Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Fiskeldi stærsta búgrein Íslands
innan fárra ára?
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Nýlega var birt skýrsla Boston Consulting Group um framtíðarhorfur
lagareldis og kynnt á viðburði á Hótel Nordica. Skýrslan var
gerð fyrir tilstilli matvælaráðuneytisins og reynir að gera grein
fyrir hvernig hinar mismunandi lagareldisgreinar (fiskeldi og
þörungaeldi) munu þróast á næsta áratug miðað við ákveðnar
forsendur.
Greiningin er áhugaverð og er þar birtur fjöldi staðreynda um magn og
virði sem gaman er að setja í samhengi við hefðbundinn landbúnað. Sér
í lagi er það fiskeldi á landi, einnig kallað landeldi, sem er áhugavert í
þessari umræðu því að í raun er lítinn greinarmun hægt að gera á landeldi
og öðrum búgreinum, að því undanskildu að fiskar eru aldir í vatni.
Þegar hafa fimm fyrirtæki hafið undirbúning að fiskeldisstarfsemi
og þar af er eitt þegar hafið að rækta lax. Í dag eru ræktuð um 8.000
tonn af fiski á landi en þegar öll fyrirtækin sem hafin eru sína vegferð
verða komin upp í fulla framleiðslu verður magnið 105-125.000 tonn.
Er þetta augljóslega langt umfram alla innanlandsþörf, áætluð
ársframleiðsla er um það bil 300 kílógrömm á hvern einstakling miðað
við mannfjöldaspá ársins 2023. Hins vegar eru háleitar væntingar um
útflutningsverðmæti vörunnar þar sem neysla á fiski er vaxandi á
heimsvísu með fólksfjölgun og stækkandi millistétt.
Samkvæmt greiningu Boston Consulting Group er búist við að
verð á laxi muni hækka á næstunni en nú þegar er útflutningsverð
á íslenskum eldislaxi mjög hagstætt miðað við rekstrarkostnað og
útflutningsverð annarra íslenskra landbúnaðarafurða. Auk þess hafa
íslensku landeldisfyrirtækin tekið stór skref til þess að takmarka
umhverfisáhrif og hámarka dýravelferð við framleiðsluna.
Aukin vitund neytenda á þessum málefnum fram í tímann verður
vonandi til þess að eftirspurn eykst enn frekar og afurðaverð samkvæmt
því. Vöxtur landeldis er viðbót við íslenskan landbúnað sem var eflaust
ekki fyrirséð fyrir nokkrum árum síðan, en nú horfum við fram á að
þetta verði stærsta búgrein landsins innan fárra ára. /SFB
Markaðir
150,1 kr
Evra
140,06 kr
USD
171,43 kr
Pund
320,1623 kr
95 okt bensín
323,4506 kr
Díesel
18,04 USD
Mjólk (USD/100 pund)
6,91 USD
Korn (USD/sekkur)
29,9 EUR
Kartöflur (EUR/100 kg)
1317 AUD
Ull (AUD/100 kg)
1,93 USD
Ostur (USD/pund)
4800 EUR
Smjör (EUR/tonn)
Kjöt- og fiskframleiðsla á landi
Meðalútflutningsverð 2022