Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 74
Rafvæðing vel á veg komin, —■
tímamót í virkjunarmálum.
1 þinglokin voru samþykkt ný orkulög. Gerð
var breyting á raforkulögunum frá 1946. Þau
lög gáfust vel á margan hátt. Eftir þeim hefur
verið unnið um 20 ára skeið að rafvirkjunum
og rafvæðingu landsins. Orkulögin eru að
mestu leyti byggð á þeirri stefnu sem raforku-
lögin mörkuðu. Vegna síaukinnar starfsemi
raforkumálanna þótti hentugt að gera Raf-
magnsveitur ríkisins að sjálfstæðri stofnun,
sem heyrir nú beint undir ráðherra, en áður
undir raforkumálastjóra. Breytingin hefur þó
ekki í för með sér aukinn kostnað eða fjölgun
embætta.
Rafvæðing sveitanna er vel á veg komin og
er talið að 4646 býli hafi nú rafmagn, flest
frá samveitum en önnur frá einkarafstöðvum.
Má því ætla að tæplega 700 býli hafi ekki raf-
magn. Framsóknarmenn tala oft um að raf-
væðingin gangi hægt og vilja nú meðan þeir
eru í stjómarandstöðu, ýta fast eftir, að raf-
væðingunni verði hraðað. Þess má geta, að á
síðasta valdaári þeirra fengu aðeins 148 býli
rafmagn, en þá mátti vegalengd milli bæja
ekki vera yfir 1 km. Á árunum 1960—1965
fengu 188 bæir rafmagn árlega að meðaltali
og á s.l. ári voru tengdir 210 bæir. Nú er vega-
lengdin allt að 1V2 km. á milli bæja og verð-
ur því kostnaður meiri en áður við að tengja
hvern bæ. Raforkusjóður lánar að jafnaði 50
þús. kr. til kaupa á dieselvélum með 6% vöxt-
um til 10 ára. Á sl. ári fengu 200 bæir þess
konar lán.
Lög um Landsvirkjun marka tímamót í
virkjunarmálum þjóðarinnar. Þá var tekin
ákvörðun um að hætta við smávirkjanir, sem
við áður urðum að láta okkur nægja vegna
fjárskorts, þótt orkan frá þeim væri miklu
dýrari og raforkuskortur segði til sín stuttu
eftir að virkjuninni var lokið.
Stórvirkjunin við Þjórsá mun veita ódýr-
ustu raforku sem fáanleg er úr íslenzku fall-
vatni. Gert er ráð fyrir að virkja 210 þús.
kw. við Búrfell, og verður orkan frá þeirri
virkjun allt að 60% ódýrari fyrstu árin til al-
menningsþarfa heldur en ef virkjað hefði verið
smærra og aðeins miðað við þarfir landsmanna.
Mögulegt er að virkja á hagkvæmasta hátt
vegna þess að gerður var samningur við sviss-
neskt fyrirtæki, sem reisir hér álverksmiðju,
um orkusölu frá virkjuninni. Álverksmiðjan
kaupír þá orku, sem landsmenn ekki þurfa til
eigin þarfa. Álverksmiðjan greiðir öll þau lán
sem tekin verða til virkjunarinnar og verða þau
því aldrei baggi á íslenzku þjóðinni. Með þess-
um hætti er lagður grundvöllur að áfram-
haldandi stórvirkjunum í landinu og auknum
iðnaði til heilla fyrir þjóðfélagið.
Að því er stefnt að tengja virkjanirnar sam-
an til öryggis fyrir rafmagnsnotendur og jafna
þannig aðstöðu manna hvar sem þeir búa.
Með þeim hætti verður ávallt unnt að virkja
þar sem ódýrast er og hagkvæmast. Allir tala
um verðmæti vatnsorkunnar og jarðhitans. En
þessi verðmæti koma því aðeins að gagni að
þau séu notuð. Þröngsýnir menn beittu sér
gegn fyrstu stórvirkjun á Islandi og vildu
þannig láta landsmenn áfram nota dýrari orku
en þörf var á. Allir þykjast vilja efla íslenzk-
an iðnað, en þeir, sem standa í vegi fyrir að
útvega iðnaðinum raforku á hagstæðu verði,
eru íslenzkum iðnaði til óþurftar og standa
í vegi fyrir því, að iðnaðurinn, sem getur átt
mikla framtíð fyrir sér, verði samkeppnisfær.
Gjaldeyristekjur af ferðamönnum 94,5 millj.
Ferðamál eru ung atvinnugrein í landinu.
Lög um Ferðamálasjóð frá 1964 marka tíma-
mót í ferðamálum og ferðamannaþjónustu.
Samkvæmt þessum lögum var sett á stofn
níu manna Ferðamálaráð, sem starfar án launa.
Ferðamálaráð hefur haft jákvæð áhrif á ferða-
málin undanfarið. Ferðamálasjóður hefur lán-
að á rúmlega tveimur árum yfir 20 millj.
króna til þess að bæta úr brýnustu þörf út
um land við móttöku ferðamanna. Þótt mikið
sé ógert í þeim málum, má víða sjá góð-
an árangur. í Reykjavík hefur orðið mik-
il breyting á örfáum árum í hótelmálun-
um. Aðstaðan til að taka á móti ferðamönn-
um er gjörbreytt frá því sem áður var. Aukn-
ing erlendra ferðamanna hefur orðið geysi-
mikil í seinni tíð og mun vaxa á þessu ári og
næstu árum. Árið 1958 komu til landsins 10111
ferðamenn. Gjaldeyriseyðsla á mann nam þá
295 kr. og 55 aurum. 1966 komu 34.733 ferða-
menn. Gjaldeyriseyðsla á mann nam kr.
2.721.13. Gjaldeyristekjur alls voru kr.
94.513.000.00. 1958 var talið, að svartur mark-
aður væri á gjaldeyrinum og ætla ýmsir að
þar sé skýringin á því, að erlendir ferðamenn
skiptu sáralitlum peningum í bönkum. Auk
þeirra gjaldeyristekna, sem taldar eru, má
72