Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023 www.bkhonnun.is - sala@bkhonnun.is - Sími 571-3535 BJÁLKAHÚS - GARÐHÚS Bjóðum fjölmargar gerðir garðhúsa. Þök, skýli, lítil og stór bjálkahús. Pallaefni, girðingar og sauna tunnur. Mjög góð verð og stuttan afhendingartíma. Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá Eigum til sölu tvær nýjar 27 m2 húseiningar með tveimur herbergjum, sturtu, salerni og eldunaraðstöðu. Fullbúnar einingar sem eru tilbúnar í notkun. Verð 6.500.000 + vsk á hvorri einingu. Til að fá frekari upplýsingar hafið samband við Stólpa gáma, sími 568-0100, netfang stolpigamar@stolpigamar.is BÆJARHRAUNI 12 220 HAFNARFIRÐI S. 555 4800 Hafnargata 52 260 Reykjanesbæ S. 421 7510 Hrísmýri 7 800 Selfossi S. 482 4200 Furuvöllum 15 600 Akureyri S. 535 9085 Sólvangi 5 700 Egilsstöðum S. 471 1244 STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 12 110 REYKJAVÍK S. 535 9000 Skoðaðu vöruúrvalið á www.bilanaust.is FABBRI Reiðhjólafestingar 35% AFSLÁTTUR KIDDY Barnabílstólar 20% afsláttur fyrir viðskiptavini TM trygginga 20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI TM TRYGGINGA Heimsfaraldur kórónuveiru og innrás Rússa í Úkraínu hefur kallað á endurskoðun á þeim gildum sem við byggjum íslenska matvælaframleiðslu á. Sem þjóð tel jum við mikilvægt að hér á landi sé stunduð öflug matvælafram- leiðsla. Unnið er að því að móta landbúnaðar- stefnu sem til framtíðar leggur grunn að því hlutverki sem íslenskum landbúnaði verður ætlað í okkar samfélagi. Sauðfjárrækt mun áfram verða ein af meginstoðum íslenskrar matvælaframleiðslu. Ekki bara vegna þess að sauðfjárrækt er samofin sögu okkar og menningu, ekki bara vegna þess að sauðfjárræktin skapar fjölbreytt störf um allt land, ekki bara vegna þess að hér á landi eru einstök landgæði sem henta vel til sauðfjárræktar, heldur fyrst og fremst vegna þess að íslensk sauðfjárrækt er stunduð af miklum metnaði sem lýsir sér í einstökum árangri hvað varðar afurðarsemi, framsýni í kynbótastarfi og áherslum í umhverfismálum. Það er hægt að meta árangur af búrekstri með ýmsum hætti. Algengt er að horfa til þátta eins og frjósemi, fallþunga og kjötgæða. Þegar horft er til þessara þátta er árangur í íslenskri sauðfjárrækt einstakur á heimsvísu. Frá aldamótum hafa afurðir sauðfjár aukist um nær 25%. Það er árangur sem náðst hefur með bættum búskaparháttum og markvissum kynbótum. Þessi árangur skilar sér ekki bara í aukinni framlegð í búrekstri heldur skilar hún líka stórkostlegum árangri í að draga úr beinni losun kolefnis frá landbúnaði. Kynbótastarf í íslenskri sauðfjárrækt er einstakt á heimsvísu. Fyrst og fremst af því að hér hefur frá upphafi verið byggður upp öflugur gagnagrunnur á grunni þekkingar öflugra fræðimanna og mikils áhuga bænda á þátttöku í kynbótastarfinu. Í dag eru um 95% bænda þátttakendur í skýrsluhaldi í sauðfjárrækt, það er einstakt og gerir það að verkum að bændur hafa nákvæmar upplýsingar um afurðir sinna gripa og kynbótagildi þeirra. Á sviði umhverfismála hafa sauðfjárbændur ekki síður lagt sitt af mörkum þegar kemur að landnýtingu og endurheimt landgæða. Hér má t.d. nefna þátttöku íslenskra bænda í verkefninu Bændur græða landið. Í því verkefni hefur verið unnið að landbótum á um 900 km2 landsvæði í samstarfi við landgræðsluna. Gæðastýring í sauðfjárrækt hefur skilað breyttum áherslum í landnýtingu. Verulega hefur verið dregið úr sauðfjárbeit, beitartími styttur og um 8.500 km2 af hnignuðu landi friðað fyrir beit. Þá hefur af tillögu sauðfjárbænda verið komið á verkefninu Grólind um mat og vöktun á gróður- og jarðvegsauðlindum landsins. Meginmarkmið þess verkefnis er að skila með reglubundnum hætti heildarmati á ástandi gróðurs- og jarðvegsauðlinda landsins. Íslensk sauðfjárrækt byggir á sterkum grunni. Það er hins vegar líka margt sem þarf að gera betur. Þar má einkum nefna að afkoma sauðfjárbúa hefur verið óviðunandi um langt skeið. Mikilvægt er að skapa bændum stöðugleika í rekstri. Bæði með því að tryggja fyrirsjáanleika í opinberum stuðningi og að afurðaverð tryggi bændum viðunandi afkomu. Ekki síður er mikilvægt að hér sé virk tollvernd og stjórnvöld skapi rekstrarumhverfi sem tryggir bændum afkomu til samræmis við aðrar starfsgreinar. Að undanförnu hefur verið mikil umræða um lausagöngu sauðfjár. Mikilvægt er að hafa í huga að núverandi fyrirkomulag landnýtingar er ein af grunnstoðum sauðfjárræktar, að einhverju leyti verður umræðan að byggja á þeirri forsendu. Það verður hins vegar ekki horft framhjá því að þeim tilvikum fjölgar þar sem árekstrar verða um landnýtingu. Aðstæður eru mjög breytilegar og ekki auðvelt að finna einfaldar lausnir sem leysa alla árekstra. Núverandi kerfi byggir á þeim grunni að sveitarfélög fara m.a. með skipulagsmál, framkvæmd fjallskila og setja reglur um búfjárhald, þar sem m.a. liggur ákvörðunarvald varðandi lausagöngu búfjár. Það er líka rétt að hafa það í huga að það eru fleiri en færri tilvik þar sem árekstrar varðandi landnýtingu hafa verið leystir með samtali og tillitssemi. Þar halda báðir aðilar á lausninni. Garður er granna sættir. Trausti Hjálmarsson, formaður deildar sauðfjárbænda hjá BÍ. Þess vegna eigum við að standa vörð um íslenska sauðfjárrækt Trausti Hjálmarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.