AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Síða 20

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Síða 20
Framkvæmd skipulags í Reykjavík Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaöur skipulags- og byggingarnefndar Myndir: Gatnamálastofa. Reykjavík hefur á tiltölulega stutt- um tíma breyst úr bæ í borg með tilheyrandi hliðarverkunum, bæði jákvæðum og neikvæðum. Um miðja síðustu öld óx borgin hratt inn á við og stækkaði, ný hverfi byggð- ust upp s.s. Hlíðar, Melar, Tún, Vogar, Lækir og Sund. Mikil þensla var á öllum sviðum og á áttunda og níunda áratugnum byggðust upp úthverfi borgarinnar, Árbær, Breiðholt og síðan Grafarvogur og Grafarholt. Byggð svæði innan borgarmarkanna hafa því stækkað gríðarlega mikið á fáum áratugum. Tilhneigingin hefur verið sú að brjóta ætíð nýtt land undir ný hverfi enda er það oftast nær einfaldasta og fljótlegasta aðferðin við uppbyggingu nýrra íbúðahverfa. Það má líka setja þessa tilhneigingu í samfélagslegt samhengi. Nýtt ungt borgarsam- félag, sem var orðið nokkuð vel- megandi upp úr seinna stríði, var nú tilbúið að breiða úr sér, fara að fjárfesta í nýrra og stærra húsnæði með meira rými umhverfis en áður - og tilkoma einkabílsins „dró úr“ vegalengdum milli heimila og vinnu- staða. Þannig sjáum við að elsta byggð borgarinnar í Kvos, Vesturbæ og Þingholtum, byggðin sem varð til áður en bílaeign varð almenn, er ein sú þéttasta miðað við flatarmál. Þéttleikinn er einnig nokkur í þeim hverfum sem byggðust um miðja tuttugustu öldina en það er fyrst í nýju úthverfunum sem byggjast upp á sjöunda og áttunda áratugnum að byggðin verður strjálli. Ástæðan er meðal annars sú að í úthverfum er oft og tíðum ódýrara að byggja fyrir framkvæmdaraðila, eins og komið verður að hér síðar. Ef þétt- leiki hverfa er borinn saman (fjöldi íbúða á hektara) milli nokkurra hverfa, kemur í Ijós að í Vesturbænum eru að meðaltali 34,9 íbúðir á hektara, í Hlíðum eru þær 28,9 á hvern ha, í Staðarhverfi 10 á hvern ha og í Foldahverfi eru að meðaltali 12,5 á hverjum ha. í næsta nýbygginga- svæði Reykjavíkur, Úlfarsárdal, er þétt- leikinn hins vegar mun meiri en hefur tíðkast í úthverfunum, eða 32 íbúðir á hektara. f samþykktu Aðal- skipulagi Reykjavíkur er þétting byggðar lykilhugtak m.a. vegna þess að fólk verður sífellt meðvitaðra um ýmsa neikvæða þætti dreifðrar byggðar. Reyndar á þetta ekki bara við um Aðalskipulag Reykjavíkur heldur einnig annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og endurspegl- ast það í Svæðisskipulagi höfuðborg- arsvæðisins. Þétting byggðar snýst nefnilega um lífs-gæði öðru fremur - lífsgæði bæði núverandi og komandi kynslóða. Þau gæði sem felast í því að umferð og loftmengun minnkar, vegalengdir styttast og mannlíf verður þroskaðra. Það var t.d. athyglivert að sjá í könnun sem nýlega var gerð á þjónustu Reykjavíkur að borgarbúar telja helstu galla borgarinnar vera mikla bílaumferð, slæmt gatnakerfi, slæmar almenningssamgöngur og að borgin sé of dreifð. Ef betur er að gáð kemur í Ijós að allir snúast þessir þættir um skipulag. Engu að síður hefur hugtakið þétting byggðar á sér neikvætt yfirbragð, sem er kannski ekki svo óeðlilegt þegar haft er í huga að þétting felur oft og tíðum í sér mikla breytingu á því umhverfi sem fólk hefur búið við áratugum saman. En skoðum nú nánar hvað verið er að gera með skipulagi. Skipulag er í raun rammi utanum lífsgæði. Þau tæki sem sveitarfélög hafa til að móta þessa ramma, lögum sam- kvæmt, eru annars vegar aðalskipu- lag og hins vegar deiliskipulag. í aðalskipulagi eru stóru línurnar lagðar og markmið og leiðar- Ijós sveitarstjórnar um framtíð sveitarfélagsins sett fram, en í deiliskipulagi er fjallað nánar um útfærslu byggðar í umhverfinu og tekið á þáttum s.s. byggingar- formum, hljóðvist og hvaða kröfur eru gerðar varðandi bílastæði. í þessu samhengi er rétt að minna á það að í deiliskipulagi er hægt að ákveða þéttleika byggðar og hvernig Gamli miðbærinn. / The old centre

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.