Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Blaðsíða 32
Þá hófust umræður um stjórnmálayfiríýs-
ingu fundarins og tóku til máls: frú Auður
Auðuns, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur,
frú Sigurveig Guðmundsdóttir, Hafnarfirði, Jó-
hann Hafstein, dómsmálaráðherra, Gunnar
Bjarnason, kennari, Hvanneyri, Haukur Egg-
ertsson, framkvæmdarstjóri, Reykjavík og dr.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Umræðum var frestað og fundi slitið kl. 12.
Níundi fundur.
Níundi fundur landsfundarins hófst í Sjálf-
stæðishúsinu sunnudaginn 23. apríl kl. 14.
Fundarstjóri á þessum fundi var Pétur Otte-
sen, fyrrv. alþingismaður, Ytra-Hólmi, en
fundarritarar Karl B. Guðmundsson, viðskipta-
fræðingur, Seltjarnarnesi og Sigurður
Tryggvason, kaupmaður, Hvammstanga.
A fundi þessum héldu áfram umræður um
stjórnmálaálytkunina o g tóku til máls
Páll V. Daníelsson, viðskiptafræðingur, Hafn-
arfirði, Sigurbjörn Þorkelsson, forstjóri,
Reykjavík, Leifur Auðunsson, bóndi, Leifs-
stöðum, Sigfús Johnsen, kennari, Vestmanna-
eyjum, Þorkell Sigurðsson, vélstjóri, Reykja-
vík, Kristján Kristjánsson, trésmiður, Reykja-
vík, Jóhann Sigurðsson, verkamaður, Reykja-
vík, prófessor Ólafur Björnsson, Reykjavík,
María Maack, Reykjavík, Sveinn Ólafsson, full-
trúi, Garðahreppi, Ásta Erlingsdóttir, Reykja-
vík, Guðmundur Ólafsson, bóndi, Ytra-Felli,
Birgir Kjaran, Reykjavík og dr. Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra.
Að umræðum loknum var gengið til atkvæða
um tillögur, sem fram höfðu komið. Samþykkt
var að vísa til miðstjórnar ýtarlegri tillögu,
sem Baldvin Tryggvason hafði lagt fram um
stuðning við bókmenntir og listir, ennfremur
tillögu frá Kristjáni Kristjánssyni um að veita
Raungreinadeild Tækniskólans stúdentsrétt-
indi, tillögu Sveins Ólafssonar varðandi áfeng-
ismál og tillögu Sigfúsar Johnsen um hagnýt-
ingu fiskimiðanna við strendur landsins. Þá
kom til afgreiðslu tillaga stjórnmálanefndar
um stjórnmálaályktunina. Fyrst kom til at-
kvæða breytingartillaga frá Ólafi Björnssyni,
Ragnari Kjartanssyni og Gunnari Schram um
aukna þátttöku íslands við þróunarlöndin. Var
tillaga þessi samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum gegn einu. Síðan var tillaga stjórn-
málanefndar um stjórnmálaályktun samþykkt
einróma með áorðnum breytingum, svo sém
hún er prentuð aftar í skýrslu þessari.
Á fundi þessum fór fram kosning á for-
manni Sjálfstæðisflokksins og varaformanni,
ásamt sjö öðrum mönnum í miðstjórn. Fóru
allar þessar kosningar fram skriflega og án
þess að uppástungur væru gerðar á mönnum.
Fyrst fór fram kosning á formanni flokksins
og var dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráð-
herra endurkjörinn einróma. Var hann hylltur
af þingheimi með langvinnu lófataki.
Þá fór fram kjör varaformanns flokksins og
var Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra,
endurkjörinn nær einróma. Var hann hylltur
af þingheimi með langvinnu lófataki.
Því næst fór fram kosning 7 manna í mið-
stjórn flokksins og voru endurkjörnir í mið-
stjórn þeir: Magnús Jónsson, fjárm.ráðherra,
Ingólfur Jónsson, landb.ráðherra, Geir Hall-
grímsson, borgarstj., Pétur Ottesen, fyrrv. al-
þingismaður, Birgir Kjaran, hagfræðingur,
Matth. Á. Mathiesen, alþm. og Sig. Bjarna-
son, ritstjóri. Auk þess eru sjálfkjörnir í mið-
stjórnina formaður Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna, formaður Verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins og formaður Landssambands
Sjálfstæðiskvenna.
Að lokum tók til máls dr. Bjarni Benedikts-
son, forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðis-
flokksins. Lýsti hann ánægju sinni yfir störf-
um fundarins og kvaðst aldrei hafa verið á
landsfundi, þar sem fundarmenn hefðu sýnt
jafnmikinn áhuga og fylgzt jafn vel með öll-
um umræðum. Vék hann síðan að alþingis-
kosningunum, sem framundan eru. Sagði hann,
að baráttan í þeim kosningum stæði fyrst og
fremst um það, hvort haldast ætti það frjáls-
ræði í viðskiptum, sem viðreisnarstjórnin hefði
komið á, eða hvort aftur yrðu tekin upp höft
og skömmtun. Mælti formaður þróttmikil
hvatningarorð til fundarmanna og bað þá vel
að duga í þeirri örlagaríku baráttu, er fram
undan væri. Að lokum óskaði formaður þeim
fundarmönnum, sem langt væru að komnir,
góðrar heimferðar. Hann bað menn síðan að
minnast fósturjarðarinnar. Risu menn úr sæt-
um og hylltu Island með ferföldu húrrahrópi.
Að því búnu sleit formaður 17. landsfundi
S j álf stæðisf lokksins.
30