Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Blaðsíða 38
6. Flokkurinn telur enn sem fyrr að efla beri samtök hinna Sameinuðu
þjóða og norræna samvinnu, og verði einnig stefnt að aukinni þátt-
töku Islands í aðstoðinni við þróunarlöndin.
7. Unnið verði markvisst á alþjóðavettvangi að viðurkenningu á einka-
rétti íslendinga til fiskveiða á landgrunninu og að öðru leyti að
nauðsynlegri fiskirækt og friðun fiskistofna við landið til að forð-
ast ofveiði.
8. Sjálfstæðisflokkurinn telur með öllu óhjákvæmilegt, að hér á landi
sem annars staðar sé viðbúnaður til varna, ef á landið yrði ráðizt.
Vörnunum ber að sjálfsögðu að haga á hverjum tíma með hliðsjón
af hagsmunum þjóðarinnar og friðarhorfum x heiminum. Flokkur-
inn er þeirrar skoðunar, að varnir landsins verði ekki tryggðar á
næstunni nema með samvinnu við Atlantshafsbandalagið svo sem
verið hefur.
9. Minnugir þess, að lítil þjóð á öðrum fremur meira undir manngildi
og menntun hvers einstaklings en hinar fjölmennari, vill Sjálfstæðis-
flokkurinn nú sem fyrr leggja sérstaka áherzlu á hugðarefni unga
fólksins og aðild æskunnar að stjórn landsins. Því er hann eindregið
fylgjandi því, að kosningaaldur sé færður niður í 20 ár. Almanna-
valdið styðji í auknum mæli starfsemi þeirra félagssamtaka, sem
vinna að uppeldi hraustrar og tápmikillar æsku, svo sem íþrótta-,
skáta- og ungmennafélaga, bindindishreyfingarinnar og kristilegra
æskulýðsfélaga.
10. Haldið verði áfram að bæta námsaðstöðu í landinu og ráðstafanir í
þá átt undirbúnar með skólarannsóknum og áætlanagerðum. Að því
skal stefna jöfnum höndum, að menntunin búi einstaklingana undir
að mæta siðferðilegum vandamálum daglegs nútímalífs og efli hlut-
gengi þeirra í atvinnulífi vaxandi tækniþjóðfélags. Brýna nauðsyn
ber til þess að auka fræðslu í skólum landsins varðandi höfuðat-
vinnuvegi þjóðarinnar og í undirstöðuatriðum félags- og þjóðmeg-
unarfræði.
Meðal tímabærra ráðstafana í skólamálum telur fundurinn vera að
koma á styrkjum til framhaldsnáms kennara og að veita fleiri skól-
um rétt til að brautskrá stúdenta, svo sem Kvennaskólanum í Reykja-
vík. Vísindaleg þekking verði hagnýtt til hins ýtrasta í framfara-
sókn þjóðarinnar og vísindastofnanir efldar í því skyni. Haldið verði
36