Fréttablaðið - 25.03.2023, Blaðsíða 10
Mér finnst allt benda
til þess að það sé ekki
búið að vinna heima-
vinnuna.
Þorbjörg Sigríður
Gunnlaugsdótt-
ir, þingmaður
Viðreisnar
Það hlýtur að vera
aðalmarkmið okkar
allra að ná niður verð-
bólgunni og lækka
vexti
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir,
formaður fjár-
laganefndar
Þingkona Pírata gagn-
rýnir þjóðarsátt á meðan
þeir fátækustu í landinu bera
þungann af verðbólgu og
vaxtahækkunum. Þingmenn
kalla eftir hækkun á fjár-
magnstekjuskatti.
helgisteinar@frettabladid.is
Efnahagsmál Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir, þingkona Pírata,
segir ábyrgðarfælni ríkja í íslensku
stjórnkerfi og að margir ráðamenn
neiti að bera ábyrgð á þeim mála-
f lokkum sem þeir fara fyrir. Hún
gagnrýnir fjármálaráðherra fyrir að
láta almenning bera mestan þunga
af verðbólgu og vaxtahækkunum.
Fyrir seinustu kosningar, í sept-
ember 2021, skrifaði Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra tvær
greinar undir fyrirsögnunum „Tveir
kostir“ og „Stöðugleiki eða óvissu-
ferð“. Þar sagði hann atkvæði greitt
Sjálfstæðisflokknum vera atkvæði
greitt ábyrgð, stöðugleika og lágum
sköttum. Hann varaði við því að
ný ríkisstjórn myndi koma verð-
bólgu af stað og hærri afborgunum
á lánum.
„Nú þegar allt er komið í steik
á hans vakt þá á að kalla eftir ein-
hverri þjóðarsátt sem felur í sér að
þjóðin eigi að sætta sig við lægri
launahækkanir og rýrnandi kaup-
mátt til þess að fyrirtækin og ríkasta
fólkið í landinu geti haldið áfram að
mokgræða á kostnað almennings,“
segir Þórhildur.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdótt-
ir, þingmaður Viðreisnar, gagnrýnir
einnig að ríkissjóður sé stanslaust
rekinn í halla sama hvort efnahags-
aðstæður í landinu eru góðar eða
slæmar. Hún segir ekkert aðhald
hafa verið verið í síðustu fjárlögum
sem hafi gert bæði Seðlabankanum
og almenningi lífið erfiðara.
Það var einnig tilkynnt í gær-
morgun að fundi fjárlaganefndar
þar sem kynna átti nýja fjármála-
áætlun hefði verið seinkað. Áætlað
var að funda á mánudaginn eftir
helgi áður en umræðan færi fram í
þingsal á miðvikudaginn.
„Mér finnst allt benda til þess að
það sé ekki búið að vinna heima-
vinnuna og nú á lokametrunum sé
verið að kippa út einhverjum ein-
staka fjárfestingum í staðinn fyrir
að gera það sem þarf að gera, sem er
að skoða ríkisreksturinn sjálfan og
sjá hvar hægt sé að hagræða og skera
niður,“ segir Þorbjörg.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, for-
maður fjárlaganefndar, segist vona
að tekið verði utan um núverandi
ástand í næstu fjármálaáætlun og
að farið verði í tekjuöflun og aðhald.
Hún er sammála því að verðbólgan
bitni mest á þeim sem minnst hafa
en segir það ekki vera stefnuna að
hlífa ákveðnum hópum í samfélag-
inu á kostnaði annarra.
„Það hlýtur að vera aðalmarkmið
okkar allra að ná niður verðbólg-
unni og lækka vexti í framhaldinu
þannig að það komi öllum til góða,“
segir Bjarkey.
Hún telur einnig að innleiða ætti
þrepaskiptan fjármagnstekjuskatt
þannig að þeir sem hafa gríðarlegar
fjármagnstekjur borgi hærri fjár-
magnstekjuskatt. „Mér finnst að
það eigi líka að leggja útsvar á fjár-
magnstekjur. Þá myndi féð skila sér
til sveitarfélaga þar sem ríku ein-
Segir bjagaðar forsendur vera fyrir þjóðarsátt
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir,
þingkona Pírata
staklingarnir eru þar að borga sér
fjármagnstekjur en skila engu til
sveitarfélagsins.“
Þórhildur Sunna segir að það sé
löngu kominn tími á hækkun fjár-
magnstekjuskatts. Á meðan verið er
að beina spjótum að almenningi og
mögulegum kjarabótum hafi verið
metár í f jármagnstekjum. Fjár-
magnstekjur af hlutabréfabraski
hafi aldrei verið hærri og fyrirtæki
séu mjög dugleg að greiða sér arð.
„Á meðan greiðslubyrði lána og
leigukostnaður eru að hækka upp
úr öllu valdi þá á almenningur bara
að sætta sig við lægri kauphækkanir
til þess að hafa hemil á verðbólgu
sem er að miklu leyti orðin til út
af metgróða í verslun, hlutabréfa-
braski og gróða í útgerðinni. Þá á
ekki að skattleggja þessa hópa sem
eiga mest heldur á að halda áfram
að kalla eftir því að þjóðin sætti sig
að fá minni hluta af kökunni,“ segir
Þórhildur Sunna. n
Þórhildur Sunna segir þjóðina virðast eiga að sætta sig við minni kaupmátt svo að fyrirtækin haldi áfram að græða.
fréttablaðið/ernir
Rafræn útgáfa af
ferðaáætluninni
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
olafur@frettabladid.is
félagasamtök Neytendasam-
tökin fögnuðu sjötíu ára afmæli í
fyrradag.
Afmælisdagurinn hófst með
því að Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra
neytendamála, og Ragnar Þór Ing-
ólfsson, formaður VR, komu færandi
hendi og fengu að bragða á afmælis-
tertu á skrifstofu samtakanna.
Gjafirnar voru af betri gerðinni.
Lilja færði samtökunum fimm og
hálfa milljón frá ríkinu og Ragnar
Þór fjórar milljónir frá VR.
Fjármunirnir verða notaðir í
úttekt sem Neytendasamtökin
hyggjast láta gera um trygginga-
markaðinn á Íslandi, greiningu á
því hvers vegna tryggingaiðgjöld
eru svo miklu hærri hér á landi en í
nágrannalöndum okkar og tillögur
til úrbóta
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir úttektina
vera nær fullfjármagnaða. Vonir
standa til að önnur launþegasamtök
komi með fjárstuðning fyrir því sem
upp á vantar, en áætlað er að kostn-
aður verði um 12 milljónir króna.
„Nú getum við farið að leita til-
boða í framkvæmd úttektarinnar,“
segir Breki.
„Það er ánægjulegt á þessum
merkisdegi íslenskra neytenda að
finna fyrir þessum ríka stuðningi
við neytendur frá bæði launþega-
hreyfingunni og ríkinu, ekki aðeins
í orði heldur líka á borði,“ undir-
strikar Breki.
Síðdegis í fyrradag tók síðan
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, á móti fulltrúum Neytenda-
samtakanna við athöfn á Bessa-
stöðum. n
Neytendasamtökin fengu stórgjafir
Forseti Íslands
og fulltrúar
Neytendasam-
takanna við
Bessastaði.
fréttablaðið/
Valli
10 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 25. mARs 2023
LAUGArDAGUr