AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Page 46

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Page 46
SKOÐUN / OPINION Dr. Oddur Benediktsson, prófessor Umhverfi Reykjavíkur hefur breyst mikið frá miðjum sjöunda áratug síðustu aldar, þegar ég kom heim frá framhaldsnámi. Þá átti ég blaut- búning og súrefniskúta og kafaði eftir kræklingi í Straumsvík, Hvalfirði og víðar. Oft var farið í gönguferð- ir um hálsana fyrir ofan Ferstiklu, eftir gamla Þingvallaveginum, í Hengladalina, á Hellisheiði, um Skarðsmýrarfjall, upp af Kolviðarhóli og á Vatnsleysuströnd. Þessir staðir eru ekki aðlaðandi til útivistar nú. sumar kom útvarpsfrétt um að loftmengun í Reykjavík nálgaðist hættumörk. Brennisteinsloftmengunin á svæðinu frá Grundartanga til Straumsvíkur á eftir að næstum tvöfaldast í náinni framtíð. Þessu veldur stækkun Norðuráls, heim- iluð stækkun ÍSAL og fyrirhuguð rafskautaverksmiðja á Katanesi. Ætla má að hættuástand skapist á þessu svæði vegna loftmengunar- innar. Lofttegundin brennisteinstvíildi (SO2) veldur loftmengun og súru regni. Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu íslands var heildarút- streymi af mannavöldum af SO2 á íslandi 9,8 þús- und tonn árið 2002. Til samanburðar má geta þess að árleg losun SO2 í Danmörku er 28 þús- und tonn, í Noregi 26þt, í Svíþjóð 58þt og í Finnlandi 74þt. Heimiluð aukning á SO2 útblæstri við stækkun Orkuver, háspennuturnar, hraðvegir eða þá málm- bræðslur blasa nánast alls staðar við. Og allt bendir til þess að röskun umhverf- isins í þágu stóriðju á þessu svæði sé langt frá því lokið. R-listinn lofaði í fyrstu að raforkuver á Nesjavöllum yrði nýtt til þess að lækka raforkuverð í Reykjavík. Það rafmagn fór þess í stað rakleiðis í Norðurál á undirprís. í staðviðrinu síðastliðið álvers á Grundartanga eru 1,7 þt, Straumsvík 4,1 þt, Reyðaráli 3,9 þt og yrðu 0,7 þt frá rafskautaverk- smiðjunni. Þessi aukning er 10, 4 þt og verður heild- arlosun íslands á SO2 þá 20,2 þúsund tonn á ári og farin að slaga upp í heildarlosun í Danmörku og Noregi. Meiri hluti þessarar los- unar er á svæðinu frá Straumsvík til Hvalfjarðar. Ég hef árangurslaust leitast við að fá upplýsingar um hvaða áhrif þessi mengun hafi á fólk, dýr og plöntur til langframa. Maður spyr sig hvaða hagsmunir ráði því að það er böðlast svona áfram? Raunverulegur hagnaður af stóriðjunni fer til erlendra eigenda. Arðsemi fjárfestinganna í orku- mannvirkjum er lág. Störfin sem skapast eru fá miðað við fjárfest- inguna í infrastrúktúrnum. En hvað kemur þá til? Svarið blasir við. Ríkið, Landsvirkjun og sveitarfélög veita störf handa obbanum af öllum verkfræðingum, náttúrufræðingum, jarðfræðingum, fornleifafræðing- um o.s.frv. Ef fólk er með eitthvað múður gegn virkjanastefnunni þá er það einfaldlega sett á kaldan klaka. Sama gildir um verktaka, sem verða að fá ný og ný verkefni. Framskrið allra þessara hagsmuna er svo þungt að það verður varla stöðvað nema með breyttri stefnu og umþóftun á löngum tíma. Að vísu mundi ein aðgerð hafa áhrif fljótt og er lausn sem ætti að hæfa nútím- anum. Einkavæðum Landsvirkjun. Þá yrði þessum áhættusömu og arðlitlu virkjanaframkvæmdum snar- lega hætt og landið látið í friði. Núverandi virkjanastefnu mætti líkja við þjóðsöguna: „Neyttu á meðan á nefinu stendur." í virkjunarkellu hey- rist: „Kallað er í kóngsríkinu enn.“ „Á hvern og til hvers?" spyr karl. „Á mig til að halda barni undir skírn,“ segir kerling. „Far þú þá,“ segir karlinn. - Allt bendir nú til þess að virkjana- ævintýrið fari eins og þjóðsagan. Smjörið klárist og karlinn dauðrotist. ■ 46 avs

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.