeirra var þáttur í
ákvörðuninni að flytja heim. Þau voru
orðin fullorðin og mér fannst verðmætt
að geta verið nær þeim, hitt þau meira og
hjálpað til ef þyrfti,“ segir hún.
„Eftir á að hyggja tel ég að það hafi
verið ómetanlegt fyrir mig að geta varið
þessum stundum með þeim.“ Henni hafi
þó þótt miður að COVID hafi fækkað
þeim stundum en hún haldi þétt um
minningarnar.
„Við bjuggum fyrsta árið í íbúð fyrir
ofan þau og svo í sömu götu. Ég hjólaði
oftast við hjá pabba á leið heim úr vinnu
eftir að mamma dó í fyrra. Við settumst
niður og spjölluðum,“ segir Guðrún sem
nú í lok ágúst fylgdi föður sínum til grafar.
Eini umsækjandinn
Guðrún var hissa á að hún væri eini um-
sækjandinn enda Þórólfur mjög í sviðs-
ljósinu. „Þess vegna taldi ég að það yrðu
fleiri. En á móti kemur að kannski hefur
fólki fundist það yfirþyrmandi.“
En saknar hún ekki hnífsins? „Auð-
vitað sakna ég þess á ákveðinn hátt að
fara úr skurðlækningum. Starfið er mjög
gefandi. Það er ekki venjuleg vinna, held-
ur lífið manns. Skurðlækningar verða
að hafa forgang og maður að sinna því
100%. En það tekur líka á og ég hafði
stundað þær lengi. Það var því ákveðin
endurnýjun að gera eitthvað annað,“ segir
Guðrún og fagnar umbreytingunum.
„Mér finnst ég ekki vera að svíkjast um
þótt ég sé ekki að skera. En ég fékk þá til-
Guðrún Aspelund tók formlega við starfi sóttvarnalækn-
is nú um mánaðamótin. Hún er spennt og hlakkar til að
huga að heilsu fjöldans. Mynd/gag
Þurfum sóttvarnaúrræði
„Við þurfum að hafa úrræði fyrir þá sem hafa ekki í önnur hús að venda,“ segir
nýr sóttvarnalæknir um þá stöðu þegar setja þurfi fólk í sóttkví eða einangrun
vegna smitsjúkdóma. Hún sjái ekki fyrir sér að grípa þurfi til þess að flytja fólk á
sóttvarnahótel aftur vegna COVID-19 sýkinga eins og staðan er nú.
„Við þurfum að vera undirbúin fyrir ný afbrigði en ég sé ekki fyrir mér að sama
staða komi upp og í upphafi faraldursins. Við erum vel bólusett og því betur sett,“
segir Guðrún Aspelund. „En við erum við öllu búin.“
finningu svolítið í fyrstu þegar ég ákvað
að hætta að skera með allt þetta nám og
reynslu á bakinu. Ég fékk samviskubit.
En á þessum 20 árum, 10 í náminu og 10
þar á eftir, hef ég gert heilmikið á löngum
vinnudögum með mörgum aðgerðum,“
segir hún.
„Ég hef bara ekki fundið þörfina fyrir
að fara aftur til baka. Ég er mjög sátt að
vera læknir og gera gagn á annan hátt.
Þetta er á öðrum skala. Hér fæst ég við
lýðheilsu og hugsa um heildina í stað þess
að hugsa um einn einstakling í einu,“
segir hún.
„Ég tel mig einnig geta náð árangri nú
og finn að ég er á góðum stað.“