Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Blaðsíða 52
Ræða varaformanns Sjálfstæðisflokksins,
Jóhanns Hafstein, dómsmálaráðherra
Framtíðin verði byggð á grunni
viðreisnarinnar
Stjórnarstefnan hefur notið meira brautargengis og trausts
hjá almenningi en nokkur önnur
Þessi sautjándi Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins kemur saman á veigamiklum, sögu-
legum tímamótum í stjórnmálasögu Islend-
inga.
Framundan eru alþingiskosningar, þann
11. júní næstkomandi, en þar með lýkur öðru
kjörtímabili samfelldrar stjórnarstefnu, sem
kölluð hefir verið viðreisnarstefna og hófst
við stjórnarmyndun Ólafs Thors, í nóvember-
mánuði 1959, að loknum tvennum alþingis-
kosningum það ár, hinum síðari á grundvelli
n 'rrar kjördæmaskipunar og kosningalaga, er
við nú búum við.
Aldrei fyrr á íslandi hefir sama ríkis-
stjórn setið við völd eða sömu stjórnarstefnu
verið fylgt í samfleytt tvö heil kjörtímabil.
Stjórnarstefnan, sem fylgt hefir verið að und-
anfömu hefir þannig reynzt traustari og
haldbetri en aðrar, notið meira brautargengis
og trausts hjá almenningi. Þetta er mikils-
verður vitnisburður, sem hafa ber i huga nú,
þegar stefnir að alþingiskosningum.
Þetta er fjórði Landsfundur Sjálfstæðis-
manna, sem haldinn er á tímabili viðreisnar-
stefnunnar. Á öllum þessum Landsfundum
haf„ ráðherrar Sjálfstæðisflokksinsgertlands-
: ’ndarfulltrúum grein fyrir framvindu mála,
!r>s og hún hverju sinni var í stjórnarfram-
jmdum innan ríkisstjórnarinnar og í lög-
gjóf og ályktunum Alþingis. Slíkar greinar-
gerðir skiptast nú sem endranær á okkur ráð-
herrana, eftir því hvaða málaflokkum hver
og einn sinnir og við að öðru leyti höfum kom-
ið okkur saman um.
Eg mun nú leitast við að skilgreina þá
málaflokka, sem mér eru ætlaðir, auk almennra
hugleiðinga um stjórnmálin, sem við geta átt.
HEILBRIGÐISMÁL
Af þeim málum, sem mínum ráðuneytum
tilheyra, hafa heilbrigðismálin af ýmsum á-
stæðum verið ofarlega á baugi að undanfömu.
Það er mér ánægjuefni að almennt virðist
sennilega vera að glæðast áhugi manna og
50