Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023 ÖFLUG VÖKVADRIFIN VERKFÆRI FRÁ HYCON DÖNSK GÆÐASMÍÐI OG ÁRATUGA REYNSLA Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is Brothamrar Kjarnaborvélar Steypusagir Vatnsdælur GlussadælurNiðurrekstarhamrar Varahlu�r í Bobcat Hér er ágætt að draga það inn í söguna að þegar Stulli hafði verið í bjórlæri vestanhafs hafði eitt af skilyrðunum verið að hann þyrfti að gangast undir lærlingsstöðu. Fyrsta val Stulla gekk ekki, en annað valið hins vegar gekk vel, en þar munstraði hann sig í brugghús á vesturströnd Bandaríkjanna sem heitir Russian River en þar ræður bruggmeistarinn Vinnie Cilurzo ríkjum. Vinnie og Russian River brugghúsið var einna frægast fyrir bjórinn sinn Pliny the elder, sem var einn eftirsóttasti vesturstrandar IPA bjórinn og oft nefndur í sömu andrá og bestu bjórar heims. Jólasveinarnir Velgengni Úlfs, nr. 3, sem byggður var á Pliny the elder bjórnum hefði því raunar ekki átt að koma á óvart en segja má að sá bjór hafi að einhverju leyti sett handverksbylgjuna sem hófst með Kalda í næsta gír, enda ferskur IPA allt í einu til hérlendis. Í dag þykir hálfasnalegt að opna vínveitingastað án þess að bjóða upp á slíkan bjór en þarna fyrir um 13 árum þekktist hann varla á börum og þá alls ekki ferskur. Jólabjórar Borgar eru síðan flestum landsmönnum kunnir, en þeir bera nöfn jólasveinanna 13 eins og þeir koma fyrir í kvæðum Jóhannesar úr Kötlum en ef til vill var sá sem kom næstur Úlfi að áhrifamætti bjórinn Surtur, nr. 8. Þarna hafði Valgeir, sem áður var bruggari Ölvísholts komið til starfa hjá Borg Brugghúsi og hafði getið sér gott orð fyrir Lava bjórinn sem áður var fjallað um í Bændablaðinu. Var sannfæring birgðastjóranna hjá Borg að upplagið myndi endast út árið, en það dugði varla vikuna! Eftir þessi ósköp nutu bjórgerðarmeistarar Borgar Brugghúss algjörs frelsis til að skapa og afraksturinn sýnir að þeir létu ekki segja sér það tvisvar. Bjórsamfélagið spenntist upp í hvert sinn sem fréttist af nýjum Borgarbjór og biðraðir mynduðust jafnvel við Vínbúðir. Vissulega hefur Borg brugghús ávallt starfað í skjóli Ölgerðarinnar sem hefur kannski gefið fovígismönnum brugghússins meira hugrekki í tilraunum en ýmislegt nýtt sem aldrei hafði litið dagsins ljós áður kom í gegnum Borg. Má þar með áðurnefndum fyrirvörum minnast sem dæmi á taðreykta bjóra, áfengislausa handverksbjóra, það að nota 100% íslenskt og ómaltað bygg til framleiðslu, notkun íslensks blóðbergs, auk þess sem Borg brugghús var í fararbroddi að stofna til samstarfs við erlend brugghús og koma þannig með nýja þekkingu sem bruggmeistararnir hafa alltaf verið til í að miðla. Borg brugghús hefur þannig haft mjög jákvæð áhrif á bjórsamfélagið en einnig á rekstur Ölgerðarinnar, því ýmislegt jákvætt þar virðist hafa smitast yfir í stærra brugghúsið. Þannig var Bjartur lengi vel Sumargull, Skógarpúki, bjór nr. 6, varð Þorragull og svo mætti lengi telja. Nokkru síðar varð Ölgerðin stærsti framleiðandi á bjór á Íslandi og hvort það er Bjórskólanum eða Borg brugghúsi að þakka skal ósagt látið. En rúmlega 200 bjórum (102 með fast númer þegar þetta er skrifað, 29 á undirnúmerum, 34 samstarfsbjórar og 44 bjórar úr tilraunalínu) og einum Rússajeppa síðar er augljóst að Borg brugghús er eitt afkastamesta handverksbrugghúsið á Íslandi og þótt víðar væri leitað. IPA IPA stendur fyrir bjórstílinn Indian Pale ale, en stíllinn á sögulegar rætur sínar að rekja til loka 18. og upphafs 19. aldar þegar Bretar voru að senda bjór frá heimalandinu til nýlendu sinnar Indlands, en til þess að bjórinn lifði af ferðina var dælt í hann humlum, sem er nátt­ úrulegt andoxunarefni, náttúrulegt rotvarnarefni í bjór. Meira af huml­ um þýðir að bjórinn endist betur. Rússajeppinn og bruggmeistararnir, Árni, Sturlaugur og Hlynur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.