Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 31
Laus störf í Grunnskóla
Seltjarnarness
seltjarnarnes.iswww.seltjarnarnes.is
Yngsta- og miðstig
• Umsjónarkennari
• Kennari í hönnun og nýsköpun/smíði
(tímabundið í 1 ár)
• Heimilisfræði
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
• Menntun og hæfni til kennslu á yngsta og miðstigi
• Kennslureynsla í grunnskóla æskileg
Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Upplýsingar um starfið veitir Kristjana Hrafnsdóttir
skólastjóri kristjana.hrafnsdottir@seltjarnarnes.is
í síma 5959200.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á
ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir
seltjarnarnes.is - Störf í boði
Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2023.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2023.
Starfsmaður á ferðaskrifstofu
Leitum að starfsmanni til að starfa á
ferðaskrifstofu okkar á Selfossi til að vinna við
sölu, tilboðsgerð, ferðaskipulagningu o.fl.
Hæfniskröfur:
• Góð íslensku- og enskukunnátta, töluð og
skrifuð
• Góð tölvukunnátta
• Talnagleggni og nákvæm vinnubrögð
• Getur unnið sjálfstætt og í teymi
• Þjónustulund og hæfni í mannlegum
samskiptum
• Reynsla og menntun er nýtist í starfi
Umsóknir sendist á helena@gts.is
GTS ehf er rótgróið ferðaþjónustu fyrirtæki sem var
stofnað árið 1969. Við erum að leita að metnaðarfullu
og hressu starfsfólki sem hefur áhuga á að vinna með
okkur.
GTS ehf
Sérfræðingur
á fjármálasviði
Birgða-, sölu- og áhættugreining
Skeljungur ehf. leitar að jákvæðum, talnaglöggum og
metnaðarfullum aðila í starf sérfræðings á fjármálasviði.
Ef þú hefur metnað til greininga, rýninga ferla og stöðugra
umbóta í verklagi er þetta rétta starfið fyrir þig.
Um Skeljung
Hjá Skeljungi starfar fjölbreytt flóra fólks á öllum aldri. Mannauðurinn er
mikilvægasta auðlind Skeljungs. Við berum hag starfsmanna fyrir brjósti og
viljum vera í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi.
Í okkar daglega starfi vinnum við eftir kjarnagildum okkar: við erum jákvæð,
tilbúin í breytingar og metnaðarfull.
Hlutverk Skeljungs er að þjóna orkuþörf fyrirtækja á hagkvæman og öruggan
máta í sátt við samfélagið og umhverfi sitt. Starfsemi Skeljungs er á sviði sölu
og þjónustu við fyrirtæki tengd fjölorku. Fyrirtækið sér um dreifingu, innkaup
og heildsölu á eldsneyti, smurolíum, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og
öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala
til stórnotenda, útgerða, í flug og verktöku er einnig hluti af starfseminni.
Skeljungur er einnig umboðsaðili Shell á Íslandi auk þess að fara með
eignarhald í Barki, EAK, Fjölveri, Ecomar og Klett.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining á innkaupum, öryggisbirgðum og veltuhraða birgða
Greining á fjárbindingu og verðáhættu fólginni í birgðum
Eftirlit og framkvæmd innkaupa og innkaupatillaga
Sölu- og kostnaðarverðsgreining - daglegur útreikningur KSV birgða
með tilliti til áhættuvarna
Þróun og bæting verkferla og vinna í gæðamálum
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Framhaldsmenntun á háskólastigi er kostur
Reynsla af birgðastjórnun og greiningarvinnu er kostur
Reynsla og þekking á Excel og NAV er kostur
Reynsla af framsetningu tölulegra gagna
Sjálfstæð vinnubrögð og góð færni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Halldórsdóttir,
mannauðsstjóri Skeljungs, linda@skeljungur.is, sími: 444-3000.
Sótt er um starfið á vef Skeljungs, skeljungur.is/laus-storf.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl næstkomandi.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Erum við
að leita að þér?
Erum við
að leita að þér?