Læknablaðið - 01.09.2022, Qupperneq 50
426 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Það var um mitt sumarfrí og ég var
stödd með fjölskylduna á himneskum
stað. Súkkulaðisafni í Sviss þar sem saga
súkkulaðigerðar er sögð á skapandi hátt á
sama tíma og bragðlaukarnir fara í heild-
rænan nautnaleiðangur. Planið var svo að
fara í ostasafn í sama bæ strax á eftir.
Okkur safngestum var hleypt í 20
manna hollum inn í fordyri – upphaf
þessa mergjaða ævintýris. Ég var varla
búin að venjast afnámi fjöldatakmarkana
og fjarlægðarreglna eftir COVID – innra
með mér ennþá svolítið vör um mig.
Við fengum afhent heyrnartól þar sem
ómaði rödd sem sagði okkur frá undrum
súkkulaðisögunnar og fór yfir reglurnar
– það mátti til dæmis ekki fara út um lok-
aðar dyr hvers rýmis fyrr en boð fékkst
um slíkt.
Mér varð litið á einn ungan mann
með bakpoka. Hann var ekki alveg hress.
Virtist vera að æla upp í sig. Hélt fyrir
munninn og liðaðist um. Ég rétt náði að
toga börnin frá þegar gusan kom. Af útliti
uppsölunnar að dæma virtist hann hafa
farið fyrst í ostasafnið áður en hann kom
hingað. Starfsfólk kom til hans. Hann
fékk vatnsglas og fór afsíðis. „I am fine,“
heyrði ég hann segja. „My wife had this
yesterday“.
Á meðan gumsið lak niður af veggn-
um á gólfið sagði röddin í heyrnatólun-
L I P R I R P E N N A R
Ostagubb í súkkulaðisælu Eyrún Baldursdóttir
öldrunarlæknir
um okkur að halda áfram. Við fórum
inn í lyftu og komum út í rými sem var
snilldarlega innréttað eins og fornt suður-
amerískt hof. Leikmunir færðust til eins
og fyrir töfra og röddin í tækjunum sagði
okkur að kakóbaunin hefði verið uppgötv-
uð í Mexíkó og talin komin frá guðunum.
Á sama tíma sé ég að ungi maðurinn er
kominn aftur í hópinn. Andlit hans, sem
var náfölt fyrir nokkrum mínútum, hef-
ur nú endurheimt ljóma sinn og hann er
greinilega spenntur fyrir því sem fyrir
augu ber. Hann virðist ætla að klára túr-
inn í gegnum safnið. Vá, flott hjá honum.
Við förum yfir í næsta sal. Þar er farið
yfir hvernig kakódrykkurinn sló í gegn
í Evrópu. Var reyndar talinn hættulegur
fyrir hvað hann var góður, bannaður af
kirkjunni. Notaður sem frygðarlyf. Ég
sé varla né heyri það sem er í gangi – er
of upptekin við að hámarka fjarlægðina
milli fjölskyldu minnar og þessa manns
sem mögulega er með nóróvírus. Ég vil
ekki fá nóró í sumarfríinu. Já, og svo fann
einhver upp á því að blanda mjólk saman
við kakódrykkinn. Úff mér er óglatt af
þessu tali.
Röddin í heyrnartólunum fyrirskipar
að við förum yfir í enn annan sal. Þar
liggja frammi hnetur, möndlur, súkkulaði-
flögur. Allt frumlega fléttað inn í fræðslu-
mola um hvernig kakóbaunin er ræktuð
í dag í Vestur-Afríku. Allir mega taka
og smakka. Setja hendurnar á bólakaf í
kakónibburnar til að finna þá einu réttu.
Mig langar að hrópa: Where is the hand-
sanitizer? Ungi maðurinn grefur eftir
hnetu og ég fylgi honum eftir með augun-
um. Áður en ég næ að stoppa dóttur mína
hefur hún nælt sér í möndlu. „Þið smakk-
ið ekkert hér inni,“ hvæsi ég á börnin.
,,Snertið ekkert!“ Kannski hrópa ég þessi
orð því það er hávært en glaðlegt flautulag
í eyrunum á mér. Börnin hrökkva við og
ég held fleiri gestir líka. Mig langar að
rífa upp hurðina til að komast út úr þessu
smitrými gubbupestar. Hvar er Covid-gall-
inn þegar ég þarfnast hans?
Við höldum áfram og heyrum í
heyrnartólunum hvernig súkkulaðið kom
til Sviss og hvernig frægur Svisslending-
ur byggði upp veldi. Sjáum lítinn
súkkulaðifoss. Súkkulaðigerðarmann
skera út súkkulaðibangsa. Vél pakka inn
súkkulaði molum í öllum regnbogans
litum. Mér er óglatt. Okkur er öllum
boðið að borða eins mikið súkkulaði og
við getum. Ungi maðurinn hefur sjálfur
endurheimt lystina og fær sér alls þrjá
mola. Allur greinilega að hressast. Það
er gott. Börnin mín fylla lófa og vasa af
súkkulaði molum. Ég sjálf held að ég muni
aldrei geta borðað súkkulaði aftur. Svo er
ferðinni heitið á ostasafnið.
Pistlahöfundur í dagsins önn.
Myndina tók
Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir.