Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 42
418 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
V I Ð T A L
„Það er víða pottur brotinn. Eiginlega
sama hvar drepið er niður fæti, kerfið er
að molna undan okkur,“ segir Ragnar
Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags
Reykjavíkur.
„Það skiptir því máli að læknar láti
í sér heyra og reyni að hafa áhrif á um-
hverfi sjúklinga, sitt eigið starfsumhverfi
og reyni að móta kerfið svo hægt sé að
sinna sem flestum. Við þurfum starfs-
umhverfi þar sem fólk er ánægt.“ Þórdís
Þorkelsdóttir, formaður Félags almennra
lækna, tekur undir. „Ég er hjartanlega
sammála.“
Leiðtogar. Þórdís og Ragnar Freyr tóku
við í formannskyndlunum í vor. Þau eru
samherjar sem sitja nú gegnt hvort öðru
í viðtali við Læknablaðið. „Nei,“ svara þau
bæði um það hvort þau hafi hist áður. „En
ég útiloka það ekki. Hún gæti hafa verið
með maska,“ segir Ragnar og hlær. Sólin
skín fyrir utan. Sjaldséð þetta sumarið á
höfuðborgarsvæðinu en þau úthvíld. Bæði
að koma úr fríi. Hann frá Ítalíu. Hún að
vestan.
„Ég hef nú líklega verið ein af mörg-
hundruð læknanemunum sem streyma í
gegnum Landspítala á tímum Ragnars,“
segir Þórdís létt.
Óvelkomin hornkerling
Ragnar er enn með annan fótinn á
Landspítala og rekur auk þess eigin stofu
í Heilsuklasanum. Þórdís hins vegar
kvaddi spítalann í vor og gekk til liðs við
nýsköpunarfyrirtækið Sidekick Health.
„Ég vildi prófa nýja hluti, og sjá hvað
Þórdís Þorkelsdóttir og Ragnar Freyr Ingvarsson eru ný sest í formannstóla ólíkra
læknafélaga. Þórdís í Félagi almennra lækna og Ragnar í Læknafélagi Reykjavíkur.
Saman sitja þau svo í stjórn LÍ
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ætla að hafa hátt á meðan
kerfið molnar undan þeim
annað væri í boði, en gífurlegt álag er á
spítalanum eða heilsugæslu,“ segir hún og
stefnir á sérnám í háls-, nef og eyrnalækn-
ingum. Ragnar horfir á hana.
„Nú, svo þú stefnir á stofurekstur.“
Hann fagnar líklega hverjum nýjum þar
enda stétt stofulækna að eldast. Umhverf-
ið á margan hátt óaðlaðandi þar sem sjálf-
stætt starfandi læknar hafa verið samn-
ingslausir frá 2018.
„Samningur var síðast undirritaður
2013,“ segir hann. „Það er ljóst að tor-
tryggni ríkir milli aðila. Við lítum þjón-
ustuna ekki sömu augum. Sérfræði- og
sérgreinalæknar á stofum hafa verið
hornkerlingar í íslensku heilbrigðiskerfi
um áratugaskeið. Það var sérstaklega
ljóst í stjórnartíð fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra, þar sem sérfræðilæknar fengu
aðeins að hitta hana einu sinni. Þeir fengu
aldrei að koma að borðinu við neinar
stefnumarkandi ákvarðanir um hvernig
best og hagkvæmast væri að veita þjón-
ustuna.“ Það sé ótrúlegt.
„Læknar á stofum eru ekki aðeins
stærsta þjónustueiningin í heilbrigðiskerf-
inu heldur sú langstærsta. Við sinnum
500.000 læknisverkum á ári en einungis
5% af peningum til heilbrigðismála renna
í þetta,“ segir hann.
„Við sjáum næstum fjórum sinnum
fleiri sjúklinga á stofum heldur en fara
á göngudeildir á Landspítala. Við sjáum
næstum tvisvar sinnum fleiri en fara á
Heilsugæsluna á höfuborgarsvæðinu á
hverju ári,“ fullyrðir hann. Áhrifaleysið sé
því ótrúlegt og skrítið að niðurstaða hafi
ekki fengist í hvernig haga eigi hlutum.
Rof í sáttmálann?
„Nú eru þrjú ár liðin og sjúklingarnir
löngu orðnir vanir því að hér þurfi að
greiða aukagjöld, viðbótargjöld og óum-
samin gjaldskrárverk. Hér eru skurðað-
gerðir gerðar framhjá kerfinu, liðskipti,
efnaskiptaaðgerðir,“ segir hann.
„Ég velti fyrir mér hvort komið sé rof
í samfélagssáttmálann um norrænt vel-
ferðarkerfi. En á Íslandi höfum við gleymt
þeim hluta að við þurfum líka að fjár-
magna kerfið.“ Langt sé á milli lækna og
viðsemjenda. „Ríkisvaldið hefur allt aðra
sýn á þjónustuna en við sem veitum hana.
Það er eins og það sé hljóðmúr á milli.“
En er þetta ástand ástæða þess að ný-
liðun er lítil meðal stofulækna? „Auðvitað
upplifum við ungir læknar okkur engan
veginn velkomin af hálfu kerfisins í stofu-
rekstur í dag,“ segir Þórdís.
„Maður hugsar sig tvisvar um og vill
vera starfskraftur sem er metinn að verð-
leikum. Ég get ekki ímyndað mér að starfa
í umhverfi þar sem tölvan segir alltaf nei.
Ég læt ekki bjóða mér það og tel að margir
aðrir læknar séu á svipuðum stað,“ segir
hún.
„Ég tel líka að þetta sé ástæða þess að
stór hluti lækna sem sérmenntar sig úti
snýr ekki aftur heim. Þeir upplifa sig óvel-
komna. Það er fáránleg staða,“ segir hún
en nýlega var sagt frá því að þriðjungur
nýútskrifaðra sérfræðilækna komi ekki
aftur heim.
Kjör fyrir dómstóla
Þórdís sat í stjórn Félags læknanema