AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Page 58

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Page 58
Sveinn Kjarval var mikilvirkur braut- ryðjandi í hönnun húsgagna og inn- réttinga hérlendis á fimmta og sjötta áratug tuttugustu aldar og hafði mikil áhrif á húsgagnasmíði í anda nytja- stefnunnar, sem þá setti mark sitt á framsækna hönnun. Hann tileinkaði sér það besta í danskri húsgagna og húsbúnaðarhönnun eins og glöggt má sjá í því sem eftir hann liggur. Sveinn leit dagsins Ijós í Kaupmannahöfn 20. mars 1919. Foreldrar hans voru Tove Kjarval rithöfundur, fædd Merild og Jóhannes S. Kjarval listmálari. 1940 gekk Sveinn að eiga Guðrúnu Kjarval, fædd Hjörvar og varð þeim hjónum fimm barna auðið. Hann nam húsgagnasmíði á smíðaverkstæði Jakobs Kjær í Kaupmannahöfn. Þá þegar þótti dönsk húsgagnahönnun, smíði og framleiðslutækni skara fram úr og verkstæðið þar sem Sveinn stund- aði nám sitt var í fremstu röð. Sveinn hélt til íslands 1939 að námi loknu og setti á laggirnar eigin hús- gagnavinnustofu, sem hann rak í nokkur ár, uns hann fluttist á ný til Kaupmannahafnar ásamt konu og börnum og settist aftur á skólabekk - í þetta sinn við nám í húsgagna- hönnun í Kunsthaandværkerskolens Möbelskole. Meðal kennara hans voru ýmsir virtustu hönnuðir Dana, svo sem Hans Wegener, Finn Juhl og Börge Mogensen. Að hönnunarnáminu loknu hélt Sveinn enn heim til íslands og Sveinn Kjarval Jóhannes Kjarval, arkitekt setti á laggirnar fyrstu teiknistofu sína. Fyrsta stóra verkefni hans var að hanna skápa, sýningarborð og hillur í hið nýja Þjóðminjasafn íslands. Skömmu síðar hannaði hann Naustið innan og utanhúss ásamt öllum húsbúnaði veitinga- hússins. Margir húgagna- og innrétt- ingahönnuðir þjóðarinnar hófu feril sinn á þessari teiknistofu Sveins. Á þessum árum var lítið framboð af tilbúnum, vel hönnuðum húsgögn- um í verslunum hér á landi og lítið flutt inn af slíku. Innréttingar voru sérsmíðaðar eftir pöntun og einnig mikið af húsgögnum. í teikningasafni Sveins er því að finna húsgögn og húsbúnað af ýmsum toga og verk- efnín bera manna- eða fyrirtækja- nöfn eða heita eftir opinberum stofn- unum. Með tímanum urðu verkefnín mörg og fjölgaði jafnt og þétt, þegar kom fram yfir miðjan sjötta áratug- inn. Verslanir, einkaheimili, bókasöfn, veitingastaðir, kirkjur og mennta- skólar voru meðal bygginga þar sem sjá mátti innréttingar og húsgögn, sem Sveínn hannaði - að ógleymdu sjálfu Alþingi og Landspítalanum. Hlutur innlendrar húsgagnahönnun- ar og húsgagnasmíði óx til muna á sjötta og sjöunda áratug aldarinnar og Sveinn vann að því með ýmsum fyrirtækjum og einstaklingum að þróa húsgögn sín og koma þeim í framleiðslu. Mest var smíðað af húsgögnum hans á húsgagna- vinnustofunni Nývirki hf. og saga þess fyrirtækis og þeirra sem þar stunduðu iðn sína er sam- ofin hönnun hans. Jón Gunnar Árnason myndlistarmaður og járnsmiður vann að því að þróa stálhúsgögn Sveins í járnsmiðj- unni Sindra, þar sem til urðu margar útgáfur af Sindrastólum - eins og þeir voru kallaðir - úr járni og öðrum málmum. Jón smíðaði einnig margar gerðir lampa og ýmissa annarra hús- muna, sem Sveinn hannaði. Guðrún Jónasdóttir veflistakona átti líka sinn þátt í þróun húsgagna hans, auk margra annarra, sem unnu með honum að því að móta frumgerðirnar. En saga íslenskrar hönnunar er enn óskrifuð og þess vegna eru margvíslegar upplýsingar um Svein Kjarval og aðra hönnuði brota- kenndar og óskráðar að mestu. Má með sanni segja að tími sé kominn til að bæta úr því. 1970 fluttist Sveinn enn á ný til Danmerkur með konu og börn- um. Þar hélt hann áfram starfi sínu við hönnun og smíði hús- gagna. Innan tíðar færði hann svo út kvíarnar og í samvinnu við konu sína og dóttur Kolbrúnu og seinna tengdason sinn, Robin Lökken, kom hann á laggir leirkeravinnu- stofu og sýningarsal á Jótlandi. Sveinn Kjarval lést á Landspítalanum 10. febrúar 1981 og hvílir í Foss- vogskirkjugarði. “Þinnastólinn" eða “litla borðstofu- stólinn" eins og hann hefur líka verið kallaður hannaði Sveinn 1963 ásamt öllum innréttingum fyrir kaffihúsið Tröð á annarri hæð í Austurstræti 18. Slíkir stólar voru framleiddir á ný í Danmörku 1979 og þá fyrir hótel Valhöll á Þingvöllum. Önnur útgáfa og einfaldari af þessum sama stól var notuð í heima- vist Menntaskólans á Akureyri. Bókaskápurinn á Bessastöðum / Book Cabinet at Bessastaðir. 58 avs

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.