Læknablaðið - 01.09.2022, Side 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 423
Um banamein Hallberu Snorradóttur
Á Læknadögum 23. mars síðastliðinn var
skemmtilegt málþing um nokkur bráða-
tilvik og andlát á söguöld og á miðöldum
á Íslandi. Óttar Guðmundsson læknir
stýrði röggsamlega umræðum þar sem
eitt tilvikið varðaði konu úr frændgarði
hans, það er að segja Hallberu Snorra-
dóttur Sturlusonar frá Reykholti. Hallbera
var eldra systkinið af tveimur skilgetnum
börnum Snorra, sem hann átti með Her-
dísi Bessadóttur frá Borg á Mýrum, fyrstu
konu sinni. Snorri átti nokkur börn að
auki með seinni konu sinni, hjákonum og
frillum. Hallbera fæddist árið 1200 eða
1201 og dó 30-31 árs gömul.1,2
Hallbera var 17 ára gömul gefin Árna
Magnússyni í Brautarholti á Kjalarnesi
sem hafði viðurnefnið „óreiða“, en skildi
við karl þennan 7 árum seinna. Árni var
nokkru eldri. Eflaust hefur þetta ekki
verið auðvelt fyrir unga konu, enda fór
hún frá honum 24 ára gömul og heim í
föðurhúsin. Stuttu seinna, eða um 26 ára
aldur, var hún gefin Kolbeini Arnórsyni
(Tumasonar) sem var bara 19 ára. Árið
1229 var auðsjáanlegt á Alþingi að henni
„firrðist heilsa“. Hún var orðin verri
ásýndar og heilsuveil. Sambúðin við Kol-
bein entist ekki nema árið og ást var ekki
heldur til að dreifa þar. Hann var kominn
í lið fjandmanna föður hennar, fór heim af
þinginu og skeytti ekki um hana, jafnvel
ekki þegar hún kom norður í land. Loks
fór svo að ungu veiku konunni, sem ekki
hafði átt börn með eiginmönnum sínum,
var komið heim til mömmu að Borg á
Mýrum.
Tæpum tveimur árum seinna var
Guðmundur góði, biskup Arason, í heim-
sókn á svæðinu. Þar sem hann þótti hafa
læknisgáfur var leitað til hans vegna Hall-
beru sem þá var orðin mun veikari. Hann
færðist undan, enda sennilega ekki vanur
líkamsskoðun kvenna, eins skírlífur og
hann var. Guðmundur benti á aðstoðar-
lækni sinn, prest að nafni Dálkur. Sá
ráðlagði eins heitt bað og hún þyldi. Strax
Reynir Tómas Geirsson
eftir baðið var hún sveipuð klæðum og
leið eflaust hörmulega. Þá „sló að henni
verkjum fyrir brjóstið“ og hún „andaðisk
litlu síðar“.
Á málþinginu vaknaði spurningin um
dánarorsök Hallberu. Sigurður Samúels-
son taldi hana hafa fengið hjartabilun eða
verið með krónískan hjartasjúkdóm og
lungnabjúg í lokin, kannski vegna mítur-
lokuskaða (stenósu) af völdum streptó-
kokkasýkingar á ungum aldri.3 Ég leyfði
mér að varpa fram annarri tilgátu.
Árni óreiða var sennilega eins og
aðrir höfðingjar þessara tíma frekur til
kvenna. Hann gæti hafa haft margar
konur. Lekandi eða klamýdía voru eflaust
til á Íslandi eins og annars staðar. Árni
gæti hafa smitað ungu konuna sína, sem
í kjölfar slitróttra, ástsnauðra og kannski
ofbeldisfullra samskipta við mann sinn
fékk leghols- og eggjaleiðarabólgu (salp-
ingitis). Aðrar súrefnisþyrstar (aerob) og
súrefnisfælnar (anaerob) bakteríur fylgja í
kjölfarið í innri kynsjúkdómasýkingum
og bæta í veikindin og langvinna kvið-
verki. Eggjaleiðarinn getur lokast í báða
enda og fyllst vökva (hydrosalpinx) og
valdið langvinnum verkjum og blæðinga-
truflunum. Ófrjósemi fylgir. Verra nær-
ingarástand hinnar verkjuðu ungu konu
leiddi af sér vaxandi blóðleysi. Kolbeinn
var eflaust fjöllyndur og gæti einnig hafa
smitað hana. Lekandi getur valdið hjarta-
þelsbólgu (endocarditis) með máttleysi og
þreytu – þekktum fylgikvillum lekanda-
sýkingar.4 Báðir, og þó einkum Árni, gætu
hafa haft bólgur í þvagrás og blöðruháls-
kirtli (prostatitis, urethritis) og sýkingu í
sáðblöðrum. Þetta gæti loks hafa breyst
í viðvarandi sýkingu í grindarholi Hall-
beru með graftrarsöfnun í eggjaleiðara og
við eggjastokka (pyosalpingx, tubo-ovarial
abscess), sem ásamt hjartaþelsbólgu og
kannski gömlum míturlokaskaða gerði
hana máttlitla og stöðugt veikari. Aðstæð-
ur kjörnar fyrir aukna blóðstorkutilhneig-
ingu og lungnablóðrek. Ofurheitt bað ríð-
ur henni að fullu, hún fær lungnablóðrek
(pulmonary thrombus) sem drepur hana
rétt þrítuga. Þetta er ekki verri tilgáta en
skýring Sigurðar. Auðvelt er að skynja
óhamingju og vont líf ungrar konu sem í
hagnaðarskyni var „gefin“ tveimur faut-
um með kynsjúkdóm(a).
Heimildir
1. Þórðarson S. Sturlunga saga II og III. Björn Bjarnason bjó
til prentunar 1908. Félagsprentsmiðjan, Reykjavík 1945.
2. Guðmundsson Ó. Snorri – Ævisaga Snorra Sturlusonar
1179-1241. JPV útgáfa, Reykjavík 2009.
3. Samúelsson S. Sjúkdómar og dánarmein íslenskra forn-
manna. Háskólaútgáfan, Reykjavík 1998: 54-5.
4. en.wikipedia.org/wiki/Gonorrhea - maí 2022.
prófessor emeritus á kvennadeild Landspítala
reynirg@landspitali.is
Leg og eggjaleiðarar (Fallopian tube) þar sem annar er eðlilegur útlits, en hinn þaninn af bólgu og graftrarmyndun
(tuboovarial abscess). Oftast sýkjast báðir eggjaleiðarar, fremur en aðeins annar, og endar þeirra ásamt eggjastokkum
liggja saman í grindarholi aftan við legið þar sem myndast misstór bólguhella í enda eggjaleiðaranna og umhverfis
eggjastokk(a). Mynd/KJK hospital.
B R É F T I L B L A Ð S I N S