Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023 Tekinn var til kostanna nýr bíll frá rúmenska bílaframleiðandanum Dacia, sem er frægur fyrir að framleiða ódýra bíla. Þrátt fyrir að vera á mjög góðum kjörum hefur það ekki komið niður á hönnun og nytsemi. Þessi bíll er með mikla sérstöðu, enda skilja nokkrar milljónir króna Jogger frá öðrum sjö sæta strumpastrætóum. Bifreiðin í þessum prufuakstri er af Expression útgáfu (dýrari týpan), sem kostar 5.090.000 krónur hjá BL. Um leið og gengið er að bílnum sést að enginn afsláttur hefur verið gefinn á hönnun. Ytra útlit Jogger er allt hið smekklegasta og myndi sá sem ekki veit betur ei átta sig á að hér sé um billegan bíl að ræða. LED framljósin minna um margt á dýrari bíla, eins og Volvo eða Volkswagen. Grillið er með nýju og fersku merki Dacia. Expression útgáfan kemur með álfelgum og skyggðum rúðum sem felur enn betur hversu hagstæður bíllinn er. Mosagrænt lakkið kemur vel út á bílnum sem Bændablaðið fékk til prufu. Jogger er mikið til byggður á Dacia Sandero, sem aftur er byggður á Renault Clio. Báðir þeir bílar eru í sama stærðarflokki og Volkswagen Polo og Toyota Yaris og má því segja að þetta sé borgarbíll sem hefur verið teygður út að aftan og fengið auka sætaröð. Framhlutinn er nákvæmlega eins og á áðurnefndum Sandero og eru helstu breytingarnar að finna aftan við framdyrnar. Þessi skil sjást greinilega þegar horft er á hlið bílsins, en rúðan á afturhurðinni er nokkrum sentímetrum hærri en sú sem er fyrir framan hana. Þrátt fyrir að samskeytin séu vel greinileg, eru þau ekki fráhrindandi og vönduð hönnunarvinna að baki. Innrétting fríð en hörð Þegar sest er í bílinn tekur á móti manni vel útfærð innrétting sem enn og aftur sýnir að hvergi hefur verið slakað á hönnunarkröfunum. Um leið og fingurnir leika um mælaborðið, finnst hins vegar að allt plastið er grjóthart og ódýrt. Hluti innréttingarinnar er klæddur gráum textíl sem gefur vott af íburði, þó auðvitað sé þar á ferðinni polyester sem hylur hart undirlag. Framsætin sjálf eru mjúk og smekkleg í útliti, en engum dylst sem í þeim situr að þau eru af ódýrustu gerð. Þeir sem eru hávaxnir munu finna sérstaklega fyrir því að sætið færist ekki fyllilega langt aftur og hvíla því lærin illa á stuttri sessunni. Lítill stuðningur við mjóbak og undir lærin skilar sér í því að þreyta sækir að ökumönnum á löngum akstri. Lítil en öflug vél Létt kúpling og stýri ásamt þýðum gírkassa gera Jogger prýðilegan í innanbæjarsnatt og styttri ferðir. 999 rúmsentímetra þriggja strokka bensínvél dregur bílinn áfram og skilar hún 110 hestöflum, sem er býsna vel gert miðað við svona lítinn mótor. Vélin nær nokkuð góðu togi á lágum snúningum, en er fljót að missa afl þegar hún er þanin. Uppgefin eyðsla er 5,7 lítrar á hundrað kílómetra, en sú tala var nær átta lítrum í höndum blaðamanns. Taka skal fram að frost var mikið og bensínfóturinn stundum þungur. Í lausagangi berst greinilegur titringur frá vélinni til farþeganna. Hljóðeinangrun frá vél og umhverfi er til fyrirmyndar miðað við svona ódýran bíl. Jogger Expression kemur með snertiskjá í mælaborðinu þar sem útvarpi og tónlist í gegnum Bluetooth er stjórnað. Skjárinn sýnir einnig vel nothæfa mynd frá bakkmyndavélinni, sem í bland við nálægðarskynjara að framan og aftan gera bílastæðalagnir að leik einum. Enn fremur er boðið upp á GPS leiðsagnarbúnað sem er sérlega erfiður í notkun. Rétt er að nefna sérstaklega lyklalaust aðgengið sem er alveg snertilaust og virkar án allra hnökra. Bíllinn skynjar nálægð lyklanna og fer sjálfkrafa úr eða í lás og ökumaðurinn þarf ekki að ýta á neinn takka. Öll sæti nothæf Öll sjö sæti bílsins rúma fullorðið fólk, þó þau öftustu séu ólíkleg til að vera eftirsótt í lengstu ferðirnar. Miðjusætaröðin er líklega sú besta í bílnum, en þrátt fyrir að ökumannssætið sé í öftustu stöðu er auðvelt að komast inn. Hátt loftið skilar sér í góðu höfuðplássi í fremri tveimur sætaröðunum, en aftast þrengist að höfði þeirra hæstu. Séu farþegarnir fimm er hægt að leggja öftustu sætaröðina niður og velta fram. Þá er Jogger kominn með risastórt skott sem auðvelt er að fylla með farangri. Sé þörf á rými sendibíls er ýmist hægt að leggja öll sætin niður eða fjarlægja. Þó þetta sé fólksbíll er Jogger með nokkuð mikla veghæð. Því er lítið mál að taka stutta túra út fyrir malbikið, að því gefnu að bifreiðin sé ólestuð. Þegar ökumaðurinn er einn á ferð gerir Jogger lítið úr hraðahindrunum. Ef fjórum farþegum og þeirra farangri er bætt við finnst að bíllinn lækkar nokkuð og misfellur í veginum krefjast meiri varúðar. Í stuttu máli Dacia Jogger er ódýr, en vandaður bíll. Framleiðendur bifreiðarinnar hafa lagt mikinn metnað í alla hönnunarvinnu. Lágt verðið finnst hvergi hvað varðar útlit eða nytsemi, heldur hafa ódýrari efni og eldri tækni verið notuð þar sem hægt er. Sjö sæta bíll á lægra verði sem er nýr úr kassanum er vandfundinn. VÉLABÁSINN Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Sjö sæta Dacia Jogger á verði smábíls Dacia Jogger er mikill bíll fyrir lítinn pening. Þrátt fyrir að hagsýni ráði för við smíði bifreiðarinnar hefur það ekki komið niður á hönnun og nytsemi. Hér er á ferðinni ökutæki með karakter. Myndir / ÁL Fremri helmingurinn er sá sami og á Dacia Sandero. Aftan við framdyr hefur öllu verið breytt til að útbúa strumpastrætó úr smábílnum. Samskeytin eru greinileg, en vel útfærð. Tveir fullorðnir komast í öftustu sætin. Óljóst er hvar geyma skuli skottyfirbreiðsluna. Með öftustu sætin samanbrotin er mikið pláss í skottinu. Innréttingin fer vel í augu, en er hörð undir fingrum. Besti staður bílsins er miðjusætaröðin. Hátt er til lofts og rétt nóg pláss fyrir langa leggi. Prufuakstur:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.