Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Síða 57
DIOMEDE-SAMKEPPNIN
Grein: Þorsteinn Þorsteinsson.
í MAÍ sl. voru tilkynnt úrslit í samkeppni á vegum annars
vegar Institute for Contemporary Art í New York og hins
vegar Félagi rússneskra arkitekta í Moskvu um Diomede-
eyjar í Beringssundi milli Síbiríu og Aiaska. Diomedeeyjar-
nar eru eini staöurinn í heiminum þar sem stórveldin tvö,
Sovétríkin og Bandaríki Norður-Ameríku, mœtast. Milli
tveggja eyja, Litlu-Diomede og Stóru-Diomede, sem hvor
heyrirtilsínustórveldinu,eruum3kílómetrar. Meö bœttum
samskiptum þjóðanna hefur athyglin beinst aö eyjunum.
M.a. synti Lynne Cox milli eyjanna tveggja áriö 1986 og
hlaut fyrir lof ráðamanna beggja ríkjanna. Lynne þessi
kom einmitt hingað fyrir nokkrum árum í heimssundi sínu
og synti yfir Mývatn. Því var þaö að áðurnefnd samtök
tóku sig saman um aö efna til samkeppni um mannvirki er
tengja myndi eyjarnar og vera jafnframt tákn fyrir aukin
samskiptiþjóðanna. Eitt gerirviðfangsefniöskemmtilegra
en ella og það er aö milli eyjanna liggur daglínan (180°
lengdarbaugur).Þó svo engin fyrstu verðlaun hafi verið
veitt þá hlutu ýmis verkefni viðurkenningu, þar á meðal
tillaga Guðmundar Jónssonar, arkitekts í Noregi.
Hugmyndin, sem Guðmundur lagði til, er brú milli eyjanna
sem snýst þannig að snúningur fylgir sólargangi. Brúin
tengir saman eyjarnar tvœr aðeins tvisvar á sólarhring,
þ.e.kl.ó.OOogkl. 18.00og undirstrikaráþannhátttengslin
við tímann og staðsetninguna á dagalínunni.
Önnur hugmynd Guðmundar varðandi Diomedeeyjar-
nar er að settar eru upp eins konar eyjar, 24 talsins, í hring
með miðju t snúning brúarinnar og falla saman við mörk
klukkustundar. Þegar brúin beinist að þessum eyjum, sem
eru 6 m í þvermál, þá lýsast þœr upp báðum megin með
leisirljósi,- rauðu Síbiríumegin og bláu Alaskamegin. Þegar
brúin snýr í norður/suður kl. 12.00 og kl. 24.00 lýsast allar
Ijóseyjarnar samtímis. Á hverri Ijóseyju er áletrun sem segir
sögu Diomedeeyjanna.
Eins og fyrrsagði voru ekki veitt nein verðlaun meðal hinna
1290 tillagna en nokkrar fengu sérstaka tilnefningu ein-
stakra dómnefndarmanna og valdi Patricia Phillips frá
Parason's School of Design í New York tillögu Guðmundar
auk fimmtán annarra, meðal þeirra voru nöfn eins og
Lawrence Weiner og Alexander Brodsky og llya Utkin.
Sýning á tillögunum var síðan opnuð í New York 18. maí sl.
eneftir2.júlífórsýningintilannarra sýningarstaðaíBanda-
ríkjunum og fer síðan til Sovétríkjanna. Síðar meir er svo
œtlunin að koma sýningunni til Evrópu, Kananda og
Japans. Hver veit nema við hér á landi fáum að sjá
hugmyndir hönnuða og arkitekta um hvernig hœgt verður
að tengja saman austrið og vestrið á táknrœnan
máta. ■
55