AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Page 50

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Page 50
ARKITEKTIIR / ARCHITECTURE ækjarskoli 1 Hilmar Þór Björnsson og Sigríöur Ólafsdóttir, arkitektar 1 NÁNASTA UMHVERFI RÁÐANDI ÞÁTTUR í LAUSNINNI Lækjarskóli, sem nú hefur verið tilnefndur til Mies van der Rohe verðlaunanna í byggingalist, er byggður samkvæmt vinningstíl- lögu í opinni arkitektasamkeppni sem haldin var árið 2000. Samkeppnin var um byggingar og deiliskipulag á afar umdeildu og viðkvæmu svæði í Hafnarfirði sem tengist Hörðuvöllum. í samkeppnislýsingu var miðað við tveggja hliðstæðna grunnskóla með íþróttaaðstöðu með sal og sund- laug ásamt fjögurra deilda leikskóla. Sigurvegarar í samkeppninni voru Á STOFUNNI arkitekt- ar, þau Finnur Björgvinsson, Sigríður Ólafsdóttir og Hilmar Þór Björnsson. Samstarfsmenn þeirra voru VSÓ ráðgjöf sem annaðist alla verkfræðivinnu og Landmótun sem sinnti landslagshönnun. Að lokinni samkeppninni var ákveðið að bjóða verkið út sem einkafram- kvæmd þar sem hlutskarpast varð fasteignafélagið Nýsir í samstarfi við verktakafyritækið ÍSTAK. ARKITEKTÚR Náttúran var ráðandi þáttur í úrlausn arkitektanna. Staðsetning bygging- arinnar í mjög dáðu og viðkvæmu umhverfi, þar sem var ósnert hraun, birkikjarr, engi og lækurinn með tjörn þar sem er mikið fuglavarp, leiddi arkitektana að þeirri niðurstöðu sem nú-hefur verið framkvæmd. Til þess að valda sem minnstu raski lögðu arkitektarnir til að byggingin risi á vegstæði sem þarna var fyrir. Glerveggur vestanverðu í húsinu er sveigður þannig að hann fylgir að mestu vegbrúninni sem þarna var. Þannig má segja að gamli vegur- inn, Hörðuvellir, sé nú orðinn yfir- byggð göngugata innan skólans. Nú ganga nemarnir með vegbrúninni sem áður var milli vistarvera skól- ans í umhverfi sem er á mörkum þess að vera úti og inni. Náttúran, lækurinn og hraunið blasir við líkt og áður. Um glervegginn njóta þeir sem innifyrir eru náttúrunnar útifyrir og vegfarendur utandyra geta fylgst með lífinu innandyra. Gangurinn er aðalsamskiptasvæði skólans sem gengur þvört á aldur og stöðu nema og starfsmanna skólans. Hér hitt- ist fólk og á óformleg samskipti í leik og starfi í nánum tengslum við það landslag sem fyrir var. í langhúsinu er að finna allar ségreinastofur og stjórnun skól- ans meðan í þverálmunum þrem eru heimasvæðin sem notuð eru af þrem aldurshópum skólans. LITIR OG EFNISVAL Arkitektarnir svöruðu kalli umhverf- isins og lögðu mikla áherslu á það í vinnu sinni að notendur bygging- arinnar yrðu fyrir stöðugu jákvæðu áreiti frá fögru umhverfinu innandyra sem utan. Allt efnisval og litir tóku mið af þessu og eru sótt í nánasta umhverfi skólans. Þar ræður mestu hraunið og litir þess, mosinn og sú litaflóra sem þar kemur fram og er síbreytileg, engið og birkikjarrið. Áhrif þessara umhverfisþátta má sjá end- urtekin í byggingunum með ýmsum tilbrygðum í efnisvali og litum. Byggingin er alls um 7000m2. ■

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.