AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Blaðsíða 71
lýsingum. Það verður því æ mikil-
vægara fyrir framleiðendur, sér-
staklega fyrir lítil og meðalstór fyr-
irtæki, að ná til viðskiptamanna
sinna og stækka þann hóp með
þeim hætti. Rafræn markaðstorg í
viðskiptum milli fyrirtækja verða á
næstu árum mikilvægur hluti af
viðskiptaáætlun allra fyrirtækja.
Þeir aðilar sem láta upplýsingar í
té (framleiðendur byggingarvöru
og byggingarefnasalar) hafa verið
að fjárfesta meira og meira í raf-
rænum upplýsingum um fram-
leiðslu sína og í efni til að mark-
aðssetja og kynna framleiðsluvör-
ur og þjónustu. En það þarf líka
umtalsverða vinnu og fjármagn til
að stjórna og halda við þessum
upplýsingum sem koma frá mörg-
um stöðum. Lausn eÞroCon fyrir
umsýslu upplýsinga um bygging-
arvörur og upplýsingalíkön gera
kleift að halda við einu afríti
af upprunalegum upplýsingum
annaðhvort hjá upplýsingaþjón-
ustu eða á staðnum. Framleið-
endur geta auðveldlega gert vöru-
lista, upplýsingabæklinga og sölu-
efni fyrir prentun, eða til dreifingar
á netinu til efnasala og viðskipta-
manna, í mismunandi miðlunar-
formi og fyrir mismunandi enda-
búnað með litlum fyirvara. Einnig
er hægt að eiga rafræn viðskipti
og skiptast á upplýsingum við að-
ila í aðfangakeðjunni mun hag-
kvæmar en ella.
Það er nú orðið algengt að fag-
menn í byggingariðnaði noti upp-
lýsingatækni í daglegri vinnu, CAD
við teikningar og mismunandi
hugbúnað við skipulag, tímaáætl-
anir, kostnaðaráætlanir, burðar-
þolsgreiningu og sjónræna fram-
setningu. Samskipti milli aðila
hafa að verulegu leyti flust yfir á
Internetið. Rafpóstur, FTR og
verkefnavefir eru notaðir til að
skiptast á skrám og upplýsingum.
Engu að síður er samræming á
aðferðum samskipta milli hugbún-
aðarkerfa ennþá í bernsku, jafnvel
þótt mikið hafi áunnist á alþjóða-
vettvangi til að skilgreina aðferðir
við að lýsa byggingum á tölvu-
tæku formi. Líkön fyrir byggingar
(ISO STEP, IAI IFC) hafa fengið
mikinn stuðning bæði frá bygg-
ingariðnaðinum og hugbúnaðar-
framleiðendum sem tækni til að
skiptast á og deila samræmdum
upplýsingum um byggingar og
þjónustukerfi milli forrita frá mis-
munandi aðilum sem selja hug-
búnað, en notkun og útbreiðsla
innan bygingariðnaðarins hefur
ekki verið almenn enn. Upplýsing-
ar sem byggja á líkönum um
byggingarefni og byggingarvörur
eru hinsvegar ennþá einungis á
tilraunastigi. Þetta svið er mjög
stórt, aðilar eru margir og upplýs-
ingaþörf þeirra er mjög mismun-
andi. Þetta eru þó grundvallarat-
riði til þess að hægt sé að sam-
nýta forrit, samræma aðferðir og
fyrir markvissri samvinnu aðila í
byggingariðnaði. Arkitektar, verk-
fræðingar og verktakar þurfa ná-
kvæmar upplýsingar um bygging-
arvörur í rafrænu formi án þess
að þurfa að „slá inn" allar þessar
upplýsingar frá framleiðendum.
EProCon tekur á þessu sérstaka
vandamáli sem byggingariðnaður-
inn á nú við að etja. Fiönnuðir
eiga að geta notað rétt upp-
byggðar upplýsingar um bygging-
arvörur í þeim forritum sem þeir
nota þegar þær hafa verið settar
fram í formi sem samræmist
eProCon likaninu og getur inni-
haldið upplýsingar t.d. um eigin-
leika byggingarvöru og þrívíð lík-
ön. Á sama hátt geta verktakar
sem fá verklýsingar frá hönnuðum
fundið vörur sem uppfylla fram-
settar kröfur með því að setja
upplýsingarnar beint inn í forrit
sem finnur framleiðendur og síðan
keypt þær á netinu.
Aðilar að eProCon
Vinnan við eProCon er styrkt að
hluta af Norræna Iðnþróunar-
sjóðnum og í þessu verkefni taka
þátt 9 aðilar frá Norðurlöndunum:
Byggecentrum, DK, Technical
Research Center of Finland -
Building and Transport (WT),
Building Information Foundation
(RTS) Fl, Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins, Byggingar-
þjónustan, og ePRO, Knowledge
& Solutions Ltd, IS, Norsk Byggtj-
eneste, NO, Svensk Byggtjánst
og GDL Technology Nordic
Europe, SE. ■
69