AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Blaðsíða 67
Samkvæmt þessu lít ég ekki á
,,menningarstefnu“ borgarinnar
sem birtingarmynd þess hvernig
styrkjum er úthlutað. Menning er
hluti af lífsgæðum í borginni, fyrir
allan almenning. Hún er líka hluti
af atvinnustefnu borgarinnar, því
þau störf sem tengjast menning-
arlífi eru skemmtileg, örvandi og
hvetjandi fyrir ungt fólk, og oft
skapa þau mikil tækifæri og jafn-
vel gróðavon. Menningarlíf er
mikilvægur grundvöllur fyrir aðra
atvinnuvegi, svo sem ferða-
mennsku, sem er einn stærsti at-
vinnuvegur á íslandi. Og svo er
spurning um menningu spurning
um sjálfsmynd borgar og fólks
sem hana byggir. Allt þetta hverf-
ist svo um þá dásamlegu stað-
reynd að manneskjan er skap-
andi, og það umhverfi sem hér er
lýst getur af sér meiri sköpun og
lífsnautn en ella væri fyrir hvern og
einn.
Anna Líndal sýnir á Listasafni Islands á Vetrarhátíð 2003. Exhibition by Anna Líndal in Listasafn
(slands, Winter Festival 2003.
Þannig vil ég að menníngarstefna
Reykjavíkurborgar sé í fram-
kvæmd: Samskipti við fjölda
ólíkra aðilja sem leiddir eru saman
í krafti fjármagns og atgervis til að
skapa meira, stærra og öflugra
samskiptanet um sköpun og listir
en takmarkaðir styrkir í einstök
verkefni geta gert. Þannig verður
til öflug umgjörð sem stenst tím-
ans tönn og lifir dægurstjórnmál.
Óháð duttlungum stjórnmála. ■
Leikrit á Austurvelli á Menningarnótt 2002. / Play on Austurvöllur, Reykjavík
Eldsmiður á Skólavörðustlg á Menningarnótt 2002. / Firesmith
on Skólavörðustígur, Reykjavik Cultural Night 2002
65