AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Blaðsíða 20
Þingskálinn við Kirkjustræti. Þarna dregur nýbygging þingskálans dám af Alþingishúsinu og er dregin aftar í götumyndinni. Gott dæmi um það
hvernig við-og/eða nýbyggingar geta styrkt sögulegt umhverfi. Hönnuðir: Batteríið, 1999-2002.
A good example how additions and/or new buildings can strengthen historic environment is how the new building of þingskálinn harmonises with
theParliament Building and is pulled back from the street. Design: The Batterí, 1999-2002.
1. Hönnun byggist á upplýstu, faglegu mati á stöðu, gerð, og útliti eldri
byggðar og staðsetningu og samhengi lóðar í umhverfinu. Huga ber að
því hvaða flokki verndunar húsið/svæðið tilheyrir skv. Þróunaráætlun
miðborgar.
2. Því sterkari sem heildarsvipurinn er yfir sögulegu svæði Því sterkari
verður krafan um að nýbyggingar dragi dám af því.
3. Á svæðum með fjölbreyttum húsagerðum ættu nýbyggingar að bera
einkenni síns tíma en jafnframt styrkja staðbundin sérkenni.
4. Taka mið af þéttleika, stærðarhlutföllum, hæð og yfirbragði svæðis-
ins. Þar sem fjölbreytileikinn er mikill er sjaldnast viðeigandi að taka mið
af því sem er stærst og/eða hæst.
5. Aðlögun milli nýrra bygginga og þess sem fyrir er má ná með formi
(stærð, hæð og hlutföllum), efnisnotkun og góðri hönnun smáatriða, til
að skapa samræmi, andstæður eða jákvæða spennu.
6. Vanda mjög til hönnunar, útfærslu og framkvæmdar smáatriða og
deililausna, t.d. innbyrðis hlutfalla opa, kvista o.s.frv.
7. Varast ber eftirlíkingar af góðri byggingarlist fyrri tíma. „Barn síns
tíma“ á meiri rétt á sér en óvandaðar eftirlíkingar.
8. Ómarkviss notkun lita getur eyðilagt hönnun, sem að öðru leyti er
vönduð.
9. Varast breytingar sem gætu haft neikvæð áhrif á sögulega byggð.
10. Gerð er krafa til þess að nýbyggingar í eldri hverfum séu auðlesnar,
fallegar að allri gerð, efnisnotkun og áferð, þannig að þær fegri og styrki
það umhverfi sem þær eru settar inn í.
Eins og sagt var í upphafi er
gengið út frá því að mjög mikil-
vægt sé að vernda hluta bygging-
ararfsins þannig að komandi kyn-
slóðir finni sig sem hluta í þeirri
samfellu og þróun sem markar
sjálfsmynd þjóðarinnar og sér-
stöðu útávið. Verndun byggist á
skilningi og væntumþykju á um-
hverfinu. Erfitt er að þykja vænt
um það sem ekki er þekkt. Það
er því grundvöllur allrar stefnu-
mörkunar og eftirfylgni varðandi
húsvernd og menningarstefnu í
byggingarlist að allir sem koma
að breytingum á hinu byggða
umhverfi séu vel upplýstir og
þekki vel það svæði sem unnið er
á hverju sinni. Þannig munu ný-
byggingar skapa gott umhverfi
fyrir okkur til búsetu og starfs í
dag og jafnframt verða góður
byggingararfur framtíðar. ■
8