Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Blaðsíða 39
áfram að bæta aðstöðu Háskóla íslands og félagsstofnun stúdenta
komið á fót.
11. Aukinn verði stuðningur við listir og bókmenntir í landinu með
kynningu þeirra innanlands og utan og aðstoð við að koma þeim
sem víðast á framfæri. Rækt verði lögð við aukna listsköpun og list-
túlkun, m. a. með náms- og ferðastyrkjum og fjárhagsstuðningi við
sjálfstæð félagssamtök og stofnanir á sviði bókmennta, lista og vís-
inda.
12. Áfram verði unnið að bættri heilbrigðisþjónustu um land allt og
áætlanir gerðar til langs t'ma um heilsuverndarstöðvar, sjúkrahúsa-
byggingar og aðrar framkvæmdir á sviði heilbrigðismála. Studd verði
starfsemi þeirra sjálfstæðu félagssamtaka, sem vinna að heilsuvernd
og í þágu öryrkja. Lögð verði og áherzla á mikilvægi heilsuvemdar
og hjúkrunarmála aldraðra.
13. Raunhæfar rannsóknir verði gerðar á því, hvernig lækka megi bygg-
ingarkostnað, m. a. með hagnýtum tækninýjungum, bættu skipulagi
á sviði byggingariðnaðarins og öflugu lánsfjárkerfi, sem stuðli að
því, að sérhver fjölskylda geti eignazt húsnæði með viðráðanlegum
kjörum.
14. Haldið verði áfram að bæta samgöngur um land allt. Undirbúið verði
stórfellt átak í gerð varanlegra vega á næstu árum og framkvæmdir
þessar boðnar út og aflað til þeirra lánsfjár, ef með þarf. Gerð góðra
flugvalla verði sömuleiðis hraðað og samgöngur á sjó tryggðar með
nægilegum farkosti og bættum hafnarmannvirkjum.
15. Haldið verði áfram virkjun fallvatna og rafvæðingu alls landsins lok-
ið á tilætluðum tíma.
16. Sjálfstæðisflokkurinn vill, að lýðræði sé tryggt í öllum almennum
og opnum félagssamtökum borgaranna.
17. Sjálfstæðisflokkurinn telur æskilegt, að stofnað sé til lífeyrissjóðs
fyrir alla landsmenn, og heitir því máli fullum stuðningi.
-----o----
Sjálfstæðisflokkurinn byggir á þjóðlegri og kristilegri lífsskoðun og
er flokkur allra stétta og þjóðmálastarf hans markast af því sjónarmiði,
að því aðeins vegni heildinni vel, að einstaklingarnir fái notið afraksturs
37