Fréttablaðið - 25.03.2023, Blaðsíða 20
Það var svo
um tvö-
leytið um
nóttina að
ég vaknaði
upp við
hljóðin í
Rikka. Það
var myrkur
í herberg-
inu svo ég
fálma eftir
ljósi og næ
að hringja í
neyðarlínu
skipsins.
Þau sögðu mér að
hann væri látinn. Mín
fyrsta hugsun var að ég
yrði að vekja strákana
til að segja þeim.
Í stað þess að fagna fertugsaf-
mæli eiginmanns síns, Rík-
harðs Arnar Steingrímssonar,
um borð í skemmtiferðaskipi
við Bahamaeyjar, eins og ráð-
gert var, sigldi Iðunn ásamt
ungum sonum þeirra tveimur
frá skipinu, með eiginmann
sinn og föður þeirra í líkpoka.
Iðunn og Rikki, eins og hann
var kallaður, kynntust í lög-
reglunni þar sem bæði störf-
uðu. „Ég var þá að byrja í
Lögregluskólanum og í starfs-
námi í Reykjavík þar sem hann var
að vinna,“ rifjar hún upp um þeirra
fyrstu kynni þegar hún var 22 ára og
hann 26.
Ástin tók fljótt völdin, þau urðu
par og eignuðust synina tvo, Sigur-
jón Nóa fæddan 2006 og Egil Gylfa
fæddan 2009. Iðunn hætti í lögregl-
unni og fór að starfa við umferðar-
eftirlit hjá Vegagerðinni en Rikki
varð varðstjóri.
Áramótin 2015–16 var ákveðið
að umferðareftirlitið færi undir
lögreglu og hefði Iðunn þá þurft að
flytja til Borgarness eða Selfoss. „Við
tókum ákvörðun um að við vildum
það ekki og var mér sagt upp þá um
haustið.“
Iðunn réð sig til Frumherja sem
prófdómari og lét strax vita af fyrir-
hugaðri ferð fjölskyldunnar til Flór-
ída. Hún hafði aðeins starfað þar í
tvo mánuði þegar þau fóru í ferðina
örlagaríku.
Unnu ferðina í bingói
„Við höfðum farið tvö í siglingu til
Bahamaeyja árið áður þar sem ég
vann í bingói aðra slíka ferð. Við
urðum að nýta hana innan árs og
Rikki hugsaði að það væri sniðugt
að fara yfir afmælið hans.
Við f lugum til Flórída 11. apríl
2016, fórum í siglinguna þann 18.
og hann deyr aðfaranótt 21.,“ rifjar
Iðunn upp.
Rikki hefði fagnað fertugsaf-
mæli sínu tveimur dögum síðar,
eða þann 23. apríl, og sama dag
hefðu þau hjón átt tveggja ára brúð-
kaupsafmæli. Rikki var hraustur
fjölskyldufaðir sem nýverið hafði
undirgengist þolpróf vegna starfs
síns og staðið sig með ágætum.
„Við skemmtum okkur mjög vel í
siglingunni og strákarnir elskuðu að
vera á foreldrafría svæðinu þar sem
við máttum ekki vera,“ segir hún og
hlær en drengirnir voru sex og níu
ára gamlir.
Vaknaði upp við hljóðin
20. apríl hafði liðið sem eðlilegur
dagur fjölskyldu í fríi og nutu þau
saman kvöldverðar þar sem Rikki
drakk að sögn Iðunnar hálft rauð-
vínsglas og svo fengu allir sér ís áður
en haldið var til káetu að sofa.
„Það var svo um tvöleytið um
nóttina að ég vaknaði upp við
hljóðin í Rikka. Það var myrkur í
herberginu svo ég fálma eftir ljósi og
næ að hringja í neyðarlínu skipsins.“
Um borð var nýfarið að bjóða upp
á frítt áfengi og fékk Iðunn strax
þau viðbrögð við neyðarkallinu,
að maðurinn hennar hlyti að vera
ofurölvi.
„Ég fór strax að reyna endur-
lífgun og kallaði eftir hjálp. Ég náði
að hringja aftur og þá fóru loks ein-
hverjar bjöllur í gang.“
Drengirnir sem höfðu sofið í sama
herbergi vöknuðu við lætin og voru
eðlilega skelkaðir.
„Það hrygldi í honum en ég lærði
það síðar af félaga okkar sem er
sjúkraf lutningamaður að þarna
hefði hann líklega verið að fara. Ég
gerði mér kannski ekki alveg grein
fyrir því, maður er náttúrlega bara
í panikki,“ segir Iðunn sem var sjálf
sofandi þegar ósköpin dundu yfir,
og illa áttuð.
„Ég er búin að fara á ótal skyndi-
hjálparnámskeið en það var um
margt að hugsa. Ég var að reyna að
kalla eftir aðstoð sem ekki kom.“
Starfsmenn gerðu ekki neitt
Þegar starfsmenn komu loks að her-
berginu gerðu þeir lítið gagn.
„Þeir klóruðu sér bara í hausn-
um, og það gerði enginn neitt. Við
vorum bara tekin fram á gang og
handklæði hent yfir strákana sem
voru óklæddir en ég náði að hoppa
í einhvern kjól.“
Gestir voru farnir að tínast fram
á gang þar sem Iðunn stóð með
drengina sína á meðan ekkert var
farið að gera fyrir manninn hennar.
„Ég kalla þá hvort einhver kunni
CPR og karl úr næstu káetu gefur
sig fram og fer inn að reyna fyrstu
hjálp.“
Loks kom læknir að ásamt
aðstoðarfólki með hjartastuðtæki
en allt kom fyrir ekki. Það var ein-
faldlega of seint.
„Við strákarnir vorum færð í
káetu á næstu hæð. Fljótlega kom
þangað starfsmaður og spurði hvort
Rikki notaði einhver lyf og ég spurði
á móti hvort þeir hefðu fundið ein-
hver lífsmörk en þau vildu ekkert
segja.“
Beið frétta með synina
Án allra upplýsinga sat Iðunn ein í
káetunni með synina tvo og reyndi
að fá þá til að sofna aftur.
„Ég svaf auðvitað ekkert þessa
nótt.“
Þegar synirnir voru sofnaðir kom
starfsfólk skipsins að tali við Iðunni.
„Þau sögðu mér að hann væri látinn.
Mín fyrsta hugsun var að ég yrði að
vekja strákana til að segja þeim. Þau
vildu ekki að ég myndi gera það. Ég
vissi ekki hvað myndi gerast í fram-
haldi af þessu og fannst mikilvægt að
við fengjum að sjá Rikka áður en það
yrði of seint.“
Iðunn bað starfsmann að líta eftir
drengjunum á meðan hún fengi að
hringja heim.
„Ég náði ekki í neinn, sumar-
dagurinn fyrsti var hafinn á Íslandi
og mamma og pabbi farin upp í
sumarbústað. Ég hringdi í frænku
mína sem býr á Flórída og starfar
sem hjúkrunarfræðingur og spurði
hana hvort ég ætti ekki að leyfa
strákunum að hitta hann með mér
og hún var sammála því.“
Iðunn segist viss um að það hafi
verið rétt ákvörðun.
„Mér finnst svo magnað að þeir
hafa alltaf sofið vel, aldrei vaknað
upp með martraðir eða slíkt eftir að
hafa vaknað í þessum aðstæðum.
Þeir hafa alltaf verið sjálfstæðir og
flottir, ekki upplifað aðskilnaðar-
kvíða eða slíkt. Það hefur hjálpað
mér mikið hversu flottir þeir eru.“
Hlýja ókunnugra var styrkur
Iðunn segist hafa reynt að útskýra
sem best hún gat fyrir sonum sínum
hvað hefði gerst.
„Þeir einhvern veginn skildu þetta
um leið,“ segir Iðunn en auðvitað
hafi þeir grátið þegar þeir sáu föður
sinn látinn. „En þessi sex ára fór strax
fyrsta sólarhringinn að leiðrétta sig
og tala um pabba sinn í þátíð: „Pabbi
er rosalega … Nei, ég meina: Pabbi var
rosalega …“ og þar fram eftir götun-
um. Þetta fannst mér alveg magnað.“
Þakklát fyrir að við lifðum lífinu
Síðasta kvöldmáltíð Rikka með sonunum tveimur um borð í skemmtiferða-
skipinu, um nóttina var hann látinn. Mynd/aðsend
Sigurjón og Egill við litlu flugvélina sem flutti fjölskylduna til Nassá með fjöl-
skylduföðurinn í líkpoka. Mynd/aðsend
Iðunn stóð uppi
ein með synina
tvo á ferðalagi
þegar eigin-
maðurinn varð
bráðkvaddur.
Fréttablaðið/
anton brink
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
20 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 25. mARs 2023
lAUgARDAgUR