AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Side 17

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Side 17
Vettvangur skipulags- málanna Vettvangur skipulagsmála hér á landi hefur verið afar fjölbreytilegur og viðburðaríkur síðustu ár. Þannig hafa þeir sem sinna skipulagsmálum ekki bara fengið nýja lagaumgjörð að vinna í, heldur einnig fjöldann allan af nýjum krefjandi viðfangs- efnum að fást við. Ekki verður hér í fáum orðum gefin nein heildar- mynd af vettvangi skipulagsgerðar á undanförnum árum, en nokkrar af þýðingarmiklum áskorunum skipulagsgerðar hafa t.d. varðað: • áframhaldandi búsetu- þróun þar sem höfuðborg- arsvæðið vex, en lands- byggðin stendur í stað • stækkandi sveitarfélög, land- stór en tiltölulega fámenn • tæknibyltingu með tilkomu Internetsins og tölvupósts • nýtt met okkar í bíla- eign og akstri • umtalsverðan vöxt í áliðnað- inum og tilsvarandi umfang í virkjunarframkvæmdum, bæði í vatnsafli og jarðvarma • stöðuga fjölgun ferða- manna, bæði erlendra og innlendra, með tilheyrandi vexti í ferðaþjónustu og ferðum m.a. um hálendið • verulega breytingu á land- notkun og nýtingu í dreifbýli, með hnignun hefðbundins landbúnaðar, verulegri fjölgun og stækkun frístundabyggð- arsvæða, átaki í skógrækt og aukinni ásókn í búsetu í dreif- býli án tengsla við búskap • tilkomu nýrra atvinnugre- ina eins og fiskeldis í sjó Þessar svipmyndir gefa ekki heild- armynd af aðstæðum skipulags- gerðar hér á landi, en þær sýna að margt er að takast á við og samþætta, þegar landnotkun er skipulögð. Þær sýna einnig að for- sendur skipulagsgerðar geta gjör- bylst á fáum árum og komið fram nýjar atvinnugreinar og landnýting sem gefur ný tækifæri í skipulags- gerð og/eða er landfrek og hefur langtímaáhrif á land og samfélag. Áherslur í skipulags- málum Eins og áður segir hafa nýjar áhersl- ur gert vart við sig í framkvæmd skipulagsmála á undangengnum árum. Bæði má tengja það beint áherslum skipulags- og byggingar- laga og skipulagsreglugerðar frá 1998, en einnig öðrum straumum og stefnum í skipulagsmálum. Mikið átak er yfirstandandi hjá sveitarfélögum landsins í að vinna að fyrstu kynslóð aðalskipulags sem setur fram landnotkunarstefnu um allt land innan stjórnsýslumarka hvers sveitarfélags. Jafnframt er mun meira líf í deiliskipulagsgerð, bæði í þéttbýli og dreifbýli, en áður. Þá höfum við séð verða til fyrstu heildstæðu skipulagsáætlun fyrir miðhálendið. Við höfum fengið nýtt svæðisskipulag fyrir höfuðborgar- svæðið og aðalskipulag fyrir höfuð- borgina þar sem vísir er að áherslum á blandaðri og þéttari byggð en almennt hefur tíðkast í skipulags- gerð hér á landi, þótt enn sé óreynt hvernig þeim áherslum verður fylgt eftir í deiliskipulagi og framkvæmd- um. Þá hefur íbúalýðræði við mótun skipulagshugmynda fengið aukna athygli og ný form reynd í þeim efnum, s.s. íbúaþing. Það hefur því margt verið gert og nýjar leiðir reyndar. Það eru engu að síður ófá viðfangsefnin að takast á við í skipulagsmálum. Að endingu vil ég nefna nokkur atriði sem ég tel sérstaklega brýn á næstu árum: • Við þurfum að þróa áfram skipulagsumgjörðina sem lagt var upp með í skipulags- og byggingarlögum 1997 og huga þar betur að þáttum sem varða heildræna langtímasýn, skilvirkni skipulagsgerðar og samræmingu stefnu, bæði milli ólíkra málaflokka og á milli skipulagsstiga, auk þess að þróa áfram hinn lýðræðislega þátt skipulagsferlisins, umhverfismat skipulagsákvarðana og úrræði stjórnvalda gagnvart ágreiningi og brotum. • Við þurfum að efla fagþekkingu, faglega umræðu um skipulagsmál og rannsóknar- og þróunarstarf, þvert á einstakar faggreinar og stofnanir. í okkar fámenna samfélagi er lykilatriði að sameina krafta þeirra mennta- og fagstofnana og fagaðila annarra sem með einum eða öðrum hætti sinna þessum málum. • Við þurfum að efla þann þátt í fagvitund og fagþekkingu þeirra sem sinna skipulags- gerð sem snýr að ferlinu sjálfu, þátttakendum í því og nýtingu þeirra tækja sem til boða standa. Skipulagsgerð er ekki staðfræðikortlagning og felur í sér annað og meira en uppdráttagerð. • Við þurfum að auka þekkingu og áhuga almennings á skipulagsmálum. Lykill að gagnsemi skip- ulagsgerðar fyrir samfélagið er að borgararnir séu virkir þátttakendur. Til þess þarf almenning- ur og fjölmiðlar að þekkja til mála og telja sig geta haft gagn og gaman af því að taka þátt. • Og það þarf að gæta að framkvæmd skipulagsmála til enda. Lykilatriði fyrir trúverðugleika skipulag- skerfisins gagnvart bæði hinum almenna borgara og framkvæmdaraðilum er að leikreglur séu virt- ar. Leikreglur um ráðstöfun lands til mannvirkjagerðar og framkvæmda eru festar í skipulagslögum. Ábyrgð skipulagsyfirvalda er stór að sjá til þess að skipulagsákvæði öðlist líf, en rykfalli ekki lífvana og gagnslaus. Og þau þurfa að halda vöku sinni og beita sér þegar framkvæmdafólk vegna virð- ingarleysis eða vanþekkingar á leikreglunum fer sínu fram í trássi við skipulag og leyfi. ■ avs 1 7

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.