AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Síða 39

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Síða 39
Skúli lauk C.S. verkfræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1996 og doktorsprófi í snjóverkfræði og vegagerð frá NTNU í Þrándheimi árið 2002. Hefur starfað hjá Orion Ráðgjöf síðan 2002. Inngangur Á íslandi hefur vindur mikil áhrif á daglegt líf. Vindur og skafrenningur geta tafið og hindrað samgöngur á Staðlaður vindhraði 25 m hæð yfirjöröu Vindhormun á 75 m reiknimöskva. Vindhraöadreifing 125 m hæö yfir jörö. Landllkan eftir stafrænum gögnum I mkv. 1:50.000, © Landmælingar Islands. Orthomyndir, © Loftmyndir ehf. Reiknillkan án hitastiguls I lofthjúp og þvi llklegt vanmat á vindhraöa I hllöum hlómegin Qalla. Inngangsskilyröi: Jaöarlagsþykkt 500m, hrýfi lands 5 mm, vindhraði viö efrí mörk jaöaríags 20 m/s. Veöurstöö: Vopnafjaröaheiöi ■ Vegageröin Vlndrós Mælingar 1994 - 2001. Slun: U >10 m/s ^ T < 0*C Vegagerðin Norðausturvegur - Tenging Vopnafjarðar við Hringveg (1) Svæöi Vo 302 og Vo 301, Þuríöarvatn Vindhraöakort Reiknaðar vindrósir I 25 m hæð á grundvelli veðurstöövar á Vopnafjarðarheiði Borgartún 29 105 Reykjavlk Kt. 470199-2299 Slmi: 552 9970 Fax: 552 9974 Netfang: orion@onon is Veffang: www.orion Teiknaö 8Þ vegum bæði innan og utan þéttbýlis og skafrenningur veldur auknum kostnaði við snjómokstur. Víða í byggð setur vindur útivist skorður og einnig þekkist að snjóskaflar vegna skafrennings hindri aðgengi að húsum. Staðbundin áhrif vinds og skafrenníngs eru mjög háð skipulagi byggðar, húsagerð og skipulagi samgöngumannvirkja. Staðsetning og viðmót mannvirkja í landslaginu skiptir þar miklu máli, samspil bygginga og notkun vind- brjóta. Upplýsingar um algeng- ustu og sterkustu vindáttir og um snjóafar og skafrenning auðvelda hönnuðum að velja heppilegar lausnir með tillti til veðurfars. Vindakort Með tölvuhermun á vindi og upp- lýsingum frá veðurstöðvum er nú hægt að útbúa vindakort, sem lýsa dreifingu vindhraða í landslag- inu og áhrifum mannvirkja á vind. Þá er unnt að varpa upplýsingum frá nálægum veðurstöðvum inn á athugunarstað og fá þannig upplýs- ingar um tíðni mismunandi vindátta og vindhraða, svokallaða vindrós, líkt og ef veðurstöð hefði staðið á athugunarstaðnum. Framsetning niðurstaðna er á formi korta sem sýna vindhraðadreifingu með lita- kvarða, sem getur verið hálfgegn- sær og legið þannig ofan á loftmynd eða öðrum grunnupplýsingum. Vindrósir er hægt að reikna fyrir ótakmarkaðan fjölda staða innan athugunarstaða og hægt er að varpa þeim yfir lengri vegalengdir þó langt sé í næ stu veðurstöð. Dæmi um vindakort fyrir tiltekna vindátt, ásamt myndum af vindrósum, er á Mynd 1. Skafrenningsaðstæður má túlka með notkun vindakorta. Til þess er notað fræðilegt samband milli vinds og skafrennings en að auki er tekið mið af reynslugögnum frá skafrennings- og snjósöfnunarrann- sóknum við mismunandi aðstæður. Vinnuferli Forsenda er að stafræn kort og mæliröð úr veðurstöð séu til stað- ar, auk vindhermis í tölvu. Útbúið er þrívítt landlíkan og það sett inn í vindhermi. Reiknað er fyrir eina vindátt í einu, fjöldi vindátta fer eftir þörfum hverju sinni, en ef varpa á vindrósum innan athug- unarstaðar þarf að reikna úr öllum megináttum, ýmist átta eða sextán. Niðurstöður úr hermun fyrir hverja vindátt eru birtar sem rastamynd sem lýsir vindhraðadreifingu. Einnig má birta vindstefnur á hverjum stað með vektorum og unnt er að gera straumlínugreiningu sem rekur feril vinds milli staða. Myndir má taka inn í teiknikerfi og birta ásamt öðrum upplýsingum að vild. Takmarkanir Vindhermanir sem hér hefur verið lýst eru unnar í reiknilegu straum- fræðikerfi sem tekur ekki tillit til lag- skiptingar andrúmslofts eftir hitastigi (hitastiguls). Þetta getur t.d. valdið því að hlémegin fjalla reiknast vind- hraði lægri en ella. Þegar hæðar- munur í landslaginu er hins vegar minni en u.þ.b. 200-300 m hefur hitastigull lítil áhrif á vind. Vörpun vindrósa er aðeins nálgun á þeim mismun sem ríkir milli tveggja athug- unarstaða enda byggir hún á því að tiltekinn vindhraði og vindátt á einum stað valdi alltaf sama snúningi vind- áttar og sömu hlutfallslegu breytingu á vindstyrk á öðrum stað, óháð því hvers konar veður er um að ræða. Lokaorð Aðferðin hefur þegar sannað gildi sitt á íslandi. Unnin hafa verið vindakort m.a. vegna könnunar á skafrenningi og veðurhæð vegna vegagerðar, við rannsókn á umferðarslysum sem tengjast vindafari, við mat á snjóflóða- hættu, við rannsókn á skafrenningi við snjóflóðavarnargarða og vegna skipulags og reksturs skíðasvæðis. Vegna aukinnar kröfu um áreiðan- legar samgöngur og vegna sam- keppni sveitarfélaga um að bjóða vel staðsett og vel skipulögð byggingar- lönd má reikna með að upplýsingar um veðurfarsþætti eins og vind og skafrenning verði sífellt mikilvægari í skipulagsvinnu í framtíðinni. ■ avs 39

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.