AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Blaðsíða 23

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Blaðsíða 23
Ragnar Jón Gunnarsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, Magnús Skúlason, arkitekt Ragnar Jón Gunnarsson vinnur að sérverkefnum hjá Húsafriðunarnefnd ríkisins. Magnús Skúlason, er forstöðumaður Húsafriðunarnefndar ríkisins. Af hverju á að vernda gömul hús? Fyrir okkur sem vinnum með menningarsöguleg verðmæti er það engin spurning, það á að vernda gömul hús. Skoðum fyrst tvö hugtök, húsa- friðun og húsvernd. Með húsafrið- un er átt við lögformlega friðun gamalla húsa, eða nýlegra ef út í það er farið. Gömul hús sem reist voru fyrir 1850 eru friðuð sam- kvæmt lögum (104/2001) og kirkjur sem reistar voru fyrir 1918 sömuleiðis. Húsvernd er öllu víðara hugtak og nær til annarra varðveisluverðra húsa, götumynda, hverfa eða bæjarhluta. Með húsvernd er oft- ast verið að ræða um að leita uppi svipmót liðins tíma sem vert er að halda í, svipmót sem bygg- ist á heildum sem eru mikilvægari en einstök hús. Húsin eru al- mennt ekki friðuð og breytingar á þeim heimilar en breytingum á formi og útliti þeirra sett mörk sem fram eru sett í byggingarskil- málum sem fylgja deiliskipulagi. Húsvernd er einnig skráning á bæjum, svokölluð húsakönnun sem sveitarfélög hafa staðið í að framkvæma og Húsafriðunarsjóð- ur hefur veitt styrki til. Húsakann- anir leggja grunn að deiliskipulagi byggðra hverfa og eru skilyrtar samkvæmt skipulagslögum. Friðuð hús eru tiltölulega nýleg hús ef borið er saman við ná- grannalönd okkar, en byggingar- saga okkar er stutt eins og saga þjóðarinnar er. En samkvæmt sömu lögum er einnig gert ráð fyrir að hægt sé að friða samtíma- mannvirki sem ástæða þykir til að friða. Sem dæmi um slíka friðun má nefna tillögur Húsafriðunar- nefndar um friðun verka eftir Guð- jón Samúelsson. En það á ekki að friða allt heldur að leggja áher- slu á að friða góð hús, hús sem eru góð dæmi um byggingarlist og handverk síns tíma og eru í sínu upprunalega skipulagslega samhengi. Þannig er kominn tími til að afnema friðun húsa sem lítið eða ekkert hafa að leggja til bygg- ingararfs þjóðarinnar. Þá myndast líka svigrúm til að styrkja með rausnarlegri hætti þau hús sem góð þykja. „Errare humanum est“ Það er mannlegt að gera mistök og mennirnir hafa svo sannarlega gert mistök í gegnum tíðina. Stokkhólmur var kviðskorinn á sjötta áratugnum, Reykjavík varð með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1963 að bílaborg, nánast á einni nótt. Og oft hefur legið nærri mistökum hér hjá okkur á hjara veraldar. Torfan átti að víkja fyrir fún- kiskössum (sem eflaust væri búið að skipta um andlit á nú þegar), með sömu hugmyndafræði hafði nær tekist að eyðileggja Tjarnar- götu og fleiri slík dæmi má nefna sem urðu sem betur fer ekki að raunveruleika. Hver vildi skipta í dag? Þannig vinnur tíminn stund- um með því gamla sem verður fyrir árásum skammhyggju. Mörg gömul hús hafa verið eyðilögð eða við þau bætt húsum sem nota allt annað formmál, efn- isnotkun og/eða yfirborð. Þekkja ekki allir augnstungin timburhús eða tveggja, þriggja hæða timbur- hús þar sem fyrstu hæðinni hefur hreinl'ega verið sópað burtu og glervirki sett í hennar stað. Það er mannlegt að gera mistök en það má svo sannarlega halda þeim í skefjum með varkárni. Hlustum á húsin hvað þau vilja við okkur segja Gefum okkur tíma áður en hús eru rifin, flutt eða umturnað. Töl- um við húsin, hlustum á þau og kynnumst þeim og það kann að vera að við skiptum um skoð- un. Við þurfum aðeins að hlusta og hugsa til að finna fyrir tímabili í sögu þjóðarinnar, tímabili í bygg- ingarlistasögu okkar og sjáum þá fyrir okkur hönnun, byggingarefni, verkmenningu, og verkfæri sem notuð voru þegar húsið var byggt og við það bætt. Við megum ekki lenda í þeirri blindgötu hroka sem því fylgir að halda að allt sem við gerum í dag sé eitthvað sérstakt og betra en það sem áður gerðist. Aðeins tíminn mun skera úr um hvort verk nútímans standist hans frægu tönn. Byggingarefni voru jafnan mun vistvænni og betri en það sem nú gerist, því miður, og á þetta ekki síst við um timbur. í bygging- arefnum liggja því dulin verðmæti sem ekki verða endursköpuð. Nú eru byggingarefni oftast verk- smiðjuframleidd og timbur hraðsprottið. Áður voru líka not- aðar aðferðir sem ekki þekkjast lengur, s.s. handheflaðir listar og önnur strik. Húsvernd og skipulag Bæir og borgir eru lifandi saga. Engin ein aðferð til að lesa sögu þjóðar er þekkt, en sú að fara í skoðunarferðir um bæi eða borgir. Þær endurspegla söguna og segja hana á hljóðlátan en eftirminnilegan hátt. Þetta á einnig 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.